Menntaskólinn á Tröllaskaga með fjögur skref

Menntaskólinn á Tröllaskaga hefur nú lokið við fjögur Græn skref.

Menntaskólinn leggur mikið upp úr því að vera framarlega á sviði umhverfismála og vinnur flott umhverfisstarf í bæði Grænum skrefum og Grænfánanum. Í starfi sínu horfir skólinn til sinna beinu umhverfisáhrifa með það að marki að draga úr þeim en leggur einnig mikið uppúr umhverfisfræðslu í kennslu sinni. Umhverfisstarf í nærumhverfi auk umhverfisfræðslu getur skilað sér margfalt út í samfélagið enda fara nemendur frá skólanum með dýrmæta þekkingu sem þeir nýta vonandi til að hafa jákvæð áhrif á sína framtíðar vinnustaði, skóla, fjölskyldur og svo framvegis.

Við óskum skólanum til hamingju með fjórða skrefið!

Menntasjóður námsmanna stígur 1. skrefið

Birgitta Steingrímsdóttir frá Umhverfisstofnun afhenti þeim Helgu Sigurðardóttur og Ernu Margréti Valbergsdóttur sem fara fyrir umhverfisteymi Menntasjóðsins, viðurkenningu fyrir 1. skref.

Menntasjóður námsmanna skráði sig til leiks í Grænu skrefin í lok ágúst og hefur nú fengið viðurkenningu fyrir innleiðingu á 1. skrefinu. Eins og fram kom í ávarpi Hrafnhildar framkvæmdarstjóra hefur verið hugað að umhverfismálunum hjá Menntasjóðnum um langt skeið og margar aðgerðir í fyrsta skrefi reyndust nú þegar uppfylltar þegar á hólminn var komið.

Góð flokkunaraðstaða er til staðar á kaffistofu þar sem tunnur eru vel merktar og leiðbeiningar um rétta flokkun eru sýnilegar. Fyrir gesti og starfsmenn sem mæta hjólandi er góð aðstaða til að læsa hjólum, áminningarmiðar hafa verið settir upp til að minna starfsfólk á að slökkva á ljósum, raftækjum og gluggum og passað er upp á kaupa einungis umhverfisvottuð ræsti- og hreinsiefni.

Til hamingju með árangurinn og gangi ykkur vel með næsta skref!

Þjóðskrá Íslands komin með fjögur skref!

Í ársskýrslu Þjóðskrár, sem kom út í júlí á þessu ári, kom fram að stofnunin steig nýverið sitt annað skref. Og nú, minna en 6 mánuðum seinna, er stofnunin búin að arka áfram og bæta við sig þriðja og fjórða skrefinu. Til hamingju!

Í áðurnefndri ársskýrslu Þjóðskrár Íslands kom fram að 76% af úrgangi stofnunarinnar hafi verið endurunnin árið 2019. Í fyrra notuðu þau líka 150.000 færri prentuð blöð en 2016 og um 25.000 færri km voru eknir miðað við 2017. Og nú hafa þau þegar gengið enn lengra. Árið 2020 flokka þau meira en 80% af úrgangi sínum, skila grænu bókhaldi, velja umhverfisvænar vörur, styðja við vistvænar samgöngur,  og sjá til þess að viðburðir og fundir séu umhverfisvænir.

Stofnunin hefur líka staðið sig sérstaklega vel í stafrænum lausnum. Í raun byrjaði sú vegferð fyrir 10 árum síðar. Stafrænar lausnir spara ekki aðeins tíma og peninga heldur draga úr sóun, og eru því mikilvægar fyrir græna vegferð.

Afhendingin var að þessu sinni með Covid sniði og viðurkenningarskjölin eru á leiðinni í pósti. En við skemmtum okkur engu að síður vel og við óskum starfsmönnum öllum til hamingju með þennan árangur!

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra stígur 3. skrefið

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra skráði sig í verkefnið í lok september á þessu ári og hefur á undraverðum tíma lokið við fyrstu þrjú skrefin! Skólinn hefur gert greiningu á sorpmálum skólans og unnið að því að bæði draga úr myndun úrgangs en jafnframt að koma honum til endurvinnslu og endurnýtingar.

Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til næstu skrefa.

