Aðgerðir Grænna skrefa uppfærðar
Síðustu mánuði höfum við verið að uppfæra Grænu skrefin (sjá undir vinnugögn). Aðgerðir sem þóttu ekki eiga við lengur voru teknar út og aðrar lagfærðar, eða aðgerðum bætt við. Heilt yfir má segja að kröfurnar hafi verið þyngdar aðeins og það mun verða erfiðara fyrir einhverjar stofnanir að ná öllum skrefunum. Ástæða þess er að þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir eru miklar og því eðlilegt að vinna við að draga úr umhverfisáhrifum sé í takt við þær. Grunnurinn að verkefninu er þó áfram sá að sem flestar stofnanir taki þátt í verkefninu og vinni markvisst að umhverfismálum og munum við aðstoða við það eins og hægt er.
Okkur langar að biðja ykkur sem eru þegar í vinnu við innleiðingu verkefnisins að skipta eldri gátlista út fyrir nýrri. Héðan í frá munum við gera úttektirnar byggðar á uppfærðum aðgerðum.
Gangi ykkur vel og munið að hafa samband ef eitthvað er.
Framkvæmasýslan með sitt fyrsta skref
Framkvæmdasýsla ríkisins var að fá afhenta viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið. Þau eru vel að þessari viðurkenningu komin enda umhverfismál orðin nokkuð rótgróin hjá þeim og breytingarnar voru í þetta sinn frekar litlar.
Viðtal á Hringbraut
Hvað er grænt bókhald og Græn skref í ríkisrekstri spyr Linda Blöndal, Hólmfríði Þorsteinsdóttur verkefnisstjóra. Viðtalið byrjar á mín 17:40 fyrir þá sem hafa áhuga.
Nánast hægt að flokka allt
Starfsmenn hjá Framkvæmdasýslu ríkisins vita nánast ekki hvað almennt sorp er, enda fellur nánast ekkert slíkt til hjá þeim. Þar er nánast allt flokkað enda er almenna sorpið í pínulítilli fötu. 
5 skrefið hjá Náttúrufræðistofnun
Til hamingju Náttúrufræðistofnun Íslands með fimmta og síðasta Græna skrefið! Stofnunin hefur unnið ötullega að því að innleiða verkefnið og draga úr umhverfisáhrifum um nokkurn tíma. Stofnunin er í húsnæði sem er með BREEAM vottun, leggur mikla áherslu á góða nýtingu hluta og endurnotkun. Auk þessa hafa þau bætt sig ár frá ári við að flokka úrganginn en árið 2017 fór 75% af úrganginum í endurvinnslu. Þar með er Náttúrufræðistofnun með þriðja besta árangur í flokkun meðal þeirra stofnana sem skila grænu bókhaldi. Þau hafa nú sett sér enn metnaðarfyllra markmið fyrir þetta ár. Vel gert!
Úttektir hjá Skógræktinni
Grænu skrefin voru í heimsókn hjá Skógræktinni í Þjórsárdal og þar hefur sveitarfélagið (Skeiða- og Gnúpverjahreppur) komið með frábæra lausn á því að losa lífrænan úrgang frá íbúum. Í sveitarfélaginu eru margir bændur og því oft erfiðarar um vik að sækja margar mismunandi flokkunartunnur heim á bæi. Þá ákvað sveitarfélagið að grafa niður hólka með loki sem fólk setur lífrænan úrgang í. Þegar holan er full er grafin önnur hola á öðrum stað og hólkurinn settur þar ofan í. Þar sem garðar eru stórir eða landpláss mikið þar getur þetta verið mjög hentug lausn og þar sem ekki er verið að sækjast eftir moltunni þá þarf ekkert að hugsa um holuna. Það verður gaman að fylgjast með þessari lausn hjá sveitarfélaginu í framtíðinni.
ÍSOR eru komin með 2 Græn skref
Innilega til hamingju með árangurinn. ÍSOR hefur unnið vel að innleiðingu skrefanna síðustu misseri og fengu fyrsta skrefið afhent í janúar. Nú stefna þau á þriðja skrefið strax í haust. Meðal þess sem þau hafa gert er nú nýverið settu þau upp aðgangsstýringu á prentarana og finna strax mikinn mun í útprentun efnis. Við hlökkum til frekara samstarfs 🙂
Fræðsluefni um matarsóun
Matarsóun getur haft gríðarlega mikil og fjölþætt umhverfisáhrif. Sóun á matvælum verður til á öllum stigum virðiskeðjunnar s.s. í framleiðslu, flutningi, sölu og á heimilum. Losun gróðurhúsalofttegunda vegna matarsóunar á Íslandi er talin vera um 5% af heildarlosun sem íslensk stjórnvöld eru ábyrg fyrir, það munar því um minna þegar við eigum að draga úr losun um 40% á næstu 12 árum. Umhverfisstofnun lét gera kynningarefni um matarsóun sem hægt er að nýta til margskonar kynningar – endilega notið 🙂
Samgöngusamningar skipta máli
Í baráttunni við loftslagsbreytingar þurfum við Íslendingar að draga úr losun um 40% og þar vega mest vegasamgöngur. Því skiptir mestu máli að við reynum að draga úr losun eins og hægt er þegar kemur að samgöngum. Samgöngusamningar virka sem hvatning til starfsmanna um að koma með umhverfisvænni hætti til og frá vinnu og geta þar af leiðandi dregið úr losun en svo eru aðrir þættir sem við þurfum að horfa til eins og fjárfesting í vegasamgöngum og samgönguflæði. Því fleiri sem ganga, hjóla og nota strætó, því betra fyrir umhverfið og samgöngukerfið okkar.
En hvernig fer þetta fram? Jú stofnanir/fyrirtæki bjóða starfsmönnum að gera gagnkvæman samning þar sem fyrirtækið/stofnunin skuldbindur sig til að greiða ákveðna upphæð til starfsmannsins noti hann umhverfisvænni samgöngur. Að sama skapi samþykkir starfsmaðurinn að ferðast til og frá vinnu að minnsta kosti þrjá daga í vinnu með umhverfisvænni hætti.
Í meðfylgjandi skjali má sjá útgáfu af samgöngusamningi. Hvernig þeir eru útfærðir fer að sjálfsögðu allt eftir hverri stofnun eða fyrirtæki fyrir sig og hvað hentar í hverju tilfelli. Verið óhrædd við að prufa mismunandi leiðir en það getur vel verið að ein leið henti ekki öllum jafnvel.
Samgöngusamningar hafa þegar sannað gildi sitt en þar sem þeir eru í boði er starfsfólk tilbúnara til að nýta sér vistvænni samgöngur. Hjá Umhverfisstofnun voru 44% starfsmanna með heilsárssamgöngusamning, 10% starfsmanna var með sumarsamning og 4% með samninga um að hjóla á fundi. Samanlagt voru því 58% starfsmanna með einhvers konar samgöngusamning á árinu 2017.
Vilt þú vita um hvað Grænu skrefin eru?
Þann 17. maí var haldinn kynningarfundur um verkefnið Græn skref í ríkisrekstri en þar var farið yfir tilurð, markmið og framkvæmd Grænna skrefa og græns bókhalds sem og tengsl þeirra við losun Íslands á gróðurhúsalofttegundum skoðuð.
Hægt er að horfa á kynninguna hér.









