Vistvænt hjá Landmælingum Íslands

Samgöngumál eru tekin föstum tökum hjá Landmælingum Íslands sem staðsettar eru á Akranesi.  Landmælingar tóku sitt fyrsta græna skref á dögunum og voru meðal fyrstu stofnana landsins sem aðlöguðu starfsemi sína Grænum skrefum í ríkisrekstri. 

 

Þótt ákvörðunin hafi ekki kallað á miklar breytingar í starfseminni voru sóknarfæri hér og þar sem nýtt voru til að stuðla að umhverfisvænna starfsumhverfi. Meðal annars voru ruslafötur aflagðar  inni á skrifstofunum í því skyni að auka hvata fyrir starfsmenn til að draga úr úrgangi. Þess í stað eru vel merkt flokkunarílát  fyrir rusl á einum stað á vinnustaðnum.

 

Staðsetning Landmælinga á Akranesi hefur orðið stjórnendum stofnunarinnar hvati til að huga sérstaklega að samgöngumálunum. Sex starfsmenn stofnunarinnar búa í Reykjavík. Til að draga sem mest úr útblæstri vegna ferða er sá háttur hafður á að tveir nýta sér þjónustu strætó til og frá vinnu en fjórir aka saman í Hybrid  bíl. Stór hluti þeirra sem búa í grennd við vinnustaðinn hjóla eða ganga til og frá vinnu og er ríflega helmingur starfsmanna með samgöngusamning við Landmælingar. Þá hefur stofnunin ávallt verið öflugur þátttakandi í átakinu Hjólum í vinnuna og er ríflega af hjólagrindum  við vinnustaðinn.  Loks hefur stofnunin yfir tveimur litlum díselbílum að ráða sem starfsfólk nýtir til að sinna fundum og öðrum vinnutengdum erindum utan stofnunar á vinnutíma, auk þess sem strætómiðar eru alltaf  aðgengilegir á vinnustaðnum.  

Skipulagsstofnun stígur fyrsta græna skrefið

Grænar plöntur taka hlýlega á móti gestum Skipulagsstofnunar og gleðja auga þeirra sem þar starfa um leið og þær keppast við að bæta loftgæðin á vinnustaðnum. Skipulagsstofnun var meðal fyrstu stofnana ríkisins sem á dögunum stigu grænt skref í sínum rekstri. 

 

Hjá Skipulagsstofnun er nýtnin í fyrirrúmi. Þegar nýlega þrengdi að stofnuninni þurfti að endurskipuleggja nýtingu húsnæðisins og samnýta skrifstofur meira en áður. Við þær breytingar kom í ljós að mörg skrifborðanna sem áður voru í notkun voru of stór til að hægt væri að koma tveimur eða fleirum inn á eina skrifstofu. Í stað þess að kaupa ný húsgögn var brugðið á það ráð að fá gefins borð  sem Síminn var hættur að nota. Annað dæmi eru möppur og skjalahólf sem tæmd eru þegar pappíranna er ekki lengur þörf og þau geymd á vísum stað  þannig að hægt sé að grípa til þeirra þegar þarf, í stað þess að kaupa nýtt. 

Hjá Skipulagsstofnun er eingöngu notaður margnota borðbúnaður , aðeins er keyptur umhverfisvottaður pappír  og þjónusta við þrif er keypt af svansvottuðu fyrirtæki.

   

Og grænu plönturnar , sem víða er að finna um vinnustaðinn, eru ekki bara til skrauts. Ef marka má rannsókn á vegum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA geta plöntur unnið gegn 99% eiturefna í andrúmslofti innanhúss og gegna því mikilvægu hlutverki við að bæta loftgæði á vinnustaðnum.

Hvar liggur áhugi starfsmanna?

Skipulagsstofnun réðst í könnun um ferðavenjur, úrgangsflokkun og orkunotkun meðal starfsmanna til að fá yfirsýn yfir þau sóknarfæri sem stofnunin hefur til að bæta sig í umhverfismálum.

Slíkar kannanir þurfa ekki að vera flókar, t.a.m. er hægt að finna vefsíður sem bjóða ókeypis forrit fyrir þess háttar úttektir.