Grænir sveinar koma arkandi til byggða

Það eru ekki bara stofnanir í ríkisrekstri og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins sem eru í óðaönn við að taka Græn skref. Jólasveinarnir hafa nefnilega tekið sig í gegn og arka núna grænum skrefum til bæja. Sem hluti af stefnumótunar og ímyndarvinnu jólasveinanna hafa þeir ákveðið að taka upp ný og grænni nöfn:   

  1. Hleðslustaur kemur fyrstur með rafmagnaða orku 
  2. Ruslaplokka er iðin við að plokka rusl um allar trissur 
  3. Nýtnir passar upp á að endurnota allar umbúðir, föt, mat og annað sem fellur til 
  4. Skammtamælir er mikill nákvæmnismaður sem passar að ekkert fari úr hófi 
  5. Sokkastoppa læðist í sokkaskúffur barnanna á nóttunni og skilur eftir bætta sokka að morgni 
  6. Skefill skefur ekki bara vandlega úr pottunum heldur öllum umbúðum sem hann kemst í tæri við 
  7. Hjólabuna þeysist um bæinn á tryllitækinu sínu 
  8. Leifasvelgur veit ekkert betra heldur en að komast í afganga 
  9. Restafrystir nýtir það sem er eftir þegar bróðir hans er orðinn saddur og hendir í frystinn 
  10. Gluggaþéttir er í óðaönn að þétta alla glugga og loka þeim sem hafa gleymst opnir 
  11. Dekkjaskelfir, óþekktaranginn sá, læðist um og skiptir út nagladekkjum fyrir heilsársdekk 
  12. Pokakrækir krækir sér í plastpoka og skiptir þeim út fyrir margnota poka 
  13. Flöskusníkir fer um allan bæ og sníkir flöskur sem hann gefur svo til styrktar góðra málefna 

En ekki nóg með að sveinarnir góðu hafi tekið ímynd sína í gegn, þá hafa þeir líka endurmetið það sem þeir eru að gefa í skóinn. Þeir reyna nú enn fremur en áður að styðja við góðar samverustundir og gefa gagnlegar gjafir. Þeir gefa gjarnan hluti sem hægt er að borða, bera á sig, upplifa eða gjafir sem þeir vita að vantar. Þeir gefa heldur minna en meira. Hér er dæmi um hluti sem leynast í pokanum hjá grænu sveinunum góðu: 

  1. Bíómiði 
  2. Umhverfisvottað freyðibað fyrir káta krakka 
  3. Klassíska mandarínan 
  4. Vettlingar keyptir í nytjamarkaði eða loppu 
  5. Ávaxtastangir 
  6. Margnota gríma 
  7. Kvikmyndaleiga á streymisveitu 
  8. Allt sem þarf til að gera heitt súkkulaði 
  9. Sundmiði 
  10. Hnetur og rúsínur 
  11. Eitthvað heimagert, eins og prjónaðar grifflur eða smákökur 
  12. Lífrænt og siðgæðismerkt súkkulaði 
  13. Gjöf í gegnum hjálparstarf, eins og að ættleiðing á dýri í útrýmingarhættu, handsápa fyrir þurfandi börn, eða hænur fyrir þurfandi fjölskyldur

Fjórða og fimmta skrefið í höfn hjá Dómsmálaráðuneytinu og Samgöngu- og sveitarstjórnarráðurneytinu!

Þann 4. desember síðastliðinn hlutu Dómsmálaráðuneytið og Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið fjórða og fimmta skrefið samtímis. Dómsmálaráðuneytið og Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið skráðu sig til leiks í nóvember 2018 og fengu fyrstu þrjú skrefin á einu bretti í ágúst 2019. Þau hafa því tekið Grænu skrefin föstum og öruggum tökum.

 

Samvinna þessara tveggja ráðuneyta hefur verið til fyrirmyndar. Umhverfis- og loftslagsmálin eru einmitt þess eðlis að samvinnu er krafist til að vel takist til.

 

Á mynd má sjá ráðuneytisstjóra Dómsmálaráðuneytisins, Hauk Guðmundsson,  og ráðuneytisstjóra Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, Ragnhildi Hjaltadóttir,  taka á móti viðurkenningu Grænna skrefa fyrir hönd sinna ráðuneyta.

 

Við óskum þeim kærlega til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir gott samstarf!

Umboðsmaður barna stígur Grænu skrefin

Við heyrum stundum að það taki því ekki fyrir vissa vinnustaði að taka þátt í Grænu skrefunum sökum smæðar. En staðreyndin er sú að allur rekstur hefur einhver áhrif á umhverfið; starfsmenn þurfa að ferðast til og frá vinnu og jafnvel í vinnu, við þurfum rafmagn og hita, kaupum vörur, borðum mat og starfseminni fylgir alltaf einhver úrgangur. Eitt aðalmarkmið Grænna skrefa er að efla umhverfisvitund starfsmanna og það er sannarlega jafn mikilvægt á litlum vinnustöðum sem og stórum.

