Morgunverðarfundur Grænna skrefa

Árlegi fundur þátttakenda í verkefninu var haldinn í dag með mikið af áhugaverðum erindum. Fundurinn er haldinn einu sinni á ári til að þátttakendur geti hist og séð hvað aðrir eru að gera, spurt spurninga sem og að hvetja starfsfólk áfram í vinnu sinni að umhverfismálum. 

Erindin eru hér:

Hólmfríður Þorsteinsdóttir, verkefnastjóri Grænna skrefa

Baldur H. Björnsson, Tryggingstofnun

María Kjartansdóttir, Isavia

Guðrún Lilja Kristinsdóttir, Umhverfisstofnun

Nicole Keller, Umhverfisstofnun

Snjólaug Ólafsdóttir, Andrými ráðgjöf

Förum vel með orkuna okkar

Okkur finnst stundum eins og það skipti engu máli fyrir Íslendinga að spara rafmagn og hita. Þvert á móti getur oft verið um verulegan fjárhagslegan sparnað að ræða. Landsspítalinn eyðir 275 milljónum kr. á ári í rafmagn og hita, rafmagnsnotkun þeirra er á við 4.600 heimili og heitavatnsnotkun á við 1.600 heimili. Síðastliðin ár hefur Landspítalinn unnið markvisst að því að minnka þessa notkun t.d. með orkuúttektum og öðrum orkusparandi aðgerðum.

Landsvirkjun í Grænu skrefin

Landsvirkjun hefur lengi vel unnið að því að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar og stuðla að betri nýtingu orkuauðlindanna en nú ætlar fyrirtækið að taka betur til í umhverfismálum innan skrifstofurekstursins. Frábært að fá Landsvirkjun í hópinn og hlökkum við til að vinna með þeim.

Fyrsta Græna skrefið hjá Vegagerðinni

Vegagerðin hefur nú lokið fyrsta Græna skrefinu og var það unnið hratt og vel enda grunnurinn að umhverfisstjórnun vel á veg kominn hjá stofnuninni. Þau eru nú staðráðin í að halda áfram og innleiða fyrsta Græna skrefið á öllum sínum starfsstöðvum og halda síðan áfram með næstu skrefin.

Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri, tók á móti viðurkenningunni frá starfsmanni Umhverfisstofnunar, Hólmfríði Þorsteinsdóttir.

Fréttabréf Grænna skrefa

Fyrsta fréttabréf Grænna skrefa í ríkisrekstri er komið út. Í fréttabréfinu er hægt að skoða fyrstu niðurstöður úr Grænu bókhaldi ríkisstofnana, sagt frá norrænni viku um græn innkaup og síðan gefa Grænu skrefin nokkur góð ráð til þátttakenda.

Fréttabréfið er hægt að nálgast hér.

Vínbúðin á Akranesi með tvö Græn skref

Vínbúðin á Akranesi hefur lokið tveimur Grænum skrefum og fékk fyrir það viðurkenningu í dag. Til hamingju 🙂