Hljóðbókasafn Íslands
Velkomin í Grænu skrefin. Hlökkum til að vinna með ykkur 🙂
Sex Vínbúðir á Suðurlandi komnar með öll skrefin
Í frábæru veðri gerðu Grænu skrefin sér dagsferð um Suðurlandið þar sem kíkt var í einar sex Vínbúðir, sem allar hafa lokið öllum fimm skrefunum. Almennt eru hlutirnir í afar föstu móti hjá þeim öllum og eru þau vel meðvituð um umhverfismálin
Gefum fuglunum afganga
Væri ekki gaman að hafa smá fuglalíf fyrir utan skrifstofuna? Þá er upplagt að taka saman brauð, fræ, korn og annað sem fellur til úr mötuneytunum og setja út á svalirnar, stéttina eða garðinn. Flugfjarskipti Isavia gera það iðulega og hafa því mikið og fjölbreytt fuglalíf í bakgarðinum
Vínbúðin í Skútuvogi fær öll fimm skrefin
Núna var það Vínbúðin í Skútuvogi sem var að ljúka við öll fimm Grænu skrefin. Innilega til hamingju með árangurinn.
Vínbúðin á Patreksfirði lauk nýverið við skref 3, 4 og 5
Starfsmaður okkar á sunnanverðum Vestfjörðunum kíkti í heimsókn í Vínbúðina á Patreksfirði. Úttektin gekk vel og Vínbúðin fékk þar með viðurkenningu fyrir síðustu þrjú skrefin. Til hamingju 🙂
3, 4 og 5 skref til Vínbúðarinnar á Seyðisfirði
Innilega til hamingju með flottan árangur 🙂
Vínbúðirnar í Reykjanesbæ og Grindavík fengu viðurkenningu
Vínbúðirnar í Reykjanesbæ og Grindavík hafa nú báðar lokið við öll fimm Grænu skefin, innilega til hamingju með flottan árangur.
Drögum úr óþarfa einnota vörunotkun
Á hverjum degi fáum við eitthvað í hendurnar eða kaupum okkur eitthvað sem telst sem einnota notkun. Hér falla undir vörur eins og einnota kaffibollinn sem þú grípur með þér, rörið sem er sett í drykkinn þinn, pokinn sem varan þín er sett í áður en þú nærð að segja nei. Í hverri svona vöru felst mikil sóun en á bak við allar vörur felast neikvæð umhverfisáhrif í t.d. framleiðslu, flutningum, sölu og síðan förgun. Þessi umhverfisáhrif margfaldast síðan þegar við neytum sífellt fleiri slíkra einnota vara í stað þess að nota margnota vörur eða sleppa einhverjum óþarfa.
Vínbúðin á Egilsstöðum með fimm Græn skref
Vínbúðin á Egilsstöðum var nú að ljúka við skref 3, 4 og 5 og hlaut viðurkenningu þess eðlis frá starfsmanni okkar fyrir austan. Innilega til hamingju með áfangann, nú er bara að viðhalda góðum árangri.
Rekstrarfélag Stjórnarráðsins er nýr þátttakandi
Rekstrarfélag Stjórnarráðsins er 40 þátttakandinn í verkefninu okkar. Rekstrarfélagið er afar mikilvægur hluti af rekstri ráðuneytanna en sjá þau til dæmis um miðlæg innkaup og utanumhald á sorphirðu og ræstingu fyrir öll ráðuneytin. Við bjóðum þau velkomin í verkefnið og hlökkum til að vinna með þeim.