Endurnota eins og hægt er

Stefna Landmælinga í innkaupamálum er að forðast í lengstu lög að kaupa nýtt ef eldri búnað er hægt að nýta. Til dæmis eru tölvur gjarnan látnar ganga á milli starfsmanna, sem hafa ólíkar þarfir í þeim efnum. Þannig þurfa þeir sem vinna í kortagerð mun öflugri tæki en þeir sem sinna t.d. almennum skrifstofustörfum og þegar tölvur þeirra fyrrnefndu  úreldast fyrir kortavinnuna geta þær gagnast vel fyrir aðra.

Gleymum okkur ekki

 

Einfaldir miðar á vel völdum stöðum á vinnustaðnum eru góð leið til að minna fólk á

að slökkva ljós og á raftækjum við heimferð eða í kompum og geymslum þar sem ekki þarf að loga ljós yfir daginn.

Betri lýsing

Þegar starfsfólk Landmælinga uppgötvaði að lýsingu var ofaukið á sumum stöðum brá það á það ráð að skrúfa aðra hvora ljósaperu úr ljósastæðum,

sem sparar orkuna sem annars færi í að hafa kveikt á perunum.

Hvers vegna grænn ríkisrekstur?

Hjá ríkinu starfa um 20000 manns. Reksturinn er umfangsmikill og hefur umtalsverð umhverfisáhrif, bæði vegna athafna starfsmanna og vegna þjónustu sem ríkið veitir. Rekstrinum fylgir losun gróðurhúsalofttegunda frá bílum, meðhöndlun úrgangs og ýmsum verkframkvæmdum. Í gegnum innkaup hefur ríkið einnig mikil áhrif, t.d. á losun gróðurhúsalofttegunda. Starfssemi ríkisins fylgir losun efna sem hafa áhrif á loftgæði, m.a. vegna aksturs bíla, malbikunar og ýmislegs viðhalds.

Með virkri umhverfisstjórnun og kaupum á vistvænum vörum og þjónustu má skapa markað fyrir slíkar vörur og draga verulega úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi ríkisins.

Þátttakendur

Hér að neðan er listi yfir þátttakendur í Grænum skrefum í ríkisrekstri, 82 stofnanir (290 starfsstöðvar):

Vinnustaður Staðsetning Skráningardagur Skref 1 Skref 2 Skref 3 Skref 4 Skref 5
Landspítali Reykjavík 7/1/2020          
Póst- og fjarskiptastofnun Reykjavík 6/1/2020          
Landhelgisgæsla Íslands Reykjavík 13/12/2019          
Fiskistofa Allt land 3/12/2019          
Jafnréttisstofa Akureyri 2/12/2019          
Embætti landlæknis Reykjavík 11/28/2019          
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Norðurland 11/26/2019          
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra Norðurland 11/25/2019  X        

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Norðurland 11/1/2019          
Geislavarnir ríkisins Reykjavík 08/20/2019          

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands

Reykjavík 08/08/2019          
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu Reykjavík 07/18/2019          
Vinnumálastofnun Allt land 07/05/2019  X        
Þjóðskjalasafn Íslands Reykjavík 06/13/2019          
Embætti Héraðssaksóknara Reykjavík 05/28/2019        
Stofnun Árna Magnússonar Reykjavík 05/04/2019          
Fjársýsla ríkisins Reykjavík 04/03/2019  X        
Ríkisskattstjóri Reykjavík 15/01/2019          
Fjölbrautaskólinn við Ármúla Reykjavík 26/10/2018          
Óbyggðanefnd Reykjavík 17/10/2018          
Mennta- og menningarmálaráðuneytið Reykjavík 04/09/2018 X      

