Til hamingju Náttúrufræðistofnun
Náttúrufræðistofnun Íslands, starfsstöð í Urriðaholti hlaut í dag viðurkenningu fyrir að hafa lokið fyrsta skrefinu. Nú stefna þau á að klára næstu skref fljótt og vel!

Á myndinni eru Guðmundur Guðjónsson, Emilía Ásgeirsdóttir úr umhverfisnefndinni, Hólmfríður Þorsteinsdóttir, Umhverfisstofnun og Jón Gunnar Ottósson, forstjóri stofnunarinnar.
Umhverfisstofnun með umsjón Grænna skrefa

Við viljum vekja athygli á því að Umhverfisstofnun fer nú með rekstur verkefnisins Græn skref í ríkisrekstri. Hvetjum alla til að hafa samband við starfsmann þess, Hólmfríði Þorsteinsdóttur ef einhverjar spurningar koma upp.
Náttúrufræðistofnun Íslands í úttekt á fyrsta skrefi
Náttúrufræðistofnun, Urriðaholti vinnur nú að því að klára fyrsta Græna skrefið en farið var í úttekt þangað fyrir skömmu. Stofnunin stendur sig frábærlega vel í umhverfismálunum og þá sérstaklega við að nýta alla hluti vel t.d. eru gömul gróðurkort notuð í gjafapappír, skrifstofuvörur allar endurnýttar eins og hægt er. Starfsmenn fá síðan sérstakt lof fyrir að endurnýta hluti úr gömlum tölvum til að uppfæra nýjar. Frábær vinna hjá stofnuninni.

Viðurkenning í höfn hjá Skipulagsstofnun
Skipulagsstofnun hlýtur viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið sem hún stígur.

Hér má sjá Ásdísi Hlökk forstjóra og teymið, Birnu, Ingu Lóu og Sigurð sposk á svip
Þrjár stofnanir hafa skráð sig til leiks
Ríkiskaup, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa skráð sig til leiks í Grænu skrefunum. Gangi ykkur vel!
Jólastemming og viðurkenning hjá LMÍ
Það var jólalegt hjá LMÍ í dag þegar sendinefnd mætti með viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið. Allir starfsmenn í jólapeysu og haldin var hangikjötsveisla með einstökum jólagraut og leikjum.
LMÍ ætla að ljúka að minnsta kosti öðru Grænu skrefi á nýju ári og eru starfsmenn hvergi nærri af baki dottnir. Fylgist með þeim.

Hér má sjá Jóhönnu hjá LMÍ, Huldu Steingrímsdóttur frá Alta sem gerði úttektina, Björgvin Valdimarsson formann stýrihóps um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur og Magnús Guðmundsson forstjóra LMÍ.
Grænum skrefum í ríkisrekstri hleypt af stokkunum
Á morgunverðarfundi 26. nóv var verkefninu Græn skref í ríkisresktri formlega hleypt af stokkunum. Á fundinum voru gefin góð dæmi frá Landspítala og rætt um árangur stofnana sem hægt er að ná með einföldum aðgerðum.
![]()
Frá kynningu Grænna skrefa í ríkisrekstri. F.v. Elva Rakel Jónsdóttir, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun, Hrönn Hrafnsdóttir, verkefnastjóri Grænna skrefa hjá Reykjavíkurborg, Birna Helgadóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samgöngumála hjá Landspítala og Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands sem var fundarstjóri.
Samkvæmt stefnu ríkisins um vistvæn innkaup og grænan ríkisrekstur skal minnka umhverfisáhrif opinberra innkaupa og aðstoða ríkisstofnanir við að grænka rekstur sinn og stuðla að sjálfbærri neyslu. Stofnanir og Reykjavíkurborg sem unnið hafa að umhverfismálum eru farin að sýna árangur til bættrar heilsu, minni rekstrarkostnaðar og minni umhverfisáhrifa. Græn skref Reykjavíkurborgar hafa verið aðlöguð fyrir ríkisrekstur og gefst nú öllum stofnunum kostur á að nýta sér Græn skref í ríkisrekstri, einfalt og aðgengilegt verkfæri. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landmælingar Íslands og Skipulagsstofnun eru fyrstu ríkisstofnanirnar til að aðlaga starfsemi sína Grænum skrefum í ríkisrekstri.
Gestir á kynningu Grænna skrefa í ríkisrekstri voru áhugasamir.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið stígur fyrsta Græna skrefið
Ráðuneytið hefur staðist úttekt á fyrsta Græna skrefinu í ríkisrestri og undirbýr nú vinnu við að taka næsta skref.

Þróunarhópur Grænna skrefa
Stofnanir umhverfis- og auðlindaráðuneytisins tóku þátt í að þróa Grænu skrefin.

Vorið 2014 voru Græn skref Reykjavíkurborgar aðlöguð ríkisrekstri og tóku þátt fulltrúar Landgræðslu ríkisins, Mannvirkjastofnunar, Úrskurðarnefndar skipulags- og auðlindamála, Náttúrufræðistofnunar, Skipulagsstofnunar, Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Landmælinga Íslands, Umhverfisstofnunar, ÍSOR, Úrvinnslusjóðs, Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og Skógræktar ríkisins. Hér má sjá fulltrúa þessara stofnana.
Einfaldir flokkar Grænna skrefa

Í hverju skrefi eru aðgerðir í hverjum þessara flokkar. Málið er einfalt.







