Umhverfisvænni bílþvottur
Nú þegar vorið er komið er líklegt að margir bíleigendur muni hugsa sér til hreyfings og skola vetraróhreinindin af bílum.
Þá er mikilvægt að hafa í huga hvað er best fyrir umhverfið
1. Þvo bílinn á bílaþvottastöð þar sem frárennslisvatn er hreinsað. (Þegar bíll er þveginn heima fer afrennsli í ofanvatn án hreinsunar)
2. Sleppa efnum við að þrífa bílinn eða
3. Fá umhverfisvottuð hreinsiefni, bón og aðrar vörur
Gleðilegt sumar!
Fjölbrautaskóli Snæfellinga er nýr þátttakandi
Velkominn í verkefnið Græn skref í ríkisrekstri. Fjölbrautaskólinn sérhæfir sig í sveigjanlegu og nýstárlegu kennslufyrirkomulagi en nemendur vinna nær öll verkefni eingöngu á tölvum. Umhverfissmálin eru þegar í nokkuð góðu horfi enda hefur Snæfellsnesið allt lengi státað af miklu umhverfisstarfi. Grænu skrefin munu þó koma sterk inn í starfið til að skerpa á því sem þegar er gert og hvetja til nýbreytni. Hlökkum til samstarfsins 🙂
Fimm Vínbúðir fengu fimm skref
Grænu skrefin hafa verið á ferð og flugi um allt land síðustu vikur og núna voru það Vínbúðirnar í Borgarnesi, Stykkishólmi, Búðardal, Sauðárkróki og Akureyri sem fengu úttekt og afhendingu fimm Grænna skrefa. Innilega til hamingju með árangurinn.
Vínbúðin í Hafnarfirði og Hólmavík fengu öll skrefin sín
Vínbúðin Álfrún í Hafnarfirði fékk afhent öll fimm Grænu skrefin og Vínbúðin í Hólmavík fékk skref 3, 4 og 5. Innilega til hamingju með flottan árangur.
Flugturn Keflavíkur fékk sitt fyrsta Græna skref
Isavia flugturn Keflavíkur fékk afhent sitt fyrsta Græna skref en þar eru starfsmenn jákvæðir út í flokkun og annað er varðar umhverfismálin og finnst ekkert mál að gera þessar litlu breytingar. Innilega til hamingju með áfangann 🙂
Á myndinni eru María Kjartansdóttir, verkefnastjóri umhverfismála hjá Isavia, Hólmfríður Þorsteinsdóttir, Umhverfisstofnun, Haraldur Ólafsson yfirflugumferðarstjóri og Valey Erlendsdóttir umhverfisfulltrúi flugturnsins.
Sex Vínbúðir fengu öll fimm skrefin nú á dögunum
Innilega til hamingju Vínbúðirnar á Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Neskaupsstað, Ólafsvík, Grundarfirði og Kringlan. Allar Vínbúðirnar voru að ljúka við öll fimm skrefin sem er frábær árangur. Eins og áður eru starfsmenn vel upplýstir um umhverfismálin og leggja sig mikið fram við að draga úr umhverfisáhrifum vegna reksturs þeirra.
Skilum grænu bókhaldi
Grænt bókhald er einfalt verkfæri fyrir ríkisstofnanir til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum vegna skrifstofureksturs, notað til að fylgjast með helstu umhverfisþáttum, s.s. úrgangi, rekstrarvörum og eldsneyti og sinna eftirfylgni ef bregðast þarf við aukinni auðlindanotkun og þar með auknum kostnaði.
Hægt er að hafa samband við Hólmfríði Þorsteinsdóttur hjá Umhverfisstofnun ef einhverjar spurningar eru This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Slökkva eða ekki slökkva á tölvubúnaði?
Skiptir máli að slökkva á tölvum og tækjum þegar við hættum notkun á þeim? Hversu lengi þarf ég að vera í burtu til að það borgi sig að slökkva á tölvunni? En skjánum? Svarið í stuttu máli er að öll tæki nota rafmagn og því ættum við öll að finna leiðir til að draga sem mest úr óþarfa notkun. Það getur munað einhverju á rafmagnsreikningi heimilisins þegar við slökkvum á öllum tækjum sem ekki eru í notkun en munurinn verður enn sýnilegri þegar um stóra vinnustaði er að ræða. Hér má til dæmis taka tölvur sem dæmi en þar þarf að hugsa um nokkur atriði:
1. Við innkaup, vertu viss um að tækin séu með vottun um góða orkunýtingu s.s. Energy Star eða TCO
2. Ekki nota skjáhvílu (screensaver), þá er skjárinn í raun og veru í notkun og eyðir þannig orku
3. Hafðu tölvurnar stilltar á biðstöðu þegar þær eru ekki í notkun t.d. eftir 20 mín og skjáir eftir 15 mín.
4. Slökktu á tölvuskjánum að minnsta kosti í lok dags.
Mýtur um að slökkva og kveikja á tölvubúnaði:
1. Fer illa með tækjabúnað þegar slökkt er á tölvum á hverjum degi eða að tölvur fari í svefnham eftir 30 mín? Svarið er nei, það þarf að slökkva mun örar á þeim til að það hafi áhrif og yfirleitt er eitthvað annað ónýtt í tölvunum áður en það að slökkva og kveikja á þeim fer að hafa áhrif.
2. Fer ekki meiri orka í að kveikja alltaf uppá nýtt á tölvunum? Nei það fer ekki meiri orka í það að kveikja á tölvunni á morgnana heldur en að láta hana ganga án notkunar í til dæmis yfir nótt.
Tæki sem eru í svokallaðri biðstöðu eða „stand- by“ eru að eyða rafmagni án þess að við séum að nota tækin, sem skilar sér í hærri reikningi fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir
Stöku sinnum heyrum við á Íslandi „af hverju á ég að spara orku, orkan okkar er græn“ Jú orkugjafarnir okkar eru endurnýjanlegir en það þýðir ekki að umhverfisáhrif framleiðslunnar séu engin né réttlætir það sóun. Ef við tökum virkjanir með uppistöðulóni sem dæmi, þá fylgja slíkum framkvæmdum og rekstri ýmis neikvæð umhverfisáhrif s.s. röskun á landi, vistkerfum, bygging og rekstur mannvirkja svo fátt eitt sé nefnt.
Enn fleiri Vínbúðir voru að ljúka 5 skrefum
Vínbúðirnar í Mosfellsbæ, Spönginni, Þorlákshöfn og á Dalvegi voru að ljúka við öll fimm skrefin. Innilega til hamingju 🙂








