3. og 4. skrefið í höfn hjá Ríkiskaupum

Ríkiskaup hafa nú fengið viðurkenningu fyrir að ljúka innleiðingu á skrefi 3 og 4. Ríkiskaup voru með fyrstu stofnunum til að skrá sig til leiks í verkefnið árið 2014 og hefur markvisst verið unnið að umhverfismálunum þar allar götur síðan. Stofnunin hefur lagt sig fram við að fræða starfsmenn um umhverfismál en ekki síður að fræða viðskiptavini sína um vistvæn innkaup sem eru auðvitað mikilvægur þáttur í Grænu skrefunum.

Halla Rún Friðriksdóttir, Hallgrímur H. Gröndal og Halldór Ó. Sigurðsson hjá Ríkiskaupum, Birgitta Steingrímsdóttir frá Umhverfisstofnun og Egill Skúlason hjá Ríkiskaupum.

Við höfum oft tekið Ríkiskaup sem dæmi þegar við tölum um frábæran árangur í samdrætti í pappírsnotkun en frá árinu 2011 hefur hún dregist saman um 82% – úr 33,7 kg/stöðugildi árið 2011 niður í 6,1 kg/stöðugildi árið 2019. Frábær árangur!

Næst á dagskrá hjá Ríkiskaupum er að keyra vinnu við 5. og síðasta skrefið af stað og eins og kemur fram á heimasíðu þeirra, „halda átrauð áfram að sinna öflugu umhverfisstarfi, huga að umhverfinu og vistvænum úrræðum í öllum þáttum starfseminnar og hvetja til vistvænna innkaupa.“

Til hamingju Ríkiskaup með áfangann!

Sjá frétt um málið á heimasíðu Ríkiskaupa. 

 

Leiðbeiningar um gerð loftslagsstefnu komnar á vefinn 

Til að einfalda vinnu við gerð loftslagsstefnu hefur Umhverfisstofnun birt leiðbeiningar sem nálgast  má á vef Grænna skrefa. 

Samkvæmt  lögum um loftslagsmál  ber Stjórnarráði Íslands, ríkisstofnunum og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkis að setja sér loftslagsstefnu. Stefnan skal innihalda markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun ásamt aðgerðum til að ná markmiðunum.  

Vilji hins opinbera er að fara fram með góðu fordæmi þegar kemur að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og þess vegna er mikilvægt að allir leggist á eitt og vinni að metnaðarfullum markmiðum. 

Stefnan skal vera tilbúin í árslok 2021 en Umhverfisstofnun hvetur ríkisaðila til að hefjast handa sem fyrst og óskar öllum góðs gengis.  

 

Þarf þín stofnun viðbótarskilafrest vegna Græns bókhalds?

Skilafrestur vegna Græns bókhalds var 1. júní síðastliðinn. Við viljum endilega að sem flestir skili inn svo ekki hika við að heyra í okkur ef þið þurfið viðbótarskilafrest, þið getið annaðhvort sent póst á graenskref@graenskref.is eða birgittasteingrims@ust.is.

Við minnum á að Græna bókhaldinu er nú skilað í Gagnagátt Umhverfisstofnunar.

Gangi ykkur vel!

Þjóðskjalasafn Íslands lauk 4 skrefum í einu!

Fyrir rétt rúmu ári var Þjóðskjalasafn Íslands skráð til leiks í Grænu skrefunum, en í dag tóku þau við viðurkenningu fyrir fjögur skref á einu bretti!

Græni hópurinn tekur á móti viðurkenningu fyrir Grænu skrefin fjögur.

Græni hópurinn, undir styrkri leiðsögn Önnu Elínborgar Gunnarsdóttur sviðsstjóra, hefur fylgt eftir innleiðingu skrefanna í starfsseminni og hefur það verið aðdáunarvert að fylgjast með jákvæðni og röggsemi hópsins. Á þessu eina ári hafa þau skilað Grænu bókhaldi, gert samgöngu- og umhverfisstefnu, innkaupagreiningu og innkaupastefnu, greiningu á úrgangsmyndun og lagt í aðgerðir til þess að draga úr sóun og minnka úrgang. Á árinu fór fram endurskipulagning og nauðsynleg endurnýjun í húsnæði ÞÍ og því féll til óvenju mikill grófúrgangur, en húsnæðisstjórinn Bjarni Þórðarson hefur kappkostað við að nýta það sem hægt er áfram og flokka annan úrgang til endurvinnslu eins vel og völ er á.

Grænu skrefin hafa verið kynnt vel innanhúss, Stjörnu Sævar kom í heimsókn með erindi og haldnir voru Grænir dagar í byrjun mars þar sem boðið var upp á fræðslu um hjólareiðamenningu og vinnustofur um umhverfismál. Í vinnustofunum gafst starfsfólki tækifæri á að koma fram með athugasemdir, hugmyndir og tillögur að aðgerðum.

