Fyrsta skrefið í höfn hjá Tryggingastofnun
Tryggingastofnun fékk afhenda viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið. Stofnunin tók innleiðingu skrefsins með trompi, eru t.d. hástökkvarar í flokkun á úrgangi en flokkun jókst úr 17% árið 2015 í 52% árið 2016, til að fá þetta fram tóku þau almenna sorpið úr augnsýn starfsmanna því jú það á að vera auðveldast að flokka, með góðri fræðslu til starfsmanna og mikilli eftirfylgni hefur innleiðing skrefsins orðið til þess að áhugi starfsmanna á umhverfismálum jókst, fleiri hendur hjálpast að og umgengni hefur stórbatnað. Vel gert Tryggingastofnun 🙂
Annað skrefið hjá Landsvirkjun Akureyri
Starfsstöð Landsvirkjunar á Akureyri var að ljúka við og fá viðurkenningu fyrir sitt annað Græna skref. Akureyringar eru ansi vanir flokkun og umhverfisvænni hugsun og því gekk innleiðing skrefsins mjög vel. Til hamingju 🙂
Fimmta ráðuneytið er komið í verkefnið
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið er búið að skrá sig í Grænu skrefin. Ráðuneytið var eitt af sex sem undirrituðu aðgerðaráætlun í loftslagsmálum fyrir nokkrum dögum síðan. Nú á að láta verkin tala og taka umhverfismálin fastari tökum innan ráðuneytisins. Hlökkum til samstarfsins 🙂
Isavia, flugfjarskipti eru komin með fjórða skrefið
Flugfjarskipti voru fyrsta starfsstöð Isavia til að ná þeim áfanga að ljúka við fjórða Græna skrefið. Auk viðurkenningar Grænna skrefa fengu þau viðurkenningu frá Isavia fyrir að innleiða verkefnið svona hratt og vel.
Vegagerðin komin með sitt annað skref
Vegagerðin á höfuðborgarsvæðinu er komin með sitt annað Græna skref. Þau fylgjast vel með þeim þáttum sem hafa hvað mest umhverfisáhrif hjá þeim og vinna að því að draga úr þeim eins og hægt er. Þau hafa t.d. tekið markvisst á innkaupamálum en eins og með svo margt er mikilvægt að fylgjast vel með og minna reglulega á.
Á myndinni eru Hreinn Haraldsson forstjóri Vegagerðarinnar, Hólmfríður Þorsteinsdóttir verkefnastjóri Grænna skrefa og Matthildur B. Stefánsdóttir deildarstjóri umhverfisstjórnunar.
Hjálpumst að við hreinsanir
Samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum þá fara um 8 milljón tonn af plasti út í höfin á hverju ári. Það er eins og 8 milljón smábílum sé ýtt út í sjó á hverju ári. Það er því gríðarlega mikilvægt að við á Íslandi séum meðvituð um að tína upp það rusl sem við sjáum á víðavangi og taka þátt í hreinsunum sem þessum. Þó að við sjálf höfum kannski ekki hent neinu rusli á götuna, þá erum við sem samfélag ábyrg fyrir því með eigin neyslu. Hóum saman samstarfsfólkinu og tínum saman rusl t.d. í nálægð vinnustaðarins. Þetta þarf ekki að vera flókið, tökum þátt, ef ekki í þessari viku þá með einhverjum öðrum hætti.
Menntaskólinn að Laugarvatni er nýr þátttakandi
Við bjóðum Menntaskólann að Laugarvatni velkominn í Grænu skrefin. Hlökkum til að vinna með þeim 🙂
Vínbúðin í Borgartúni hefur lokið öllum fimm skrefunum
Nú fer hver Vínbúð að verða sú síðasta í að innleiða Grænu skrefin. Vínbúðin í Borgartúni innleiddi Grænu skrefin hratt og vel og allt sem nú þarf að gera er að viðhalda þeim. Til hamingju með árangurinn 🙂







