Nýr þátttakandi í Grænu skrefunum
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu hefur nú skráð sig til leiks í Grænu skrefin. Hjá miðstöðinni starfa 24 manns í Hamrahlíð í Reykjavík. Við bjóðum Þjónustu- og þekkingarmiðstöðina hjartanlega velkomna til leiks! 🙂
Vatnajökulsþjóðgarður stígur fyrsta skrefið
Í starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs hafa umhverfismálin sannarlega verið sett á oddinn og hefur þjóðgarðurinn nú fengið viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið. Vatnajökulsþjóðgarður spannar rúm 14% af flatarmáli Íslands og er einn stærsti þjóðgarður í Evrópu. Starfsstöðvarnar átta sem hafa lokið fyrsta skrefinu eru staðsettar vítt og breitt um þjóðgarðinn en þær eru Fellabær, Gamlabúð, Gljúfrastofa, Kirkjubæjarklaustur, Mývatn, Skaftafellsstofa, Skaftárstofa og Snæfellsstofa. Starfsmenn eru vel upplýstir um umhverfismál enda eitt af markmiðum þjóðgarðsins að vernda náttúru hans. Áhersla er lögð á að draga úr umhverfisáhrifum t.a.m með umhverfisvænum ferðamátum, flokkun og endurnýtingu úrgangs og minni rafmagnsnotkun. Þjóðgarðurinn hefur sett sér metnaðarfullar stefnur þegar kemur að innkaupum og samgöngum og stuðlar þannig að bættu umhverfi og heilsu starfsfólks á sama tíma og umhverfisvitund gesta og starfsfólks er efld. Vatnajökulsþjóðgarður sýnir gott fordæmi fyrir aðrar stofnanir og óskum við þeim til hamingju með árangurinn!

Starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs á Mývatni, Snæfellsstofu og Fellabæ með viðurkenningarskjöl fyrir fyrsta Græna skrefið.
Heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti með fjögur Græn skref
Í dag fengu heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti viðurkenningu fyrir að hafa innleitt þriðja og fjórða Græna skrefið, einungis rúmu hálfu ári eftir innleiðingu fyrstu tveggja skrefanna. Umhverfismálin hafa verið tekin föstum tökum hjá ráðuneytunum og er verkefnið mjög sýnilegt innanhúss sem gerir starfsmönnum einfaldara fyrir að tileinka sér aðgerðir þess. Öflugt þriggja manna teymi fer fyrir innleiðingu Grænu skrefanna í ráðuneytunum tveimur og hafa þau m.a. staðið fyrir fræðslu um sorpflokkun og unnið að metnaðarfullum markmiðum um samdrátt í losun. Til hamingju með árangurinn!

Vinnumálastofnun ætlar að stíga Grænu skrefin
Vinnumálastofnun hefur mikinn áhuga á að vinna markvisst að umhverfismálum í sínum rekstri og hefur því skráð sig til leiks í Grænu skrefin. Hjá stofnuninni starfa 150 manns á átta starfsstöðvum um land allt, en höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Reykjavík. Verið velkomin í hópinn!
Þjóðskjalasafn Íslands skráir sig til leiks
Þjóðskjalasafn Íslands er 68. stofnunin sem stígur með okkur Grænu skrefin. Hjá stofnuninni starfa 35 manns á Laugarvegi 162. Við erum spennt fyrir samstarfinu og bjóðum Þjóðskjalasafn Íslands hjartanlega velkomið til leiks!