Hjólað í vinnuna var að vonum tekið föstum tökum í ár og því tvöfalt tilefni fyrir starfsfólk ÞÍ að skella í Græn skrefa köku og kræsingar og veita viðurkenningar fyrir starfsfólkið sem lagði sig „extra“ fram fyrir umhverfið og heilsuna.

Innilega til hamingju með árangurinn öll sömul og við hlökkum til að ráðast í 5. skrefið og loftslagsstefnuna með ykkur!

Glæsileg Græn skrefa kaka á boðstólum.

Verðlaunaðar fyrir flottan árangur í Hjólað í vinnuna!

Fjölbrautaskólinn við Ármúla með 1. skrefið

Í gær fékk Fjölbrautaskólinn við Ármúla (FÁ) afhenta viðurkenningu fyrir að hafa lokið við 1. Græna skrefið. Umhverfismálin eru ekki ný af nálinni í FÁ en skólinn var til að mynda fyrsti framhaldsskólinn til að hljóta Grænfánann og það árið 2006. Hugað er að umhverfinu bæði í rekstri sem og kennslu og hefur skólinn sett sér sjálfbærnistefnu og metnaðarfulla aðgerðaáætlun, umhverfisstefnu og samgöngustefnu.

Magnús Ingvason skólameistari, Vigfús Þór Jónsson, umsjónarmaður fasteigna, Jóhanna Sturlaugsdóttir í umhverfisráði, Birgitta Steingrímsdóttir frá Umhverfisstofnun, Tinna Eiríksdóttir og Bryndís Valsdóttir í umhverfisráði og Kristrún Birgisdóttir aðstoðarskólameistari.

Sjálfbærninefnd og umhverfisráð skólans hafa á að skipa fulltrúum starfsfólks og nemenda. Umhverfisfræði er kennd í vali en til stendur að gera hana að skyldufagi. Á hverju vori er umhverfisvika þar sem t.d. hafa verið fengnir fyrirlesarar eru til að fjalla um umhverfismál, markaður með umhverfisvænum vörum verið settur upp og notuð föt seld og ágóðinn gefinn til Votlendissjóðs.

Vigfús Þór Jónsson tók við viðurkenningunni fyrir hönd FÁ.

Umsjónarmaður fasteigna, Vigfús Þór Jónsson, sér til þess að hlutir fái framhaldslíf, að spilliefnum og öðrum úrgangi sé komið í endurvinnslu eða fargað á réttan hátt og plokkar rusl á lóðinni svo eitthvað sé nefnt. Í úttekt Umhverfisstofnunar mátti skynja mikið þakklæti frá starfsfólki í garð Vigfúsar og að þeirra sögn er það honum að miklu leyti að þakka hversu vel umhverfisstarfið í rekstri skólans hefur gengið.

Við óskum FÁ til hamingju með áfangann og hlökkum til að vinna með þeim í næstu skrefum.

Á upplýsingavegg um umhverfismál sem nemendur sjá um kennir ýmissa grasa.

 

Góð ráð!

 

Óskað eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar

Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2020. Viðurkenningin verður veitt fyrirtæki, stofnun, einstaklingi eða öðrum fyrir framúrskarandi lausnir sem stuðla að minni plastnotkun og plastúrgangi í samfélaginu. Viðurkenningin er hluti af aðgerðum umhverfis- og auðlindaráðherra til að draga úr neikvæðum áhrifum plastnotkunar. Henni er ætlað að draga fram það sem vel er gert og hvetja til nýsköpunar.

Bláskelin var fyrst afhent árið 2019 en þá hlaut Segull 67 Brugghús viðurkenninguna fyrir að nota bjórkippuhringi úr lífrænum efnum í stað plasts.

Nánari upplýsingar um tilnefningar má nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Upptaka og glærur frá Vorfundi

Vorfundur Grænna skrefa fór fram á Teams þann 20. maí síðastliðinn. Þátttaka var afar góð en um 100 manns sóttu fundinn. Nú þegar við höfum prófað þennan vettvang til miðlunar sjáum við fram á að nýta hann enn betur til að koma upplýsingum um verkefnið á framfæri.

Líkt og komið var inná á fundinum hvetjum við ykkur til að fylgja okkur á Facebook  og kynna ykkur hópana okkar tvo:

  • Græn skref – Samráðsvettvangur
    Vettvangur fyrir stofnanir í Grænum skrefum til að leita ráða hjá hvorri annarri og deila með sér hugmyndum af góðum leiðum og lausnum til að ljúka aðgerðum.
  • Græn skref – Nytjamarkaður
    Nytjamarkaður fyrir ríkisstofnanir til að koma hlutum aftur í notkun hjá öðrum. Aðeins ríkisstofnanir geta auglýst hluti en allir geta keypt eða fengið hlutina.