Heilbrigðisráðuneytið

Reykjavík 03/09/2018 X X X X  

Félagsmálaráðuneytið

Reykjavík 03/09/2018 X X  X  
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum Þingvellir 20/07/2018          
Framkvæmdasýsla ríkisins Reykjavík 23/02/2018 X        
Sjúkrahúsið á Akureyri Akureyri 21/02/2018 X        
Menntamálastofnun Kópavogur 09/02/2018 X        
Menntaskólinn á Egilsstöðum Egilsstaðir 02/02/2018          
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ Garðabær 16/01/2018          
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið Reykjavík 11/01/2018  X X    
Dómsmálaráðuneytið Reykjavík 11/01/2018  X  X  X    
Matvælastofnun Selfoss 6/12/2017          
Verkmenntaskóli Austurlands Neskaupsstaður 2/11/2017          
Menntaskólinn á Tröllaskaga Ólafsfjörður 27/10/2017 X  X      
Hafrannsóknastofnun Reykjavík 26/10/2017 X  X      
Úrskurðarnefnd velferðarmála Reykjavík 26/10/2017          
Vinnueftirlit ríkisins Reykjavík 26/10/2017 X        
Landsbókasafn Íslands – Háskólasafn Reykjavík 18/10/2017 X        
Ríkiseignir Reykjavík 23/08/2017  X        
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið Reykjavík 15/05/2017 X X X X  
Menntaskólinn að Laugarvatni Laugarvatn 03/05/2017    X        
Fjölbrautaskóli Snæfellinga Grundarfirði 21/04/2017          
Hljóðbókasafn Íslands Kópavogur 27/03/2017  X  X X X  
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins Reykjavík  28/02/2017 X  X  X  X  
Listasafn Íslands Reykjavík 31/01/2017          
Samgöngustofa Reykjavík 01/01/2017          
Veðurstofa Íslands Reykjavík  12/12/2016  X  X    
Orkustofnun Reykjavík  15/11/2016          
Úrvinnslusjóður Reykjavík  07/11/2016          
Náttúrurannsóknarmiðstöðin við Mývatn Mývatn 26/10/2016          
Þjóðminjasafn Íslands Reykjavík  04/10/2016  X  X      
Alþingi Reykjavík  19/08/2016 X  X      
Utanríkisráðuneytið Reykjavík  29/06/2016          
Ferðamálastofa Reykjavík  22/06/2016 X        
   Ferðamálastofa Akureyri 22/06/2016 X        
Háskóli Íslands Reykjavík  13/04/2016          
 HÍ Aðalbygging Reykjavík 13/04/2016 X        
 HÍ Skrifstofustarfsemi Háskólatorgs Reykjavík 12/04/2016 X        
Tryggingastofnun ríkisins Reykjavík 12/04/2016 X        
Seðlabanki Íslands Reykjavík 19/02/2016 X        
Forsætisráðuneytið Reykjavík 26/11/2015 X  X  X X    X
Landsvirkjun Reykjavík 20/10/2015 X  X  X  X X 
   Landsvirkjun Akureyri Akureyri 20/10/2015 X  X  X    
   Landsvirkjun Ljósifoss Sogssvæðið 20/10/2015 X X X    
Isavia Allt land 14/08/2015          
   Reykjavík flugturn og fræðslumiðstöð Reykjavík 14/08/2015 X X    
   Flugstöð Leifs Eiríkssonar Keflavík 14/08/2015 X  X  X    
   Reykjavík Flugstjórnarmiðstöð Reykjavík 14/08/2015        
   Egilsstaðaflugvöllur Egilsstaðir 14/08/2015 X      
   Flugfjarskipti Reykjavík 14/08/2015 X X  X X X
   Keflavík flugturn Keflavík 14/08/2015 X  X  X    
   Þjónustuhús KEF Keflavík 14/08/2015 X  X    
   Akureyrarflugvöllur Akureyri 14/08/2015 X X      
Vegagerðin, höfuðborgarsvæði Reykjavík 21/05/2015 X X      
   Vegagerðin, Suðursvæði Selfoss 21/05/2015          
   Vegagerðin, Vestursvæði Borgarnes 21/05/2015    X        
   Vegagerðin, Austursvæði Reyðarfjörður 21/05/2015          
   Vegagerðin, Norðursvæði Akureyri 21/05/2015  X        
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ Háholti 35 16/04/2015          
Þjóðskrá Íslands Borgartúni 21 23/03/2015 X        
   Þjóðskrá Akureyri Akureyri 23/03/2015 X        
Heilbrigðisstofnun Austurlands Egilsstöðum 27/02/2015          
Menntaskólinn við Sund Gnoðavogur 43 28/12/2014 X X      
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Vesturland 23/12/2014            
   HVE Borgarnesi Borgarnes 23/12/2014 X X      
   HVE Grundarfirði Grundarfjörður 23/12/2014 X X      
   HVE Stykkishólmi Stykkishólmur 23/12/2014 X X      
   HVE Ólafsvík Ólafsvík 23/12/2014 X X      
   HVE Búðardal Búðardal 23/12/2014 X  X       
   HVE Hvammstanga Hvammstanga 23/12/2014 X        
   HVE Hólmavík Hólmavík 23/12/2014 X X      
   HVE Akranesi Akranesi 23/12/2014 X        
ÁTVR Stuðlaháls 2 23/12/2014   X  X
   Vínbúðin Hveragerði Hveragerði 23/12/2014   X X
   Vínbúðin Akranesi Akranesi 23/12/2014  X  X  X
   Vínbúðin Heiðrún Reykjavík 23/12/2014 X
   Vínbúðin Patreksfirði Patreksfjörður 23/12/2014  X    X 
   Vínbúðin Stykkishólmi Stykkishólmi 23/12/2014 X
   Vínbúðin Egilsstöðum Egilsstaðir 23/12/2014 X X
   Vínbúðin Seyðisfirði Seyðisfjörður 23/12/2014  X  X X
   Vínbúðin Flúðum Flúðir 23/12/2014  X 
