Héraðssaksóknari er nýr þátttakandi
Embætti Héraðssaksóknara hefur verið að innleiða breytingar til að draga úr umhverfismálum um nokkur tíma og hafa þau nú ákveðið að stíga skrefið til fulls og taka þátt í verkefninu með okkar. Við bjóðum þau velkomin í hópinn.
Kolefnissjóður MS
Menntaskólinn við Sund hefur stofnað sérstakan kolefnissjóð sem ætlað er að nota til að kolefnisjafna allar skipulagðar hópferðir á vegum skólans, bæði flug og akstur. Helsta losunin hjá skólanum er eins og hjá flestum ríkisstofnunum vegna samgangna en til þess að draga líka úr losun er verið að bæta aðstöðu fyrir þá sem koma hjólandi eða gangandi til vinnu. Yfirbyggt hjólaskýli er í byggingu og settar verða upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Alþingi heldur áfram með skrefin
Fyrsti Alþingisdagurinn var haldinn nú á föstudaginn s.l. og var viðburðurinn fyrir bæði starfsmenn og þingmenn. Nú eru aðeins örfáir mánuðir síðan Alþingi fagnaði sínu fyrsta Græna skrefi og nú þegar er skref tvö innleitt hjá þeim. Þau hafa gert virkilega vel í innleiðingu á verkefninu og gert margar breytingar í sínu innra starfi. Mikið hefur dregið úr eða þau hafa alveg hætt með t.d. matvöru í smáumbúðum, minnkað umbúðanotkun og plastpokanotkun. Þau hafa einnig verið mjög virk í því að upplýsa starfsmenn og alþingismenn um verkefni sem verið er að innleiða og hvatt alla til þátttöku. Meiri og skipulagðari flokkun fer fram og svo eitt það mikilvægasta er að nú munu þau vinna markvisst að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna samgangna með t.d. notkun á fjarfundarbúnaði.
Hertar kröfur og endurmat á Grænum skrefum
Rúm fjögur ár eru liðin síðan verkefnið Græn skref í ríkisrekstri fór formlega af stað og hefur orðið jákvæð þróun á tímabilinu. Til að viðhalda gæðum verkefnisins þarf reglulega að uppfæra aðgerðir og kröfur sem ríkisstofnunum eru settar. Síðastliðið sumar var gert endurmat á Grænum skrefum í ríkisrekstri og kröfur verkefnisins hertar. Þar sem Umhverfisstofnun er sú stofnun sem veitir öðrum ríkisstofnunum viðurkenningu fyrir innleiðingu Grænna skrefa, fengum við óháðan aðila til að kanna hvort allar aðgerðirnar væru uppfylltar hjá Umhverfisstofnun. Mannvit framkvæmdi úttektina. Niðurstaðan er að Umhverfisstofnun uppfyllir öll skref Grænna skrefa á öllum starfstöðvum sínum (Reykjavík, á Snæfellsnesi, Patreksfirði, Akureyri, í Mývatnssveit, á Egilsstöðum, Hellu og Vestmannaeyjum. „Það er mjög ánægjulegt að við fáum þessa ytri úttekt sem staðfestir okkar árangur, enda ber hinu opinbera og þá ekki síst Umhverfisstofnun að vera öðrum fordæmi, vera til fyrirmyndar í umhverfismálum,“ segir Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar. Næst á dagskrá hjá okkur er að fara í endurmat á verkefninu hjá þeim stofnunum þar sem minnst tvö ár eru liðin frá því að þær tóku síðasta skref sitt. Þannig ætlum við að tryggja það að allir séu virkir í verkefninu.
Fyrsta skrefið í höfn
Hafrannsóknastofnun fékk sitt fyrsta Græna skref afhent en þau höfðu um nokkurn tíma unnið að umhverfismálum en settu þau í skýrara ferli með Grænu skrefunum. Einnig eru skip Hafró í verkefninu sem verður gaman að fylgjast með í framtíðinni.
Mismunandi ljósamiðar
Stundum hentar ekki að nota áminningarmiða sem verkefnið er að bjóða uppá eða að stofnanir vilja gera eitthvað annað og meira í þeirra anda. Þá eru þetta t.d. mjög skemmtilegir miðar sem Hafró gerði, bæði áminning til starfsmanna og vísun í starfsemi stofnunarinnar.
Hjóla, ganga eða með strætó í vinnuna
Átakið hefst á morgun, 3 vikur stútfullar af skemmtilegheitum. Munum að skrá vinnustaðinn og tökum þátt 🙂
Mitt er þitt og þitt er mitt
Höldum hreinu í kringum okkur, það er fyrirtaks hreyfing og gott fyrir umhverfi og sálina að fara út og týna rusl. Það finnst allavega starfsmönnum Umhverfisstofnunar.







