Vínbúðin á Ólafsvík var að ljúka við fyrstu tvö Grænu skrefin
Innilega til hamingju með fyrstu tvö Grænu skrefin. Eins og hjá öðrum Vínbúðum verður örugglega ekki langt þangað til hin skrefin bætast við.
Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi
Í skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gaf út kemur fram að losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi mun aukast um 50-100% á næstu árum ef ekkert verður að gert. Stjórnvöld munu því ekki geta staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu. Margt er þó hægt að gera eins og bent er á í skýrslunni s.s. rafbílavæða Ísland. Í skýrslunni er mikið fjallað um stóru málin en ekki má gleyma þeirri vinnu sem stofnanir í Grænum skrefum eru að gera. Með því að draga úr orkunotkun, efnisnotkun s.s. pappír, ræstiefnum og eldsneyti, auka nýtingu á hlutum, draga úr innkaupum og úrgangsmyndun eru stofnanir að leggja sitt af mörkum til að breyta viðhorfi okkar til auðlindanýtingar.
Vínbúðin í Skeifunni náði öllum Grænu skrefunum
Vínbúðin tók Grænu skrefin með áhlaupi og kláraði þau öll í einu. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂
Vínbúðin á Akranesi var að ljúka við öll skrefin
Ofurhresst starfsfólk Vínbúðarinnar tók á móti fulltrúa Grænna skrefa í dag og viðurkenningu fyrir að hafa lokið innleiðingu á öllum Grænu skrefunum. Árið 2015 var farið í töluverðar breytingar á húsnæði Vínbúðarinnar og meðal annars skipt út flúrperum fyrir LED ljósaperur. Á árinu 2016 dró þar af leiðandi úr orkunotkun um 40%.
Sjórinn fyllist af plasti
Sárþjáðan hval þurfti að aflífa í Noregi á dögunum vegna þess að magi hans var fullur af plasti og rusli. Eiginleikar plasts eru þannig að endingartími þess er yfirleitt nokkuð mikill, það er slitsterkt svo það hverfur ekki eða eyðist heldur brotnar í smærri og smærri hluta í náttúrunni (örplast). Einnig er algengt að dýr bíta í plastrusl eða naga það í sundur í smærri hluta. Plast sem fer ekki réttar leiðir til endurvinnslu eða förgunar lendir því oft úti í náttúrunni (höfum, ám og vötnum) þar sem það getur valdið lífríkinu skaða. Það sem við getum gert hér er að sjá til þess að allt plast fari til endurvinnslu og tína upp eitt og eitt plastrusl af götunum svo það á endanum endi ekki í hafinu.
Frekari upplýsingar um einnota plastumbúðir
Frétt um plastmengun í hafi við Ísland
Frétt um plast í maga hvals við Noreg
Vínbúðin í Austurstræti hefur lokið öllum fimm skrefunum
Innilega til hamingju með árangurinn, nú er bara að viðhalda góðri vinnu og halda ótrauð áfram.
Til hamingju SVS með þriðja Græna skrefið
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar var að fá sitt þriðja Græna skref staðfest í dag. Innilega til hamingju með áfangann 🙂
Listasafn Íslands, velkomin í Grænu skrefin
Við bjóðum Listasafn Íslands velkomin í hóp grænna stofnana, hlökkum til að vinna með þeim 🙂