   Vínbúðin Reykjanesbæ Reykjanesbær 23/12/2014  X   X
   Vínbúðin Grindavík Grindavík 23/12/2014  X 
   Vínbúðin Smáralind Kópavogur 23/12/2014  X   X
   Vínbúðin Hella Hella 23/12/2014  X  X
   Vínbúðin Hvolsvelli Hvolsvöllur 23/12/2014  X  X X
   Vínbúðin Hólmavík Hólmavík 23/12/2014 X X
   Vínbúðin Spöngin Reykjavík 23/12/2014 X X
   Vínbúðin Ólafsvík Ólafsvík 23/12/2014 X X
   Vínbúðin Eiðistorgi Reykjavík 23/12/2014 X X X
   Vínbúðin Siglufirði Siglufjörður 23/12/2014 X X X
   Vínbúðin Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar 23/12/2014 X X
   Vínbúðin Dalvík Dalvík 23/12/2014 X
   Vínbúðin Austurstræti Reykjavík 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Skútuvogi Reykjavík 23/12/2014 X X X X
   Vínbúðin Sauðárkrókur Sauðárkróki 23/12/2014 X X X X
   Vínbúðin Fáskrúðsfirði Fáskrúðsfirði 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Reyðarfirði Reyðarfirði 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Neskaupsstað Neskaupsstaður 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Þórshöfn Þórshöfn 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Vopnafirði Vopnafirði 23/12/2014 X X X X
   Vínbúðin Selfossi Selfossi 23/12/2014
   Vínbúðin Vík í Mýrdal Vík í Mýrdal 23/12/2014 X
   Vínbúðin Þorlákshöfn Þorlákshöfn 23/12/2014 X X X X
   Vínbúðin Búðardal Búðardalur 23/12/2014
   Vínbúðin Grundarfirði Grundarfjörður 23/12/2014 X X
   Vínbúðin Kirkjubæjarklaustri Kirkjubæjarklaustur 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Mosfellsbæ Mosfellsbær 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Dalvegi Reykjavík 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Kringlunni Reykjavík 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Skeifunni Reykjavík 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Akureyri Akureyri 23/12/2014 X X X X
   Vínbúðin Álfrún Hafnarfjörður 23/12/2014 X X X X
   Vínbúðin Borgarnesi Borgarnes 23/12/2014  X
   Vínbúðin Hvammstanga Hvammstangi 23/12/2014 X X X
   Vínbúðin Blönduósi Blönduós 23/12/2014 X X X
   Vínbúðin Ísafirði Ísafjörður 23/12/2014 X
   Vínbúðin Húsavík Húsavík 23/12/2014 X X X
   Vínbúðin Kópaskeri Kópasker 23/12/2014  X  X
   Vínbúðin Höfn í Hornafirði Höfn 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Djúpavogi Djúpivogur 23/12/2014 X X X X X
   Vínbúðin Borgartúni Reykjavík 23/12/2014 X X X X
   Vínbúðin Stekkjarbakka Reykjavík 23/12/2014 X X X X
   Vínbúðin Garðabæ Garðabær 23/12/2014  X
Vatnajökulsþjóðgarður Öll svæðin 17/12/2014          
Fjármála- og efnahagsráðuneytið Lindargötu 1 3/12/2014   X    
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið Reykjavík 4/04/2014 X X X X
Skipulagsstofnun Reykjavík 4/04/2014 X  X  X    
Landmælingar Íslands Akranes 4//04/2014 X  X 
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins  Reykjavík  25/11/2014             
Ríkiskaup Borgartúni 24/11/2014    X      
Íslenskar orkurannsóknir Grensásvegi 4/04/2014   X    
Umhverfisstofnun Suðurlandsbraut 4/04/2014           
   UST Suðurlandsbraut 24        Reykjavík 4/04/2014  X X X
   UST Patreksfirði Patreksfirði 4/04/2014 
   UST Akureyri Akureyri 4/04/2014  X
   UST Mývatni Mývatni 4/04/2014 
   UST Egilsstöðum Egilsstaðir 4/04/2014  X
   UST Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull Snæfellsnes 4/04/2014 
   UST Hellu Hella 4/04/2014           
   UST Vestmannaeyjar Vestmannaeyjar 4/04/2014  X X X
   UST Ísafjörður Ísafjörður 4/04/2014  X
Skógræktin Egilsstaðir 4/04/2014  X        
   Skógræktin Akureyri Akureyri 4/04/2014 X        
   Skógræktin Vöglum  Vaglir 4/04/2014 X        
   Skógræktin Ísafirði Ísafjörður 4/04/2014 X        
   Skógræktin Hvanneyri Hvanneyri 4/04/2014 X        
   Skógræktin Hvammi Skorradal 4/04/2014 X        
   Skógræktin Mógilsá Reykjavík 4/04/2014 X        
   Skógræktin Selfossi Selfoss 4/04/2014 X        
   Skógræktin Þjórsárdal Þjórsárdal 4/04/2014 X        
   Skógræktin Tumastöðum Tumastaðir 4/04/2014 X        
   Skógræktin Vík Vík í Mýrdal 4/04/2014 X        
   Skógræktin Hallormsstað Hallormsstaður 4/04/2014 X        
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála Reykjavík 4/04/2014   X      
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar Akureyri 4/04/2014   X X    
Náttúrufræðistofnun Íslands Urriðaholti 4/04/2014            
   NÍ Urriðaholti Garðabær 4/04/2014   X
Mannvirkjastofnun Skúlagötu 4/04/2014            
Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti 4/04/2014          