Hér að neðan má sjá upptöku af fundinum og nálgast erindin á pdf formi.

 

Fréttir af Grænu skrefunum – Hildur Harðardóttir
Grænt bókhald og Gagnagáttin – Birgitta Steingrímsdóttir
Loftslagsstefna og leiðbeiningar Umhverfisstofnunar – Ásdís Nína Magnúsdóttir

Menntaskólinn á Tröllaskaga stígur 3. skrefið

Menntaskólinn á Tröllaskaga hlaut nýverið viðurkenningu fyrir 3. Græna skrefið sitt og er því komin lengst allra skóla í verkefninu. Einkunnarorð skólans eru frumkvæði, sköpun og áræði og má með sanni segja að þau standi undir þeim í umhverfisstarfi skólans.

Nemendur í námskeiðinu Drasl eða djásn

Í úttekt Umhverfisstofnunar mátti sjá að skólinn horfir bæði til sinna beinu umhverfisáhrifa með það að marki að draga úr þeim en leggur einnig mikið uppúr umhverfisfræðslu í kennslu sinni. Slík fræðsla getur skilað sér margfalt út í samfélagið enda fara nemendur frá skólanum með dýrmæta þekkingu sem þeir nýta vonandi til að hafa jákvæð áhrif á sína framtíðar vinnustaði, skóla o.s.frv.

Það er orðin eðlilegur hluti af lífinu í skólanum að rekast á róbot á kaffistofunni eða ganginum

Í skólanum í vetur var til dæmis námskeið sem bar nafnið Drasl eða djásn, en þar nýtti kennarinn bakgrunn sinn sem vöruhönnuður til þess að fá nemendurna til að skapa nothæfa hluti úr einhverju sem annars hefði lent í ruslinu. Að auki má nefna kúrsinn Úrgangslist þar sem nemendur búa til list úr rusli og að kennarar eru duglegir að gera umhverfistengd verkefni í kúrsum sem í raun snúast um annað eins og stærðfræði, líffræði, ensku eða félagsfræði.

Í úttektinni var gaman að sjá hve langt skólinn er kominn í fjarvinnu og hversu eðlilegur hluti af lífinu á kennarastofunni var að hitta róbot á spjalli en hann nýta þeir kennarar sem ekki eru á staðnum, t.d. kennari sem býr í Gautaborg.

Skrifstofur Landspítala stíga tvö Græn skref

Skrifstofur Landspítala í Skaftahlíð hafa nú stigið fyrstu tvö Grænu skrefin. Á Landspítala hefur öflugt umhverfisstarf verið unnið um árabil og gekk innleiðing Grænu skrefanna vel og örugglega fyrir sig í Skaftahlíðinni. Líkt og kemur fram á heimasíðu spítalans er Landspítali einn stærsti vinnustaður landsins með rúmlega 5 þúsund starfsmenn og starfsemin umfangsmikil og fjölbreytt. Undanfarin ár hefur verið unnið ötullega að verkefnum sem draga úr umhverfisáhrifum og hefur áhersla verið lögð á gera hlutina sem einfaldasta og skýra sé þess kostur, þannig að auðvelt sé fyrir starfsfólk að vera umhverfisvænt.

Við bendum á að hér er hægt að nálgast allar helstu upplýsingar um umhverfismál á Landspítalanum.

Innilega til hamingju með fyrstu tvö skrefin!

Hér má sjá þau Eirík Svansson, Huldu Steingrímsdóttur og Hólmfríði Erlingsdóttur sem mynda umhverfisteymi Landspítala með viðurkenningarskjal Grænna skrefa.

 

Einnota borðbúnaður úr plasti heyri brátt sögunni til

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra mælti nýverið fyrir frumvarpi sem kveður á um bann við að setja tilteknar, algengar einnota plastvörur á markað.

Þar á meðal er einnota borðbúnaður úr plasti. Eitt af markmiðum Grænna skrefa er að draga úr óþarfa sóun, meðal annars með því að hætta alfarið notkun á einnota borðbúnaði og því má segja að frumvarpið styðji vel við verkefnið.

Ýmsar fleiri plastvörur falla undir frumvarpið og var sjónum fyrst og fremst beint að algengum plastvörum sem finnast á ströndum við ákvarðanatöku um hversu langt bannið ætti að ná.

Með frumvarpinu er innleidd að stærstum hluta ný Evróputilskipun og því munu margar þjóðir ganga í takt í þessum efnum á næstunni.

Nánar um hvaða aðrar plastvörur um ræðir má finna hér.