Vínbúðin á Siglufirði hefur lokið öllum fimm skrefunum
Til hamingju með flottan árangur Vínbúðin á Siglufirði. Vínbúðin hefur nú náð þeim árangri að uppfylla og fá viðurkenningu fyrir að innleiða öll fimm Grænu skrefin. Á myndinni eru Sólrún Júlíusdóttir og Hólmfríður Ósk Norðfjörð.
Evrópsk Nýtnivika 2016
Nýtnivikan er haldin ár hvert til að minna okkur á að draga úr óþarfa neyslu og nýta betur það sem þegar hefur verið framleitt. Þema vikunnar í ár er að draga úr umbúðanotkun. Við getum líka haft áhrif á þróun þessa málaflokks með því að velja vörur með minni umbúðir eða frekar vörur í umhverfisvænni umbúðum. Það besta er þó ef hægt væri að sleppa umbúðum s.s. plastpokum og öðru sem okkur er oft rétt í verslunum og við notum umhugsunarlaust.
Málstofa um umbúðir: nauðsyn eða sóun?
Í tilefni af Nýtniviku sem hefst 19. nóvember, ætla Umhverfisstofnun og Reykjavíkurborg að standa fyrir málstofu um umbúðir. Þema Nýtnivikunnar er að draga úr umbúðum og er því flestum þeim sem koma að framleiðslu, innflutningi, notkun og reglum um umbúðir stefnt saman til að ræða þessa hluti. Dagskráin er afar vegleg og áhugaverð og má sjá hér.
Orkustofnun er komin í Grænu skrefin
Velkomin í Grænu skrefin Orkustofnun, hlökkum til að vinna með ykkur 🙂
Deilum reynslu og miðlum
Var þema morgunverðarfundar Grænna skrefa í ár. Fundurinn var vel sóttur en 30 manns frá hinum ýmsu stofnunum komu og áttu með okkur góða stund. Erindi frá fundinum má nálgast hér.
Yfirlit yfir árið – Hólmfríður Þorsteinsdóttir
Innleiðing hjá umhverfis- og auðlindaráðuneyti – Birna Kolbrún Gísladóttir
Innleiðing hjá Seðlabankanum – Birna Kristín Jónsdóttir
Kynning á MS rannsókn á ávinningi Grænna skrefa – Hólmfríður Þorsteinsdóttir
Grænn lífsstíll – Birgitta Stefánsdóttir
Vínbúðin á Siglufirði er komin með tvö Græn skref
Vel gert Vínbúðin á Siglufirði með fyrstu tvö Grænu skrefin, svo eru þau auðvitað búin að senda skref 3 og 4 til úttektar. Frábær vinna 🙂
Úrvinnslusjóður er kominn í verkefnið
Nú er Úrvinnslusjóður formlegur þátttakandi í Grænum skrefum en áður höfðu þau komið að þróun verkefnisins árið 2014. Velkomin í verkefnið 🙂
Áhugasamir skrái sig á morgunverðarfund
Nú er komið að morgunverðarfundi Grænna skrefa. Fundurinn er ætlaður ríkisstarfsmönnum sem áhuga hafa á verkefninu og umhverfismálum og þeim sem eru þegar í verkefninu. Farið verður yfir stöðu verkefnisins og niðurstöður meistararannsóknar um ávinning verkefnisins. Erindi verða frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Seðlabankanum. Erindi verður um grænan lífsstíl – eitthvað sem við getum öll tileinkað okkur. Í lokin ætlum við að skoða saman upplifun og framgang verkefnisins. Nýtum tækifærið til að hitta aðra í verkefninu og skiptast á upplýsingum. Dagskrána má sjá hér.







