Úrskurðarnefnd Velferðarmála komin í Grænu skrefin

Hjá Úrskurðarnefndinni eru umhverfismálin þegar komið nokkuð vel á veg en þau ætla að taka þátt og innleiða umhverfismálin enn markvissara. Velkomin í verkefnið og hlökkum til að vinna með ykkur.

Vinnueftirlitið í Grænu skrefin

Vinnueftirlit ríkisins er komið í verkefnið okkar og hlökkum við til að vinna með öllum rúmlega 70 starfsmönnum þeirra 🙂

Hafrannsóknastofnun er komin í Grænu skrefin

Þau eru stærsta rannsókna- og ráðgjafastofnun á sviði haf- og vatnarannsókna á Íslandi. Starfsmenn þeirra eru 180 talsins og sinna verkefnum á sviði rannsókna hafs og vatna, fiska og lífríkis þeirra. Einnig að gera tillögur um friðun og veiði. Hlökkum til samvinnunnar 🙂

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Hefur skráð sig til þátttöku, við erum mjög glöð að fá fleiri skóla til liðs við okkur, enda svo mikilvægt að unga fólkið okkar læri snemma um umhverfismál.

.

Dómsmálaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið ætla saman að vinna að innleiðingu Grænna skrefa. Við hlökkum mikið til samstarfsins 🙂

Isavia Egilsstaðaflugvöllur kominn með tvö skref

Egilsstaðaflugvöllur fengu úttekt og viðurkenningu fyrir annað Græna skrefið. Á vinnustaðnum er mikil samstaða um að gera hlutina vel sama hvort það séu umhverfismál eða annað. Starfsmenn þar ganga líka aðeins lengra og gróðursetja árlega tré á eigin landi. Til hamingu með árangurinn 🙂

Vínbúðin í Vestmannaeyjum hefur lokið öllum fimm skrefunum

Nú á dögunum fór starfsmaður Umhverfisstofnunar í Vestmanneyjum í úttekt hjá Vínbúðinni og veitti þeim viðurkenningu fyrir skref 3, 4 og 5. Vínbúðin í Vestmannaeyjum hefur þar með lokið öllum Grænu skrefunum og munu án efa standa sig vel við að viðhalda þeim.

45 þátttakandinn kominn til leiks

Landsbókasafn Íslands – Háskólasafn er nýr þátttakandi í verkefninu. Safnið sér um söfnun og varðveislu á öllum íslenskum gögnum. Einnig sinnir safnið þjónustu við Háskóla Íslands hvað varðar kennslu og rannsóknir. Á safninu starfa 80 manns og við hlökkum til að vinna með þeim öllum.

RÚV með fræðslu um loftslagsbreytingar

RÚV hefur staðfært og gert aðgengilegt á vefsíðu sinni fræðsluefni um áhrif loftslagsbreytinga á jörðina. Efnið er sett fram á skemmtilega gagnvirkan og einfaldan hátt, upplýsingum sem auðvelt er að miðla áfram. Hversu mikið heldur þú að lofthitinn á jörðinni hafi hækkað frá 1850?

Bílastæði fyrir rafbíla hjá Stjórnarráðinu

Rekstrarfélag Stjórnarráðsins er að ljúka við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafmagnsbíla á bílastæðum sem Rekstrarfélag Stjórnarráðsins hefur umsjón með. Til að byrja með verða 6 bílastæði ætluð til að hlaða rafbíla og verður aðgangur að hleðslustöðvunum opinn þeim sem hafa aðgang að bílastæðum ráðuneytanna, en síðar munu þær verða aðgangsstýrðar og mögulegt gjald innheimt fyrir hleðsluna.