Fyrsta skref Menntamálstofnunar

Viðurkenning fyrir fyrsta Græna skrefið var afhent Menntamálastofnun á föstudaginn s.l. Þar er flott umhverfisnefnd að störfum sem unnið hefur að innleiðingu verkefnisins. Hlökkum til frekari samstarfs 🙂

Bann á 10 einnota plastvörur?

Evrópuþingið samþykkti á dögunum að vinna að því að banna 10 tegundir af einnota plastvörum (diskar, hnífapör, plastglös, rör og hrærur, eyrnapinnar, blöðrupinnar, drykkjarflöskur, tappar, lok og plastumbúðir, sígarettufilterar, blautþurrkur og plastpokar og blöðrur). Þetta eru vörur sem þegar eru til umhverfisvænni staðgengivörur og þær vörur sem finnast helst sem rusl á ströndum. En um 50% af því rusli sem finnst eru þessir 10 einnota vöruflokkar. Auk þess eru tillögur um bann á svokölluðum oxo-degradable plastvörum og frauðplasti. Einnig voru settar fram tillögur um endurvinnslu og söfnun á veiðarfærum sem eru 27% af því plasti sem finnst á ströndum. Þessar tillögur Evrópuþingsins voru samþykktar með miklum meirihluta og munu nú fara til umræðu í Evrópuráðið og svo áfram til samþykktar hjá Evrópusambandsríkjum. Frekari upplýsingar má sjá hér.

Fjölbrautaskólinn við Ármúla er komin í Grænu skrefin

Skólinn hefur lengi framfylgt metnaðarfullri umhverfisstefnu og hefur meðal annars fengið Grænfánann afhentann sex sinnum og tekur afgerandi afstöðu með umhverfisvænni samgöngum með því að selja aðgang að bílastæði skólans. Hlökkum til að vinna með þeim.

Alþingi tekur fyrsta skrefið

Alþingi bættist í dag í hóp stofnana sem hafa fengið viðurkenningu Grænna skrefa, en þau luku nú fyrsta skrefinu. Hjá Alþingi hefur áhugi á umhverfismálum aukist markvisst og getur starfsfólk vinnustaðarins verið stolt af áfanga dagsins. Þau ætla að halda ótrauð áfram með næstu skref. Meðal aðgerða sem Alþingi hefur innleitt eru:
o Að bjóða uppá sódavatn í vél í stað þess að starfsmenn og þingmenn kaupi sér nýja og nýja flösku. Allir starfsmenn og þingmenn hafa auk þess fengið margnota vatnsflöskur að gjöf.
o Flokkun á úrgangi hefur aukist um leið og það er líka skipulagðara og aðgengilegra
o Fleiri koma með umhverfisvænum hætti til vinnu en áður
o Alþingi hefur hafið vinnu við að draga úr magni fjölpósts sem kemur til þeirra. Þá hefur verið sett upp lesstofa þar sem hægt er að skoða blöð og póst sem berst Alþingi. Innilega til hamingu með áfangann 🙂

Isavia, Flugfjarskipti með 5 skref

Flugfjarskipti hjá Isavia voru fyrsta starfsstöðin þeirra til að ljúka innleiðingu á fimmta Græna skrefinu og einnig að fá vottun fyrir ISO 140001 umhverfisstjórnunarkerfi. Það hefur verið svo gaman að fá að vera með þeim í þessari vinnu enda innleiðingin gengið með eindæmum hratt og vel. Þau hafa til að mynda gengið lengra en flestir í að draga úr úrgangsmyndun með því að fá hænur sem borða lífræna úrganginn að mestu leyti. En það eru nú kannski líka fáar stofnanir í aðstöðu til þess, auk þess hefur verið passað vel uppá að þjónustuaðilar sem koma með mat til starfsmanna bjóði ekki eða sem minnst uppá matvæli í einnota umbúðum. Til hamingju með árangurinn 🙂

 

Óbyggðanefnd er nr. 62

Óbyggðanefnd er sjálfstæð úrskurðarnefnd sem starfar á grundvelli þjóðlendulaga og er hlutverk þeirra að skera úr um hvaða land er þjóðlenda og úrskurða um eignarréttindi. Nú ætla þau líka að taka á umhverfismálunum í rekstri sínum og verður gaman að fá að fylgjast með því. 

Neyslan er fíkn sem við viljum ekki láta lækna okkur af

Voru orð Stefáns Gíslasonar umhverfisstjórnunarfræðings í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2. Tilefnið var útgáfa skýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna sem sendi mjög skýr skilaboð um að tafarlausra aðgerða væri þörf af hendi stjórnvalda í heiminum. Í raun sé ástandið enn alvarlegra en menn hafi áður haldið fram og nauðsynlegt sé að halda hlýnun jarðar undir 1,5° en ekki 2° eins og áður. Fari hlýnun upp fyrir 2° þá mun hættan á enn öfgakenndari flóðum, hitabylgjum, skógareldum, þurrkum aukast svo ekki sé minnst á aukna fátækt fyrir hundruði milljóna manns. Skýrslan byggir á rannsóknum 90 vísindamanna frá 40 löndum um hættuna sem stafar af hlýnun jarðar.

Hress hópur skógræktarfólks

Nú er úttektum á starfsstöðvum Skógræktarinnar (12 talsins) lokið með því að þær eru nú allar komnar með fyrsta Græna skrefið. Það var mjög gaman og hressandi að hitta starfsfólk stofnunarinnar enda mikið umhverfisfólk. Skógræktin er meðal annars farin að bjóða uppá flokkun úrgangs á tjaldsvæðum sínum á Vöglum og Hallormsstað, stöðugt er verið að skoða og bæta aðstæður skógarhöggsfólks með því að nota rafmagnssagir og er stofnunin t.d. að leita að rafmagnsbílum sem hægt er að nota á svæðum þeirra, oft við krefjandi aðstæður. Starfsfólk er einnig mjög nægjusamt og nýtið og nota mikið af afurðum skóganna til að búa til húsgögn, leiktæki og annað sem nýtist bæði þeim og gestum skóganna. Innilega til hamingju með fyrsta skrefið. 

Hér má sjá myndir af starfsmönnum Skógræktarinnar sem innleitt hafa verkefnið og tóku á móti viðurkenningunni. 

Skógræktin á Egilsstöðum

Skógræktin Hallormsstað

Skógræktin á Ísafirði

Skógræktin Vesturlandi (Hvanneyri og Hvammi)

Skógræktin Mógilsá

Skógræktin á Selfossi

Skógræktin Þjórsárdal

Skógræktin á Tumastöðum

Skógræktin í Vík