Græn góð ráð um jól og áramót
Það er ansi margt sem við getum gert til að gera jólahaldið okkar aðeins umhverfisvænna. Er stofnunin t.d. að gefa starfsmönnum upplifun í gjöf í stað hluta? Er stofnunin að gefa út rafrænt jólakort? Eru keypt umhverfisvottuð kerti? Hægt er að kaupa umhverfisvottaðan jólapappír eða nota frumlegar aðrar leiðir til að pakka inn jólagjöfunum. Á vef Umhverfisstofnunar eru ýmis góð ráð fyrir alla þegar huga þarf að umhverfisvænu jólahaldi.

HVE fyrsta heilbrigðisstofnunin komin með Græn skref
Heilbrigðisstofnun Vesturlands; starfsstöðvar í Borgarnesi, Grundarfirði, Ólafsvík og Stykkishólmi fengu á dögunum allar viðurkenningu fyrir fyrstu tvö Grænu skrefin. Þau eru öll vel að þessari viðurkenningu komin enda á umhverfisvænn hugsanaháttur sér langa sögu á Snæfellsnesi og Vesturlandi. Töluvert er síðan stofnanirnar fóru að vinna að umhverfisvænni starfsháttum og er gengið oft langt í hvers kyns nýtni. Dæmi eru um fleiri lítra sparnað í ræstingaefnum eftir að skammtastærðir voru betur aðgættar, matarolía úr eldhúsi HVE á Stykkishólmi er hreinsuð og notuð á bíla, starfsmenn nýta ferðir milli starfsstöðva í vöruflutninga og ýmislegt annað. Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæra vinnu 🙂 (Á mynd: Hafdís Bjarnadóttir tók á móti viðurkenningunni fyrir HVE Stykkishólmi).

Ásgeir Sæmundsson tók á móti viðurkenningunni fyrir HVE Borgarnesi.

Áshildur Erlingsdóttir tók á móti viðurkenningu fyrir HVE Grundarfirði.

Þórarinn Steingrímsson tók á móti viðurkenningu fyrir HVE Ólafsvík.
Vínbúðin á Stykkishólmi komin með tvö Græn skref
Í nýafstaðinni ferð á Vesturland fékk Vínbúðin á Stykkishólmi viðurkenningu fyrir tvö Græn skref. Erlu Lárusdóttur fannst þetta lítið mál enda hefur búðin lengi unnið að því að flokka allt sorp og nýta allt vel sem til fellur. Má þá nefna að gamlir reikningar sem ekki þarf að geyma lengur eru notaðir aftur í útprentun og stórir ruslapokar eru oft fengnir notaðir frá öðru fyrirtæki í bænum. Innilega til hamingju með árangurinn og flott starf í þágu umhverfismála 🙂

Forsætisráðuneytið nýr þátttakandi í Grænum skrefum

Forsætisráðuneytið er nú komið í hóp Grænna stofnana ríkisins sem er afar ánægjulegt. Gangi ykkur vel 🙂
Landmælingar Íslands læra að elda úr öllu
Búið er að draga úr hópi þátttakenda í Grænum skrefum og voru það Landmælingar Íslands sem fá að læra allt um það hvernig á að elda og nýta matvæli rétt. Það er afar mikilvægt að við reynum að minnka matarsóun eins og hægt er en af matvælaframleiðslu verða gríðarmikil umhverfisáhrif við framleiðslu, flutning og sölu á matvælum og svo það sem við hendum frá heimilum okkar. Kvenfélagasamband Íslands býður upp á námskeiðin „eldað úr öllu“ sem við hvetjum stofnanir til að bjóða starfsmönnum sínum uppá. Til hamingju LMÍ!
Nýtnivikan 2015 – Nýtum og njótum
Nýtnivikan er samevrópskt átak stendur yfir þessa vikuna (21. – 29. nóvember) en markmið vikunnar er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur. Mismunandi þemu eru síðan tengd vikunni og í ár er það „að draga úr efnihyggju – að gera meira úr minna“. Margt skemmtilegt er í boði þessa viku eins og dagskráin sýnir hér.
Minnkum notkun á einnota plasti
Plast er orðið nær órjúfanlegur hluti af daglegu lífi okkar og því miður er stór hluti þess oft á tíðum einnota t.d. plastpokar og umbúðir utanum matvæli. Minnkum notkun óþarfa einnota plasts með því t.d. að nota fjölnota eða lífræna poka og veljum frekar vörur sem pakkað er inn í annars konar umbúðir s.s. pappír. Þá má benda á að hver plastpoki er að meðaltali aðeins notaður í 25 mínútur og 2 kg af olíu þarf til að framleiða 1 kg af plasti. Alveg ótrúlegt að eyða allri þessari dýru olíuauðlind okkar í einnota hluti. 
Tvö Græn skref hjá Vínbúðinni Heiðrúnu
Nú hefur Vínbúðin Heiðrún lokið tveimur Grænum skrefum og vilja ólm halda áfram með næstu skref 🙂 Þau taka flokkun úrgangs mjög alvarlega og hafa nú fjarlægt tunnu fyrir almennt sorp úr kaffistofunni og flokka t.d. sérstaklega plastið innan úr strimlarúllunum.
Ríkiskaup með sitt fyrsta Græna skref
Á ráðstefnu Ríkiskaupa þar sem áherslan var lögð á vistvæn opinber innkaup hlaut Ríkiskaup viðurkenningu fyrir sitt fyrsta Græna skref. Þau eru vel að skrefinu komin enda þekkja mikilvægi græns reksturs vel. Til hamingju Ríkiskaup 🙂

Áhugaverð erindi stofnana á morgunverðarfundi Grænna skrefa
Morgunverðarfundurinn var mjög áhugaverður og gaman að fá að miðla árangri stofnana sem lengra eru komin í verkefninu. Hér er hægt að nálgast erindi Náttúrufræðistofnunar Íslands, ÁTVR, Vegagerðarinnar og Landmælinga Íslands.








