Hljóðbókasafn Íslands er komið með tvö Græn skref
Hún var ánæguleg heimsóknin til Hljóðbókasafnsins enda eru starfsmenn þar afar jákvæðir fyrir verkefninu og hafa innleitt það með bros á vör. Alls konar umræða hefur skapast á kaffistofunni og eru þau spennt fyrir innleiðingu næstu skrefa. Til hamingju með árangurinn 🙂
Hjólastæði er ekki bara hjólastæði
Þegar setja á upp hjólastæði er gott að skoða mismunandi gerðir, staðsetningu og hvað hentar hverjum vinnustað fyrir sig. Hjólreiðamenn mæla sérstaklega með því að settir séu upp hjólabogar enda styðja þeir vel við hjólið og auðvelt er að læsa stellinu við bogann. Gallinn við einfaldar hjólagrindur er sá að gjarðirnar á hjólunum eiga það til að beyglast þegar álag er á hjólið t.d. vindur. Það margborgar sig að leggja aðeins meira fjármagn í vel gerð hjólastæði sem allir vilja nota. Svo er líka gaman að vekja athygli á hjólastæðum með því að gera eitthvað nýtt og öðruvísi.
Myndin og upplýsingarnar eru fengnar af vef Landssamtaka hjólreiðamanna.
Fyrsta skref Forsætisráðuneytisins
Innleiðing á fyrsta skrefi Forsætisráðuneytisins tók smá tíma en það er mikill hugur í fólki, svo áður en langt um líður verða örugglega komin fleiri skref hjá ráðuneytinu.
Á myndinni eru Sævar Hilmarsson fyrir hönd umhverfisnefndar ráðuneytisins, Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar og Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri
Fyrsta skrefið hjá Vegagerðinni í Borgarnesi
Til hamingju starfsmenn Vegagerðarinnar, með fyrsta Græna skref starfsstöðvarinnar í Borgarnesi. Þar eru menn samviskusamir í að reyna að finna leiðir til að endurnýta eins vel og hægt er. T.d. þá fá þau notað salt frá fiskvinnslum á Snæfellsnesi til að dreifa á vegina á veturna, einnig eru vegstikurnar margsinnis endurnýttar og þegar það er ekki lengur hægt eru þær sendar í endurvinnslu hér á Íslandi.
Plastlaus september í fullum gangi
Hér er um að ræða árvekniátak ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á plasti og einnota plasti. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu átaksins www.plastlausseptember.is




