Isavia, Reykjavík flugturn og fræðslumiðstöð er komin með fyrsta skrefið
Mikil jákvæðni, gleði og samkeppni einkenndi höfuðstöðvar Isavia þegar ljóst var að þau uppfylltu úttekt og fengu þar með afhenta viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið. Ekki nóg með að hampa viðurkenningu Grænna skrefa þá fengu þau líka verðlaun fyrir að vera fyrsta starfsstöð Isavia til að klára fyrsta skrefið. Þau eru síðan strax farin að huga að næsta skrefi. Hrönn Ingólfsdóttir, Sigurlaug Ásta Sigvaldadóttir, Helga R. Eyjólfsdóttir og Elín Árnadóttir tóku á móti viðurkenningunni.

Náttúrufræðistofnun fékk sitt fjórða skref
Náttúrufræðistofnun Íslands í Urriðaholti fékk fjórða Græna skrefið sitt í dag en aðeins er um eitt ár síðan þau fengu fyrsta Græna skrefið. Frábær vinna hjá þeim á ekki lengri tíma. Húsnæði stofnunarinnar er með BREEAM vottun fyrir vistvænar byggingar og svo er endurnýting hjá stofnuninni til fyrirmyndar. Þau endurnýta gamlar tölvur, gömul gróðurkort, tunnur, glerkrukkur, matarafganga og margt annað fyrir rekstur sinn. Vel gert NÍ 🙂

Stofnun Vilhjálms Stefánssonar nældi sér í annað skrefið
Þær Lára Ólafsdóttir og Joan Larsen hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar tóku á móti sínu öðru Græna skrefi á dögunum. Frábær vinna hjá flottri stofnun.

Seðlabankinn ætlar að verða grænn og vænn
Til hliðar við peningastefnu, stýrivexti, afnám hafta og aðrar skyldur Seðlabankans ætla þau að vinna að því að minnka umhverfisáhrif bankans enda eins og við vitum þá er fjárhagslega hagkvæmt að vinna að umhverfismálum 🙂 Velkomin í verkefnið!

Vínbúðin á Patreksfirði komin með tvö Græn skref
Vínbúðirnar halda áfram að næla sér í Græn skref og nú var það á Patreksfirði. Innilega til hamingju með áfangann 🙂

Af hverju eigum við að velja umhverfisvottaðar vörur fram yfir aðrar?

Hér er góð og auðskilin umfjöllun um ágæti umhverfisvottaðra vara. Með því að velja umhverfisvottaða vöru erum við að hvetja til þess að fleiri slíkar vörur verði framleiddar. Þar hefur hið opinbera mikinn mátt vegna þess magns sem keypt er inn á ári hverju. Það skiptir líka máli að vörurnar sem við vinnum með eða eru inni á heimilum okkar dreifi ekki skaðlegum efnum, bæði fyrir heilsu okkar og umhverfi. Einnig skiptir máli hversu vel gengur að endurvinna vöruna eða hvort hún leki mögulega eiturefnum þegar hún er urðuð. Til þess að vörur geti fengið umhverfisvottun er þess gætt í öllu framleiðsluferli hennar að hún hafi sem minnst skaðleg áhrif á umhverfið okkar.
Vistakstur fyrir alla
Það eru margir kostir við vistakstur en hann dregur úr losun mengandi lofttegunda, minnkar eldsneytisnotkun, minnkar viðhaldskostnað bíla og styttir ferðatíma. Umhverfisstofnun fékk fræðslu um vistakstur fyrir alla starfsmenn stofnunarinnar, í kjölfarið fá tíu starfsmenn sem aka mest fyrir stofnunina einkakennslu í vistakstri. Stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar geta fengið námskeið í vistakstri og er það líka aðgerð í Grænu skrefi nr. 2. Hægt að skoða nánar á t.d. www.vistakstur.is

Rafhlöður eða hleðslurafhlöður?
Vissuð þið að það þarf aðeins að kaupa u.þ.b.10 pakka af AA rafhlöðum svo það borgi sig að kaupa frekar hleðslutæki og AA hleðslurafhlöður? Síðan notar maður hleðslurafhlöður aftur og aftur á meðan hinar eru einnota.
Skoðum notkunina okkar og kaupum hleðslutæki og rafhlöður þar sem notkunin er mikil. Í því felst bæði umhverfislegur og fjárhagslegur sparnaður.

Landgræðsla ríkisins viðurkennd fyrir fyrsta Græna skrefið
Landgræðsla ríkisins er nú komin með fyrsta Græna skrefið en það var mjög gaman að koma í heimsókn til þeirra í Gunnarsholt. Græna teymið þeirra var með margar skemmtilegar útfærslur að því hvernig unnið er að málum. Þau t.d. máluðu sjálf á könnurnar sínar til að minnka uppvask, gerðu flottar merkingar fyrir úrgangsflokkana sína (sjá ef smellt er á frétt) og svona ítarlegar merkingar um stofnun hafa bara ekki sést áður 🙂



5 atriði sem við þurfum að muna eftir áður en við förum í jólafrí
1. Lækkum hitann á skrifstofum
2. Tökum öll raftæki úr sambandi eða slökkvum alveg á þeim (munum að þegar raftæki eru á standby þá „leka“ þau rafmagni sem kostar orku og pening).
3. Slökkvum á öllum ljósum
4. Lokum gluggum og hurðum vel og drögum gluggatjöld fyrir
5. Látum húsverði/aðra vita ef eitthvað virkar undarlegt s.s. leki í vask eða annað.









