Vilt þú vita um hvað Grænu skrefin eru?
Þann 17. maí var haldinn kynningarfundur um verkefnið Græn skref í ríkisrekstri en þar var farið yfir tilurð, markmið og framkvæmd Grænna skrefa og græns bókhalds sem og tengsl þeirra við losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum skoðuð.
Hægt er að horfa á kynninguna hér.
Hjólavottun vinnustaða
Verkefnið Hjólavottun vinnustaða veitti nokkrum ríkisstofnunum vottun sína fyrir bætta aðstöðu fyrir reiðhjól viðskiptavina og samgöngustefnu fyrirtækja. Það var gaman að sjá að mörg ráðuneyti voru með í þessari lotu s.s. Forsætis-, efnahags- og fjármála-, utanríkis, umhverfis- og auðlinda-, atvinnu- og nýsköpunar, dómsmála-, samgöngu- og sveitarstjórnar-, mennta- og menningarmálaráðuneytið. Einnig fengu Orkustofnun, Samgöngustofa og Seðlabanki Íslands hjólavottun. Frekari upplýsingar um verkefnið er hægt að finna hér.
5 skref hjá Vínbúðinni á Húsavík
Jæja þar kom að því að 51 Vínbúðin fengi úttekt og afhenta viðurkenningu fyrir öll fimm Grænu skrefin. Nú eru allar Vínbúðirnar komnar með öll Grænu skrefin sem og höfuðstöðvar ÁTVR. Innilega til hamingju með frábæran árangur!
Flokkunarmerkingar fyrir alla
Við létum gera þessar flokkunarmerkingar, sem byggja á grunni frá Landsspítalanum og með þeirra leyfi. Einhverjum finnst flokkun frekar flókin og þá hjálpar ekki að margar mismunandi tegundir af merkingum eru til. Þessar merkingar standa ykkur því til boða og við hvetjum ykkur til að nota þær.
Þekkjum merkin
Oft er talað um frumskóg umhverfismerkja og að framleiðendur séu að gefa misvísandi upplýsingar um hversu umhverfisvæn varan er. Vissulega getur verið rétt að við framleiðslu hafi verið tekið tillit til umhverfisþátta en ef áreiðanlega vottun skortir er erfitt að segja til um hvort framleiðandi sé í raun að segja satt og rétt frá. Til að vera viss um að varan sé vottuð er gott að leggja þessi örfáu merki á minnið. Ef við kaupum vörur með þessum merkjum getum við verið viss um að varan og framleiðsla hennar standist kröfur um lágmörkun umhverfisáhrifa. Frekari upplýsingar um umhverfismerkin má sjá hér á vefsiðu Umhverfisstofnunar.
Kynningarfundur um Grænu skrefin
Vill þín stofnun taka þátt í Grænum skrefum í ríkisrekstri? Umhverfisstofnun býður til kynningarfundar fyrir nýja þátttakendur þann 17. maí kl. 09:00. Skráning fer fram hér
Verkefnið er á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og fer Umhverfisstofnun með umsjón þess. Markmið þess er að draga úr umhverfisáhrifum vegna opinbers reksturs og auka þekkingu starfsfólks á umhverfismálum. Allar upplýsingar um verkefnið eru inni á www.graenskref.is og svo erum við líka með facebook síðu /graennrikisrekstur/
Verkefnið er ríkisstofnunum að kostnaðarlausu, það er auðvelt og einfalt í innleiðingu og hægt að leita til Umhverfisstofnunar fyrir frekari upplýsingar eða aðstoð.
Alls 58 ríkisstofnanir eru komnar í verkefnið með um 200 starfsstöðvar t.d. Alþingi, Menntaskólinn við Sund, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Vegagerðin, Ríkiskaup, Náttúrustofnun Íslands. Sjö ráðuneyti eru einnig komin í verkefnið umhverfis- og auðlindaráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, forsætisráðuneytið, utanríkisráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dómsmálaráðuneyti og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Fundurinn verður haldinn 17. maí kl. 09:00 – 10:30 hjá Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24, 3. hæð. Þátttakendum býðst einnig að taka þátt í gegnum Skype for business.





