Af hverju eigum við að velja umhverfisvottaðar vörur fram yfir aðrar?

Hér er góð og auðskilin umfjöllun um ágæti umhverfisvottaðra vara. Með því að velja umhverfisvottaða vöru erum við að hvetja til þess að fleiri slíkar vörur verði framleiddar. Þar hefur hið opinbera mikinn mátt vegna þess magns sem keypt er inn á ári hverju. Það skiptir líka máli að vörurnar sem við vinnum með eða eru inni á heimilum okkar dreifi ekki skaðlegum efnum, bæði fyrir heilsu okkar og umhverfi. Einnig skiptir máli hversu vel gengur að endurvinna vöruna eða hvort hún leki mögulega eiturefnum þegar hún er urðuð. Til þess að vörur geti fengið umhverfisvottun er þess gætt í öllu framleiðsluferli hennar að hún hafi sem minnst skaðleg áhrif á umhverfið okkar.
Vistakstur fyrir alla
Það eru margir kostir við vistakstur en hann dregur úr losun mengandi lofttegunda, minnkar eldsneytisnotkun, minnkar viðhaldskostnað bíla og styttir ferðatíma. Umhverfisstofnun fékk fræðslu um vistakstur fyrir alla starfsmenn stofnunarinnar, í kjölfarið fá tíu starfsmenn sem aka mest fyrir stofnunina einkakennslu í vistakstri. Stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar geta fengið námskeið í vistakstri og er það líka aðgerð í Grænu skrefi nr. 2. Hægt að skoða nánar á t.d. www.vistakstur.is

Rafhlöður eða hleðslurafhlöður?
Vissuð þið að það þarf aðeins að kaupa u.þ.b.10 pakka af AA rafhlöðum svo það borgi sig að kaupa frekar hleðslutæki og AA hleðslurafhlöður? Síðan notar maður hleðslurafhlöður aftur og aftur á meðan hinar eru einnota.
Skoðum notkunina okkar og kaupum hleðslutæki og rafhlöður þar sem notkunin er mikil. Í því felst bæði umhverfislegur og fjárhagslegur sparnaður.



