Náttúrufræðistofnun fékk tvö Græn skref afhent í dag
Þau Emilía Ásgeirsdóttir og Guðmundur Guðjónsson komu í heimsókn til Umhverfisstofnunar að kynna sér umhverfismálin. Á sama tíma fengu þau afhent annað og þriðja Græna skrefið. Vel gert hjá stofnuninni.
Skipulagsstofnun hefur lokið skrefi 2
Úttekt hjá Skipulagsstofnun lauk nú með afhendingu viðurkenningar fyrir að hafa lokið skrefi nr. 2. Markviss vinna hefur verið í gangi hjá stofnuninni við að innleiða hverja aðgerð af annarri s.s. flokkun, óska eftir visthæfum leigubílum, bjóða ekki upp á mat í smáumbúðum og fleira. Nú er bara að halda áfram og klára þriðja skrefið fljótt og vel 🙂 
Isavia er nýr þátttakandi í Grænu skrefunum
Isavia annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla á Íslandi ásamt því að stýra flugumferð á flugstjórnarsvæði Íslands. Hjá Isavia starfa 830 manns um allt land við mörg og margbreytileg verkefni. Nýjasta verkefni þeirra núna er að vinna með okkur að umhverfisvænni rekstri.
Allt sem við gerum hefur áhrif
Landspítalinn hefur nýverið samþykkt að hætta að dreifa árlega gömlu símaskránni á allar deildir spítalans. Við þessa aðgerð sparast um 400 kg eða eitt bretti af pappír á ári og sóun og sorphirða minnkar samhliða.
Landspítalinn hefur einnig náð þeim frábæra árangri að 30% af öllum þeirra úrgangi, fer í dag til endurvinnslu sem gera heil 25 tonn af á mánuði eða 300 tonn á ári!
Fimm Græn skref í höfn hjá ÁTVR
ÁTVR (höfuðstöðvar að Stuðlahálsi 2 og Dreifingarmiðstöðin) hafa náð þeim árangri að innleiða öll fimm Grænu skrefin í einu. Stofnunin hefur unnið markvisst að umhverfismálum í nokkur ár og meðal stærri verkefna þeirra eru að vinna með GRI sjálfbærnivísa, hvetja viðskiptavini til að minnka notkun og kaup á plastpokum og kolefnisjafna útblástur vegna aksturs og flugferða. Vinna ÁTVR við að breyta hugarfari fólks t.d. varðandi plastpokanotkun er að hafa áhrif en hlutfall viðskiptavina sem kaupir plastpoka hjá þeim fer lækkandi milli ára. Vinna þeirra sýnir að við getum haft jákvæð áhrif. Til hamingju ÁTVR!
Sveinn Víkingur Árnason, framkvæmdastjóri ÁTVR og Sigurpáll Ingibergsson, gæðastjóri tóku við viðurkenningunni frá Hólmfríði Þorsteinsdóttur, starfsmanni Umhverfisstofnunar. 
Annað og þriðja Græna skrefið komið hjá LMÍ
Landmælingar Íslands fengu úttekt og viðurkenningu fyrir að hafa lokið öðru og þriðja Græna skrefinu í dag. Þau eru þar með önnur stofnunin til að ná þeim áfanga. Innleiðingin hefur gengið hratt og vel og starfsmenn tekið vel í að flokka allan úrgang eins og hægt er og síðan nýta þau t.d. gömul kort í minnismiðablokkir. Eydís Finnbogadóttir hjá LMÍ tók á móti viðurkenningunum.
Margar lausnir fyrir sorpið okkar

Til eru margar mismunandi tunnur fyrir sorpflokkun en mikilvægt er að hvert tilvik sé skoðað með þarfir stofnunarinnar í huga. Auðveldasta leiðin er að hafa samband við sorphirðuaðilann og óska eftir hugmyndum og aðstoð 🙂
Skemmtilegar lausnir hjá Fjármála- og efnahagsráðuneyti

Fjármála- og efnahagsráðuneyti vinnur nú að því að ljúka innleiðingu fyrsta Græna skrefsins og notast við ýmsar skemmtilegar lausnir sem henta þeirra starfsemi. (Á myndinni eru: Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og vinnuhópur Grænna skrefa í ráðuneytinu, Anna Antonsdóttir, Margrét Karlsdóttir, Ólöf Stefánsdóttir og Ingunn M. Hilmarsdóttir).
Hér hafa þau meðal annars gert eigin útskýringar yfir úrgangsflokka sem passa við merkingar á sorptunnunum. Einnig safna þau saman kaffikorginum sem starfsmaður ráðuneytisins tekur með sér og setur í beðin í sumarbústaðnum.

Flokkum og endurnýtum

Pappakassar eru ekki bara pappakassar en í stað þess að fleygja þeim um leið og þeir koma í hús er upplagt að nýta þá á margskonar hátt. Hægt er að sækja notaða pappakassa til ÁTVR sem síðan er hægt að nýta t.d. fyrir sumarblómin eða flutninga. ÁTVR á Egilsstöðum styður t.d. við nýsköpunarverkefni á staðnum með því að útvega pappakassa sem síðan eru nýttir til þróunar á lífrænum áburði.
Græn skref hjá Vegagerðinni

Nú er Vegagerðin komin í hóp okkar í Grænu skrefunum. Alls 300 starfsmenn sem hefja með okkur græna vegferð 🙂









