Umhverfisvænni samgöngur- allavega yfir sumartímann

Það er alltaf gott að rifja upp kosti þess að nota umhverfisvænni samgöngumáta. Á þessari vefsíðu er stutt samantekt frá Umhverfisstofnun um kosti þessa og ýmis ráð sem hægt er að hafa í huga í þessum efnum. Umhverfisvænar samgöngur
Skil á Grænu bókhaldi ríkisstofnana
Nú eru í gangi skil á Grænu bókhaldi ríkisstofnana, en þeim fer sífellt fjölgandi stofnunum sem skila inn gögnum. Gögn og leiðbeiningar eru inni á síðu vistvænni innkaupa.

Fimm skref í einu!
Umhverfisstofnun, starfsstöð á Suðurlandsbraut 24 tók á móti viðurkenningu Grænna skrefa frá Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrúnu Magnúsdóttur á ársfundi stofnunarinnar. Umhverfisstofnun varð með því fyrst allra stofnana til að klára öll fimm Grænu skrefin. Auk þess fékk starfsstöðin á Patreksfirði viðurkenningu fyrir fjögur Græn skref og starfsstöðvarnar á Mývatni og Akureyri hvor um sig fyrir þrjú Græn skref. Hjá þeim liggur fyrir áframhaldandi vinna við að halda við Grænu skrefunum og við að gera sífellt betur.
Framhaldsskólinn í Mos er nýjasti meðlimurinn

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er stofnun nr. 21 í verkefninu okkar. Skólinn leggur áherslu á að kenna umhverfisfræði, efla umhverfisvitund nemenda og kennara ásamt því að lágmarka umhverfisáhrif rekstursins.
Þess má geta að hús skólans er hannað með áherslu á vistvæna hönnun s.s. með því að nota náttúrulega loftræstingu, nýta dagsbirtu, spara orku og aðstöðu fyrir nemendur og starfsmenn til að notast við vistvænni samgöngur.
Stofnanir, kolefnisjöfnum útblásturinn!

Kolviður er verkefni í umsjón Skógræktarfélags Íslands og Landverndar en verkefni þetta gefur fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum tækifæri til að kolefnisjafna útblástur á koltvísýringi (CO2) með skógrækt.
ÁTVR gengur skrefinu lengra en margir í að minnka umhverfisáhrif sín en árið 2014 gerðu þau samning við Kolvið um að kolefnisjafna útblástur vegna aksturs og flugferða. Heildarlosun koltvísýrings sem ÁTVR hefur bein áhrif á er 102 tonn og 29 tonn vegna flugs og samsvarar losunin gróðursetningu á 1.230 trjám fyrir árið 2014.
Þjóðskrá Íslands er 20 þátttakandi Grænna skrefa

Nú er Þjóðskrá Íslands komin í hóp grænna stofnana. Velkomin í hópinn og hlökkum til að vinna með ykkur!
Velkomin í hópinn Heilbrigðisstofnun Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur skráð sig til leiks í Grænum skrefum. Stofnunin er á 14 starfsstöðvum um allt Austurland með 320 starfsmenn og hlökkum við til að vinna með þeim 🙂
Er stofnunin ykkar í leiguhúsnæði?
Þá getur verið að þið getið gert grænan húsaleigusamning við leigusalann.
Til að mynda þá býður Fasteignafélagið Reitir leigutökum sínum að skrifa undir samning þess efnis að báðir aðilar skuldbinda sig til að starfrækja húsnæðið með vistvænum hætti. Slíkur samningur getur hjálpað stofnunum að innleiða hluta af Grænu skrefunum og því um að gera að skoða það.
Sjá nánar á Reitir fasteignafélag
Græn skref á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar komin með fyrsta skrefið
Til hamingju Stofnun Vilhjálms Stefánssonar en fyrsta Græna skrefið er komið í höfn hjá þeim og ekki langt í skref nr. 2. 
Lára Ólafsdóttir skrifstofustjóri tók á móti viðurkenningunni frá Hólmfríði Þorsteinsdóttur frá Umhverfisstofnun.
Námskeið í Grænu bókhaldi

Til að auðvelda skil á Grænu bókhaldi býður Umhverfisstofnun upp á nokkur tveggja tíma námskeið fyrir þá sem óska upplýsinga og kennslu við gerð þess. Námskeiðin verða haldin dagana 24. og 25. febrúar og 3. og 4. mars kl. 09:00 – 11:00 hjá Umhverfisstofnun. Stofnunum utan af landi stendur til boða að skrá sig á fjarfundi þann 26. febrúar eða 5. mars milli kl. 09:00 og 11:00. Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast skráið ykkur hjá Hólmfríði Þorsteinsdóttur, holmfridur.th(hja)ust.is og hafið samband við hana ef einhverjar spurningar koma upp.








