Hjólavottun vinnustaða

Verkefnið Hjólavottun vinnustaða veitti nokkrum ríkisstofnunum vottun sína fyrir bætta aðstöðu fyrir reiðhjól viðskiptavina og samgöngustefnu fyrirtækja. Það var gaman að sjá að mörg ráðuneyti voru með í þessari lotu s.s. Forsætis-, efnahags- og fjármála-, utanríkis, umhverfis- og auðlinda-, atvinnu- og nýsköpunar, dómsmála-, samgöngu- og sveitarstjórnar-, mennta- og menningarmálaráðuneytið. Einnig fengu Orkustofnun, Samgöngustofa og Seðlabanki Íslands hjólavottun. Frekari upplýsingar um verkefnið er hægt að finna hér.

 

5 skref hjá Vínbúðinni á Húsavík

Jæja þar kom að því að 51 Vínbúðin fengi úttekt og afhenta viðurkenningu fyrir öll fimm Grænu skrefin. Nú eru allar Vínbúðirnar komnar með öll Grænu skrefin sem og höfuðstöðvar ÁTVR. Innilega til hamingju með frábæran árangur! 

Flokkunarmerkingar fyrir alla

Við létum gera þessar flokkunarmerkingar, sem byggja á grunni frá Landsspítalanum og með þeirra leyfi. Einhverjum finnst flokkun frekar flókin og þá hjálpar ekki að margar mismunandi tegundir af merkingum eru til. Þessar merkingar standa ykkur því til boða og við hvetjum ykkur til að nota þær. 

Þekkjum merkin

Oft er talað um frumskóg umhverfismerkja og að framleiðendur séu að gefa misvísandi upplýsingar um hversu umhverfisvæn varan er. Vissulega getur verið rétt að við framleiðslu hafi verið tekið tillit til umhverfisþátta en ef áreiðanlega vottun skortir er erfitt að segja til um hvort framleiðandi sé í raun að segja satt og rétt frá. Til að vera viss um að varan sé vottuð er gott að leggja þessi örfáu merki á minnið. Ef við kaupum vörur með þessum merkjum getum við verið viss um að varan og framleiðsla hennar standist kröfur um lágmörkun umhverfisáhrifa. Frekari upplýsingar um umhverfismerkin má sjá hér á vefsiðu Umhverfisstofnunar. 

Kynningarfundur um Grænu skrefin

Vill þín stofnun taka þátt í Grænum skrefum í ríkisrekstri? Umhverfisstofnun býður til kynningarfundar fyrir nýja þátttakendur þann 17. maí kl. 09:00. Skráning fer fram hér

Verkefnið er á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og fer Umhverfisstofnun með umsjón þess. Markmið þess er að draga úr umhverfisáhrifum vegna opinbers reksturs og auka þekkingu starfsfólks á umhverfismálum. Allar upplýsingar um verkefnið eru inni á www.graenskref.is og svo erum við líka með facebook síðu /graennrikisrekstur/

Verkefnið er ríkisstofnunum að kostnaðarlausu, það er auðvelt og einfalt í innleiðingu og hægt að leita til Umhverfisstofnunar fyrir frekari upplýsingar eða aðstoð. 

Alls 58 ríkisstofnanir eru komnar í verkefnið með um 200 starfsstöðvar t.d. Alþingi, Menntaskólinn við Sund, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Vegagerðin, Ríkiskaup, Náttúrustofnun Íslands. Sjö ráðuneyti eru einnig komin í verkefnið umhverfis- og auðlindaráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, forsætisráðuneytið, utanríkisráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dómsmálaráðuneyti og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Fundurinn verður haldinn 17. maí kl. 09:00 – 10:30 hjá Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24, 3. hæð. Þátttakendum býðst einnig að taka þátt í gegnum Skype for business.

 

 

Prestastefnan með umhverfisáherslu

Prestastefna Þjóðkirkjunnar var haldin dagana 24- 26. apríl. Umhverfismálin voru í brennidepli og var Grænu skrefunum boðið að halda erindi. Framkvæmdaáætlun umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar var kynnt en í henni koma fram metnaðarfullar aðgerðir kikjunnar til að draga úr umhverfisáhrifum innan stéttarinnar. Það var virkilega ánægulegt að fá að taka þátt í þessu og verður gaman að fylgjast með umhverfismálum hjá þjóðkirkjunni í framtíðinni.

Þriðja skref Skipulagsstofnunar

Áfram heldur Skipulagsstofnun að innleiða skrefin með smá pásu þó, en þau fluttu í nýtt húsnæði fyrir síðustu áramót. Skipulagsstofnun var ein þriggja ríkisstofnana sem á sínum tíma hlutu fyrstar viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið. Innilega til hamingju með flottan árangur. 

Vel sóttur fræðslufundur

Aðsókn á fræðslufund um grænt bókhald ríkisstofnana fór fram úr björtustu vonum og við erum mjög glöð yfir að þessi hluti umhverfismálanna fær aukinn áhuga. Tæp 50 manns sóttu fundinn þar sem farið var yfir breytingar á bókhaldinu og áherslur á loftslagsmál. Formlegur frestur til að skila grænu bókhaldi er 1. apríl en við tökum þó við því allt árið og hvetjum stofnanir til að gera það. Endilega hafið samband við starfsmann verkefnisins Hólmfríði Þorsteinsdóttur, ef spurningar koma upp. Fundurinn var tekinn upp og má sjá hér.

Fræðslufundur – Grænt bókhald

Ákveðið hefur verið að halda stutta fræðslufundi um ýmis málefni 2-4 á ári. Við byrjum á grænu bókhaldi sem hentar vel þar sem skil á því er nú þessa dagana. Þetta verður léttur fundur, opið fyrir spjall og fyrirspurnir. Skráning fer fram hér https://goo.gl/forms/nBnJLWAn9BOApiVF2 

Að hjóla er raunverulegur valkostur

Háskóli Íslands gaf út kort fyrir starfsmenn og nemendur þar sem hvatt er til þessa að fólk hjóli til og frá skólanum. Á kortinu má sjá hversu langan tíma það tekur fólk að hjóla einn km. Bendum líka á vefsíðu Hjólafærni en þar er hægt að skoða tímavegalengdir í nokkrum sveitarfélögum. 

Nokkrar hjólastaðreyndir:

1. Hjólreiðar eru frábær heilsurækt

2. Reiðhjólið er umhverfisvænt

3. Á hjólinu sleppurðu við umferðaröngþveiti

4. Tími gefst til að skoða sig um og njóta útiveru

5. Góð hjólastæði eru upp við byggingar Háksólans og enginn tími fer í að leita að bílastæði

6. Reiðhjólið er ódýrt í rekstri í samanburði við einkabílinn