5 atriði sem við þurfum að muna eftir áður en við förum í jólafrí
1. Lækkum hitann á skrifstofum
2. Tökum öll raftæki úr sambandi eða slökkvum alveg á þeim (munum að þegar raftæki eru á standby þá „leka“ þau rafmagni sem kostar orku og pening).
3. Slökkvum á öllum ljósum
4. Lokum gluggum og hurðum vel og drögum gluggatjöld fyrir
5. Látum húsverði/aðra vita ef eitthvað virkar undarlegt s.s. leki í vask eða annað.
Landgræðsla ríkisins viðurkennd fyrir fyrsta Græna skrefið
Landgræðsla ríkisins er nú komin með fyrsta Græna skrefið en það var mjög gaman að koma í heimsókn til þeirra í Gunnarsholt. Græna teymið þeirra var með margar skemmtilegar útfærslur að því hvernig unnið er að málum. Þau t.d. máluðu sjálf á könnurnar sínar til að minnka uppvask, gerðu flottar merkingar fyrir úrgangsflokkana sína (sjá ef smellt er á frétt) og svona ítarlegar merkingar um stofnun hafa bara ekki sést áður 🙂



Græn góð ráð um jól og áramót
Það er ansi margt sem við getum gert til að gera jólahaldið okkar aðeins umhverfisvænna. Er stofnunin t.d. að gefa starfsmönnum upplifun í gjöf í stað hluta? Er stofnunin að gefa út rafrænt jólakort? Eru keypt umhverfisvottuð kerti? Hægt er að kaupa umhverfisvottaðan jólapappír eða nota frumlegar aðrar leiðir til að pakka inn jólagjöfunum. Á vef Umhverfisstofnunar eru ýmis góð ráð fyrir alla þegar huga þarf að umhverfisvænu jólahaldi.

HVE fyrsta heilbrigðisstofnunin komin með Græn skref
Heilbrigðisstofnun Vesturlands; starfsstöðvar í Borgarnesi, Grundarfirði, Ólafsvík og Stykkishólmi fengu á dögunum allar viðurkenningu fyrir fyrstu tvö Grænu skrefin. Þau eru öll vel að þessari viðurkenningu komin enda á umhverfisvænn hugsanaháttur sér langa sögu á Snæfellsnesi og Vesturlandi. Töluvert er síðan stofnanirnar fóru að vinna að umhverfisvænni starfsháttum og er gengið oft langt í hvers kyns nýtni. Dæmi eru um fleiri lítra sparnað í ræstingaefnum eftir að skammtastærðir voru betur aðgættar, matarolía úr eldhúsi HVE á Stykkishólmi er hreinsuð og notuð á bíla, starfsmenn nýta ferðir milli starfsstöðva í vöruflutninga og ýmislegt annað. Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæra vinnu 🙂 (Á mynd: Hafdís Bjarnadóttir tók á móti viðurkenningunni fyrir HVE Stykkishólmi).

Ásgeir Sæmundsson tók á móti viðurkenningunni fyrir HVE Borgarnesi.

Áshildur Erlingsdóttir tók á móti viðurkenningu fyrir HVE Grundarfirði.

Þórarinn Steingrímsson tók á móti viðurkenningu fyrir HVE Ólafsvík.
Vínbúðin á Stykkishólmi komin með tvö Græn skref
Í nýafstaðinni ferð á Vesturland fékk Vínbúðin á Stykkishólmi viðurkenningu fyrir tvö Græn skref. Erlu Lárusdóttur fannst þetta lítið mál enda hefur búðin lengi unnið að því að flokka allt sorp og nýta allt vel sem til fellur. Má þá nefna að gamlir reikningar sem ekki þarf að geyma lengur eru notaðir aftur í útprentun og stórir ruslapokar eru oft fengnir notaðir frá öðru fyrirtæki í bænum. Innilega til hamingju með árangurinn og flott starf í þágu umhverfismála 🙂