 

Hugmyndir að veislu án úrgangs

Nota fjölnota glös í staðin fyrir einnota. Hægt er að leigja glös hjá veisluþjónustu ef von er á mörgum gestum.

Fjölnota hnífapör í stað plasthnífapara. Fáið lánað hjá nágrönnum ef veisluþjónustureikningurinn er orðinn of hár.

Setið merkimiða á tunnurnar þínar þannig að gestirnir geti hjálpað þér að flokka tóm ílát, bein og bréfþurrkur.

Skemmtiatriðin, búningarnir og stuðaukandi búnaður getur verið umhverfisvænn án þess að það komi niður á skemmtuninni. 

Skreytingarnar geta verið fjölnota. Kerti, krukkur og taudúkar eru engu síðri en einnota vörur.

Þrír plastpokar á fimm vikum

Undanfarið hefur umræða um skaðsemi plasts stóraukist, en plast getur valdið mjög neikvæðum áhrifum á heilsu og umhverfi. Lengi hefur verið vitað um þörf þess að draga úr notkun plasts en þróunin hefur verði þveröfug. 

 

Umhverfishópur Stykkishólms fékk í ársbyrjun styrk frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu til að ráðast í tilraunaverkefni sem felur í sér að gera Stykkishólm að burðarplastpokalausu sveitarfélagi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Náttúrustofu Vesturlands, Landvernd, Umís/Environice og Stykkishólmsbæ.

Í september síðastliðnum steig Stykkishólmur mikilvægt skref í umhverfismálum þegar bærinn ákvað í samstarfi við verslunar og þjónustufyrirtæki bæjarins að útrýma notkun plastpoka. Flestar verslanir í bænum hafa hætt sölu á plastpokum alfarið. Sumar verslanir hafa ekki útrýmt plastpokum en hafa í staðinn boðið uppá umhverfisvæna poka. Að sögn bæjarbúa og verslunareigenda hefur verkefnið gengið vonum framar og seldust til að mynda aðeins þrír plastpokar verið seldir í ÁTVR á fyrstu fimm vikum átaksins.