Skógrækt til kolefnisjöfnunar
Í sóknaráætlun um loftslagsmál kemur fram að tækifæri Íslands í kolefnisjöfnun felast fyrst og fremst í skógrækt, landgræðslu og endurheimt votlendis. Þá er upplagt fyrir stofnanir að taka þátt í t.d. gróðursetningu með skógræktarfélögum eða öðrum verkefnum. Skógræktarfélag Hafnarfjarðar heldur sjálfboðaliðadag sinn á laugardaginn 24. september, milli kl. 10.00 og 12.00. Allir eru velkomnir og í lokin er boðið uppá hressingu. Frekari upplýsingar er hægt að fá hér.

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti komið með þrjú Græn skref
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið fagnaði öðru og þriðja skrefinu um daginn og stefna að því að innleiða fjórða skrefið um áramótin. Hér er flottur hópur starfsmanna ráðuneytisins að fagna áfanganum með köku og kaffi.
Vínbúðin Heiðrún er komin með öll fimm skrefin
Vínbúðin Heiðrún hefur bæst í hóp þeirra stofnana/starfsstöðva sem lokið hafa öllum fimm Grænu skrefunum. Innilega til hamingju með flottan árangur 🙂

Samgönguvika 2016
Þá er hin árlega Samgönguvika hafin. Vikan er samevrópsk og er til þess ætluð að vekja athygli á og hvetja til vistvænni samgöngumáta. Ávinningur umhverfisvænni samgöngumáta er ótvíræður, hann er ódýrari, skemmtilegri, betri fyrir umhverfið og betri fyrir heilsuna okkar. Munum eftir bíllausa deginum þann 22. september en þá er upplagt að hvetja alla starfsmenn til að mæta til vinnu með umhverfisvænni hætti.
Dagskrá vikunnar má sjá hér. Auk þess er Samgönguvika á facebook.com/samgonguvika
Saman gegn sóun – Umhverfissýning í Perlunni
Vekjum athygli á umhverfissýningunni þar sem opinberir aðilar og fyrirtæki kynna umhverfismál. Sýningin verður opin til 17.30 á laugardag 10. september. 




