Landsvirkjun á Háaleitisbraut komin með skref 2 og 3
Aðalskrifstofa Landsvirkjunar á Háaleitisbraut tekur Grænu skrefin með trompi en í október fengu þau viðurkenningu fyrir fyrsta skrefið og hafa nú einnig lokið skrefum 2 og 3. Umhverfismál eru ekki ný af nálinni hjá Landsvirkjun og hafa þau um áraskeið fylgst vel með losunartölum, umhverfisáhrifum virkjana og tengdra mála. Grænu skrefin hafa þó hjálpað þeim við að líta sér nær og skoða skrifstofureksturinn betur en þau flokka nú meira, hafa hætt með einnota hluti, dregið úr smáumbúðum, auka hlut lífrænni matvæla í mötuneyti og fleira því tengt. Til hamingju með árangurinn 🙂
Aðalbygging með fyrsta skrefið
Aðalbygging Háskóla Íslands fékk afhent sitt fyrsta Græna skref. Jón Atli Benediktsson rektor háskólans tók á móti viðurkenningunni og sagði við það tilefni að „umhverfismál væru ein allra helsta áskorun sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag og vill Háskóli Íslands leggja sitt af mörkum m.a. með þátttöku í verkefni eins og Grænum skrefum og sýna ábyrgð í verki.“ Það er ljóst að stór stofnun eins og Háskóli Íslands getur haft gríðarmikil áhrif en yfir 1500 manns starfa þar og árlega eru um 13.000 nemendur í Háskólanum. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við innleiðingu verkefnisins hjá Háskóla Íslands, til hamingju með árangurinn 🙂

