Morgunverðarfundur Grænna skrefa
Árlegi fundur þátttakenda í verkefninu var haldinn í dag með mikið af áhugaverðum erindum. Fundurinn er haldinn einu sinni á ári til að þátttakendur geti hist og séð hvað aðrir eru að gera, spurt spurninga sem og að hvetja starfsfólk áfram í vinnu sinni að umhverfismálum.
Erindin eru hér:
Hólmfríður Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri Grænna skrefa
Baldur H. Björnsson, Tryggingstofnun
María Kjartansdóttir, Isavia
Guðrún Lilja Kristinsdóttir, Umhverfisstofnun
Nicole Keller, Umhverfisstofnun
Snjólaug Ólafsdóttir, Andrými ráðgjöf


Förum vel með orkuna okkar
Okkur finnst stundum eins og það skipti engu máli fyrir Íslendinga að spara rafmagn og hita. Þvert á móti getur oft verið um verulegan fjárhagslegan sparnað að ræða. Landsspítalinn eyðir 275 milljónum kr. á ári í rafmagn og hita, rafmagnsnotkun þeirra er á við 4.600 heimili og heitavatnsnotkun á við 1.600 heimili. Síðastliðin ár hefur Landspítalinn unnið markvisst að því að minnka þessa notkun t.d. með orkuúttektum og öðrum orkusparandi aðgerðum. 
Landsvirkjun í Grænu skrefin
Landsvirkjun hefur lengi vel unnið að því að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar og stuðla að betri nýtingu orkuauðlindanna en nú ætlar fyrirtækið að taka betur til í umhverfismálum innan skrifstofurekstursins. Frábært að fá Landsvirkjun í hópinn og hlökkum við til að vinna með þeim. 
Fyrsta Græna skrefið hjá Vegagerðinni
Vegagerðin hefur nú lokið fyrsta Græna skrefinu og var það unnið hratt og vel enda grunnurinn að umhverfisstjórnun vel á veg kominn hjá stofnuninni. Þau eru nú staðráðin í að halda áfram og innleiða fyrsta Græna skrefið á öllum sínum starfsstöðvum og halda síðan áfram með næstu skrefin.

Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, tók á móti viðurkenningunni frá starfsmanni Umhverfisstofnunar, Hólmfríði Þorsteinsdóttir.

Fréttabréf Grænna skrefa
Fyrsta fréttabréf Grænna skrefa í ríkisrekstri er komið út. Í fréttabréfinu er hægt að skoða fyrstu niðurstöður úr Grænu bókhaldi ríkisstofnana, sagt frá norrænni viku um græn innkaup og síðan gefa Grænu skrefin nokkur góð ráð til þátttakenda.
Fréttabréfið er hægt að nálgast hér.
Vínbúðin á Akranesi með tvö Græn skref
Vínbúðin á Akranesi hefur lokið tveimur Grænum skrefum og fékk fyrir það viðurkenningu í dag. Til hamingju 🙂
Niðurstöður könnunar um grænan ríkisrekstur birtar
Búið er að birta niðurstöður könnunar um grænan ríkisrekstur sem gerð var í vor meðal forstöðumanna ríkisstofnana. Helstu niðurstöður eru að umhverfisstarf hefur almennt aukist. Stofnanir hafi sett sér umhverfisstefnu og -markmið og flokka sorp í meira mæli en áður. Mikil aukning hefur orðið í gerð samgöngusamninga en í ár bjóða 42% stofnana starfsmönnum sínum upp á slíka samninga samanborið við 15% árið 2013. Niðurstöður könnunarinnar má sjá hér.
Býður stofnunin ykkar upp á samgöngusamninga?
Í nýliðinni Samgönguviku fékk ÁTVR samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar fyrir að stuðla að vistvænum ferðamáta starfsmanna. ÁTVR er vel að þessari viðurkenningu komið enda nýtir sér stór hluti starfsmanna þeirra vistvænar samgöngur (sjá frétt). Einnig hefur verið markvisst unnið með þennan málaflokk hjá Umhverfisstofnun en þar nýta 43% starfsmanna sér heilsárssamgöngusamninga og 17% sumarsamninga (sjá frétt). Það væri gaman að heyra hvað aðrar stofnanir eru að gera, endilega sendið okkur línu.
Vínbúðirnar eru komnar af stað
Fyrsta Vínbúðin til að hljóta viðurkenningu Grænna skrefa var Vínbúðin í Hveragerði sem í dag stóðst úttekt á tveimur Grænum skrefum. Til hamingju 🙂
Sýnileiki aðgerðanna
Það er mikilvægt svo starfsmenn viti hvernig verkefnið gengur og líka til að breiða boðskapinn til gesta, að hafa aðgerðirnar sýnilegar. Þá er hægt að nota ýmsar aðferðir t.d. setja þær upp eins og Vegagerðin gerir á þessari mynd eða setja skjölin frá Grænu skrefunum yfir aðgerðirnar upp á vegg og merkja þar við hvað er búið og hvað ekki. Notum hugmyndaflugið og gerum það sem hentar okkur best.












