Rafrænar áskriftir í ANR
Atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti réðst nýverið í það verkefni að draga úr magni blaða í áskriftum. Vigtaður var vikuskammtur af blöðum sem reyndist vera 7 kg. Árlega berst því um 370 kg af dagblöðum til ráðuneytisins. Starfsmenn ákváðu í sameiningu að afþakka öll dagblöð til ráðuneytisins en taka þess í stað upp rafrænar áskriftir sem starfsmenn hafa allir aðgang að.
Skattleysismörk fyrir samgöngusamninga hækkar
Ríkisskattstjóri hefur gert aðeins nánari útfærslu á samgöngugreiðslum og hefur hækkað skattleysismörk vegna þeirra í 8.000 kr. Skilyrðin eru þessi: Undirritaður sé formlegur samningur milli launagreiðanda og launþega og þarf nýting á þessum ferðamáta að vera í a.m.k. 80% af heildarfjölda ferða sé um fullan styrk að ræða, annars eftir hlufalli. Notaður sé umhverfisvænni samgöngumáti t.d. reiðhjól, almenningssamgöngur eða ganga.
Samdráttur í losun um 40%
Ríkisstjórnin hefur samþykkt loftslagsstefnu stjórnarráðsins. Í henni felst að öll ráðuneytin og Rekstrarfélag stjórnarráðsins ætla að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 40% fyrir árið 2030 og kolefnisjafna alla losun sem ekki verður dregið úr. Það ætla þau að gera með því að leggja sérstaka áherslu á flugferðir, ferðir starfsmanna til og frá vinnu, akstur á vegum ráðuneyta, úrgang, orkunotkun og máltíðir í mötuneytum.
Þátttakendur eru orðnir 66 talsins
Nú er Stofnun Árna Magnússonar búin að skrá sig í Grænu skrefin og hlökkum við til samstarfsins.
Stjórnarráðið dregur úr einnota poka notkun
Stjórnarráðið vinnur nú að því að draga úr einnota plastpokanotkun hjá öllum ráðuneytunum og hefur Rekstrarfélagið fundið þessa lausn fyrir pappír til endurvinnslu. Í stað einnota plastpoka eru komnir taupoka sem eru svo notaðir aftur og aftur.
17% minni úrgangur hjá FOR
Forsætisráðuneytið var nú að ljúka við innleiðingu á fimmta og síðasta skrefinu. Umhverfismálin ná nú inn í hvern krók og kima í ráðuneytinu. Starfsmenn hafa í gegnum verkefnið náð góðum árangri í umhverfismálunum þar sem má meðal annars nefna að:
Allur einnota borðbúnaður er horfinn!
Það var venjan að starfsmenn notuðu einnota kaffimál en sú tíð er liðin. Notkunin fór úr 179 pappamálum á dag í 0.
Úrgangsmagn minnkað um 17% á milli áranna 2017 og 2018!
Úrgangsmálin voru tekin föstum tökum með mikilli flokkun en vitundarvakning hefur einnig skilað sér í minna úrgangsmagni.
Minna notað af heitu vatni
Með grænu bókhaldi kom í ljós óeðlilega mikilli heitavatnsnotkun og gripið var til aðgerða.
Áhersla er lögð á fjarfundi!
Ísland er með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár sem kallar á mikil ferðalög. Ráðuneytið mun leggja mikla áherslu á fjarfundi til að draga úr ferðalögum starfsmanna og losun gróðurhúsalofttegunda.
Margir aðrir þættir hafa tekið stakkaskiptum innan ráðuneytisins og ýtt undir umhverfisvitund starfsmanna. Þó að innleiðingu skrefanna sé lokið mun vinnan halda áfram og árangrinum viðhaldið.
Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunar afhenti Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra viðurkenningu Grænna skrefa.
Nýtni er ekki bara skraut hjá ML
Menntaskólinn á Laugarvatni tekur nýtni og nægjusemi mjög hátíðlega og er sú hugsjón gegnumgangandi í öllum rekstri þeirra. Auk þess eru þau með mjög virka umhverfiskennslu fyrir nemendur sem fá að taka virkan þátt í rannsóknum og verkefnum sem tengjast umhverfismálum. Auk þess er menntaskólinn skóli á Grænni grein og hefur flaggað Grænfánanum síðan 2011.






