Fyrstu tvö skrefin komin í hús

Þjóðminjasafn Íslands er komið með tvö fyrstu Grænu skrefin. Þjóðminjasafnið er með fimm starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu sem allar fengu viðurkenningu samtímis. Safnið hefur um nokkurt skeið innleitt flokkun og annað er tengist umhverfismálum en þátttaka þeirra í verkefninu dýpkaði þá vinnu. Það var ofsalega gaman að koma til þeirra og greinilega samhentur hópur að innleiða umhverfismálin. Nú þegar þau hafa klárað fyrstu tvö skrefin þá skipta þau um sjálfboðaliða í umhverfishópnum til að dreifa álaginu og gera fleiri ábyrga fyrir verkefninu – góð hugmynd sem gæti nýst fleiri stofnunum. 

Hröð Græn skref

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti fékk fyrsta Græna skrefið sitt afhent í dag en innleiðing á verkefninu hefur gengið hratt og vel fyrir sig. Enda var umhverfishópurinn afar ánægður með hversu vel starfsmenn hafa tekið í að innleiða verkefnið og tileinka sér umhverfismálin.

Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri tók á móti viðurkenningunni. 

Velkomin Matvælastofnun

Nú hefur Matvælastofnun skráð sig til þátttöku í Grænum skrefum en auk verkefna sem stuðla eiga að heilbrigði og velferð dýra, plantna og gæðum matvæla, ætlar stofnunin að taka til við að innleiða umhverfismálin. Hlökkum til samstarfsins.

Ein tunna út fyrir aðra

Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið hefur unnið ötullega að því að uppfylla Grænu skrefin og eru t.d. búin að taka ruslatunnurnar við skrifborð starfsmanna. Í skjóli nætur voru allar ruslatunnurnar fjarlægðar en í staðinn fengu starfsmenn litlar tunnur á borðin sín, fyrir t.d. miða, sælgætisbréf, hefti og smárusl. Mikilvæg skilaboð fylgdu þó með að auðvitað eiga starfsmenn sjálfir að flokka upp úr þeim þegar þær eru fullar. 

Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er mjög ánægjulegt að verkefnið Græn skref í ríkisrekstri er sérstaklega tekið fram sem eitt af verkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. „Loftslagsráð verður sett á laggirnar og aðgerðaáætlun um samdrátt í losun verður tímasett og fjármögnuð.

Í aðgerðaáætlun verða meðal annars sett markmið um samgöngur og hlutfall ökutækja sem ganga fyrir vistvænni orku í bílaflota landsmanna, orkunýtni í atvinnulífinu, innleiðingu alþjóðlegra samninga um vernd hafsins, græn skref í ríkisrekstri og loftslagssjóð og stefnt að banni við notkun svartolíu í efnahagslögsögu Íslands.“

Skýr skilaboð

Leiðbeiningar um flokkun þurfa ekki alltaf að vera flóknar og þegar mikið er að gera þá hjálpar að láta það ekki flækjast fyrir sér að hafa hlutina of formlega. Hér var vinsamleg ábending send til starfsmanna Umhverfisstofnunar um að flokka betur. 

Borið hefur á því undanfarið að hráefnin villast af leið sinni í tunnurnar. Endilega skoðið þessar fallegu myndir, lærið á hráefnin og flokkið rétt. Ef þið eru ekki viss, spyrjið, flokkunarfasistarnir eru margir hjá stofnuninni og tilbúnir til að hjálpa 🙂 

Það á nánast ekkert að fara í almennan úrgang, skola á umbúðir og taka í sundur séu þær samsettar.

 

 

Össur með hvetjandi skilaboð

Fyrirtækið Össur tók þátt í Nýtnivikunni og í því tilefni sendu þau út nokkra fróðleiksmola til starfsmanna sinna tengdum úrgangsmálum og fyrirætlunum í þeim málum. Skýr og skemmtileg framsetning. 

Hvatt til gerðar nýrrar stefnu um vistvæn innkaup

Með skýrslu sinni til Alþingis hvetur Rík­is­end­ur­skoðun fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyti til að ljúka sem fyrst vinnu við nýja stefnu um vist­væn inn­kaup og grænan ríkisrekstur. Þá er lögð áhersla á að í stefn­unni sé hvatt til auk­innar þátt­töku ráðu­neyta og stofn­ana. Skýrsluna má sjá í heild sinni hér

Vínbúðin í Stekkjarbakka hefur lokið öllum fimm skrefunum

Vínbúðin í Stekkjarbakka er komin í hóp þeirra Vínbúða sem lokið hafa öllum fimm skrefunum. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂

Nýtnivikan 2017

Samevrópskri Nýtniviku er nýlokið en átakið hófst með Kaffi Nýtni „Repair café“. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á slíkan viðburð á Íslandi og stóðu Umhverfisstofnun og Reykjavíkurborg saman að skipulagningu hans. Hugmyndafræði „Repair café“ er að fólk geti komið saman og fengið aðstoð við að gera við hluti í stað þess að henda og kaupa nýtt. Í þetta sinn var viðburðurinn haldinn á Kaffi Laugarlæk í Reykjavík og var boðið upp á aðstoð og ráðleggingar við viðgerðir á húsgögnum, fatnaði og hjólum. Mikill áhugi var á viðburðinum og að álíka verði aftur haldið síðar.