Fjölbrautaskóli Snæfellinga tekur fjórða skrefið

Fjölbrautaskóli Snæfellinga lauk úttekt á fjórða Græna skrefinu í ágúst og á því aðeins eitt skref eftir. Umhverfisstarf þeirra er fjölbreytt, en þau eru til dæmis með rafhleðslustöðvar fyrir rafbíla, gott úrval af lífrænum matvælum á kaffistofu starfsfólks og endurnýta notaða matarolíu í dýrafóður.

Við óskum þeim innilega til hamingju með flottan árangur!

Á myndinni eru (frá vinstri til hægri) Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari, Ólafur Tryggvason umsjónarmaður fasteigna og Lilja Magnúsdóttir skólafulltrúi, með þetta dásamlega útsýni yfir Kirkjufell.

Jafnréttisstofa komin með þrjú skref

Jafnréttisstofa lauk í gær þriðja Græna skrefinu og heldur ótrauð áfram í vinnunni við það fjórða og fimmta. Okkur sem störfum við Grænu skrefin finnst alltaf gaman að komast í staðúttektir og sjá hvernig vinnustaðir útfæra ýmsar aðgerðir. Jafnréttisstofa hefur skipt öllum einnota batteríum út fyrir endurhlaðanleg batterí og eru með þetta einfalda kerfi til að koma halda utan um rafhlöðurnar, hlaðnar og óhlaðnar.

Óhlaðin og hlaðin batterí

Rafhlöður leynast á nokkrum stöðum á flestum skrifstofum, t.a.m. í þráðlausum tölvumúsum, í veggklukkum og ekki síst í ýmsu ljósaskrauti sem dregið er fram myrkustu mánuðina og í kringum jól. Við óskum Jafnréttisstofu til hamingju með þriðja skrefið og þökkum fyrir innblásturinn!

Ásta Sigrún Helgadóttir og Jóhannes Bjarki

Umboðsmaður skuldara lýkur fimmta skrefinu

Umboðsmaður skuldara hefur nú lokið við  fimmta og síðasta skrefið í verkefni Grænna skrefa í ríkisrekstri.

Verkefnið hefur gengið vel og fær embættið hrós fyrir hversu hratt og vel var unnið að innleiðingu skrefanna fimm, eftir að vinna við innleiðinguna hófst. Embættið fékk fyrsta skrefið staðfest þann 12.júlí 2021, annað skrefið í október, það þriðja í janúar og fjórða í apríl sl.  Myndin var tekin í tilefni af staðfestingunni á fimmta skrefinu en þar tók Ásta Sigrún Helgadóttir við viðurkenningu frá Jóhannesi Bjarka frá Umhverfisstofnun.

Ásta Sigrún Helgadóttir og Jóhannes Bjarki

 

 

 

Fimmta skref Sýslumannsins á Suðurnesjum

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum lauk fimmta og síðasta skrefinu á dögunum. Meðal þess sem embættið hefur unnið að, er að vera með dagatal yfir umhverfisviðburði yfir árið. Sem dæmi má nefna að farið er í flokkunarátak árlega, úrgangur vigtaður og haldið upp á samgönguvikuna sem er í september.

Það er góð hugmynd að útbúa umhverfisdagatal fyrir árið, líkt og Sýslumaðurinn á Suðurnesjum, til að tryggja að umhverfisstarfið haldist við eftir að vinnu við innleiðingu skrefanna er lokið. Við óskum embættinu til hamingju með fimmta skrefið og óskum því góðs gengis í framhaldinu.