Skil á Grænu bókhaldi ríkisstofnana
Nú eru í gangi skil á Grænu bókhaldi ríkisstofnana, en þeim fer sífellt fjölgandi stofnunum sem skila inn gögnum. Gögn og leiðbeiningar eru inni á síðu vistvænni innkaupa.

Fimm skref í einu!
Umhverfisstofnun, starfsstöð á Suðurlandsbraut 24 tók á móti viðurkenningu Grænna skrefa frá Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrúnu Magnúsdóttur á ársfundi stofnunarinnar. Umhverfisstofnun varð með því fyrst allra stofnana til að klára öll fimm Grænu skrefin. Auk þess fékk starfsstöðin á Patreksfirði viðurkenningu fyrir fjögur Græn skref og starfsstöðvarnar á Mývatni og Akureyri hvor um sig fyrir þrjú Græn skref. Hjá þeim liggur fyrir áframhaldandi vinna við að halda við Grænu skrefunum og við að gera sífellt betur.
Framhaldsskólinn í Mos er nýjasti meðlimurinn

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er stofnun nr. 21 í verkefninu okkar. Skólinn leggur áherslu á að kenna umhverfisfræði, efla umhverfisvitund nemenda og kennara ásamt því að lágmarka umhverfisáhrif rekstursins.
Þess má geta að hús skólans er hannað með áherslu á vistvæna hönnun s.s. með því að nota náttúrulega loftræstingu, nýta dagsbirtu, spara orku og aðstöðu fyrir nemendur og starfsmenn til að notast við vistvænni samgöngur.
Stofnanir, kolefnisjöfnum útblásturinn!

Kolviður er verkefni í umsjón Skógræktarfélags Íslands og Landverndar en verkefni þetta gefur fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum tækifæri til að kolefnisjafna útblástur á koltvísýringi (CO2) með skógrækt.
ÁTVR gengur skrefinu lengra en margir í að minnka umhverfisáhrif sín en árið 2014 gerðu þau samning við Kolvið um að kolefnisjafna útblástur vegna aksturs og flugferða. Heildarlosun koltvísýrings sem ÁTVR hefur bein áhrif á er 102 tonn og 29 tonn vegna flugs og samsvarar losunin gróðursetningu á 1.230 trjám fyrir árið 2014.