Að þessu sögðu bjóðum við nýjasta þátttakanda Grænna skrefa, Umboðsmann barna, velkominn til leiks. Hjá embættinu starfa 5 manns í Kringlunni, Reykjavík og vinna þau að því að tekið sé fullt tillit til réttinda, þarfa og hagsmuna barna. Embættið setur fram ábendingar og tillögur um úrbætur sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins. Við hlökkum til samstarfsins!

 

Upptaka og glærur af fyrirlestri um lífræna framleiðslu

Þann 2. desember hélt Berglind Häsler, verkefnastjóri Lífræns Íslands, fyrirlestur fyrir þátttakendur Grænna skrefa á Teams. Erindið var afar áhugavert og vel sótt og ljóst að stofnanir hins opinbera geta gengt veigamiklu hlutverki þegar kemur að því að greiða götu lífrænnar framleiðslu með því að búa til eftirspurn eftir slíkum vörum. Eins og Berglind kom inn á í erindi sínu eru margar ástæður fyrir því að við ættum að velja lífræn matvæli fram yfir önnur:

– Enginn tilbúinn áburður
– Engir hormónar
– Ekkert eitur
– Strangir framleiðsluferlar
– Vottun háð eftirliti
– Mikilvægt á tímum loftlagsbreytinga
– Varðveitir líffræðilega fjölbreytni

Í uppfærðum aðgerðum Grænna skrefa verður meiri áhersla lögð á lífræn matvæli og það sama má segja um uppfærð umhverfisskilyrði fyrir innkaup matvæla samkvæmt Innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila. Á heimasíðu Lífræns Íslands má nálgast lista yfir íslenska framleiðendur lífrænt vottaðra vara og hér getið þið lesið ykkur til um lífrænar vottanir.

Hér að neðan finnið þið bæði glærur og upptöku af fyrirlestrinum:

Lífrænt Ísland – Berglind Häsler

Fyrirlestur um lífræna framleiðslu

Í næstu viku ætlar Berglind Häsler, verkefnastjóri Lífræns Íslands, að vera með erindi fyrir okkur í Grænu skrefunum á Teams.

Berglind ætlar að ræða stöðu og horfur lífrænnar framleiðslu á Íslandi. Fjölmargar erlendar rannsóknir sýna fram á ágæti lífrænnar ræktunar – fyrir umhverfið og lýðheilsu. Í samræmi við það hafa löndin sem Ísland ber sig gjarnan saman við sett sér langtíma markmið um hvernig lífræn framleiðsla skuli aukin. Ísland er algjör eftirbátur í þessum efnum og mýtan um að allt næstum lífrænt hér á landi – ansi lífsseig. Berglind hefur sjálf stundað lífræna ræktun á Karlsstöðum í Berufirði og framleiðir nú Bopp, sem er lífrænt vottuð vara frá Havarí.

Fyrirlesturinn fer fram þann 2. desember frá kl. 11-12. Berglind talar í um hálftíma og svo gefst ykkur kostur á að senda inn spurningar. Fundurinn verður tekinn upp og birtur á heimasíðu Grænna skrefa.

Við hvetjum ykkur til að deila fundarboðinu áfram innan ykkar stofnunar og sérstaklega til starfsmanna í eldhúsi eða aðkeyptrar mötuneytisþjónustu. Í Innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila leggja stjórnvöld áherslu á að auka hlut lífrænna matvæla hjá stofnunum ríkisins  og höfum við lagt áherslu á þetta í Grænu skrefunum. Það verður því fróðlegt að heyra hvað Berglind hefur að segja og vonandi kemur hún með góð ráð fyrir okkur um hvernig við getum aukið innkaup á lífrænum matvælum – umhverfi og starfsfólki til góða.

Hér er linkur á fundinn (uppfærður 2. des)

Fiskistofa komin með 1. skrefið!

Fiskistofa lauk fyrsta græna skrefinu á öllum sínum starfsstöðvum – Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, Stykkishólmi, Ísafirði, Höfn og Akureyri – nú í haust og stefna ótrauð áfram.
Vegna faraldursins fóru úttektirnar fram í gegnum fjarfundabúnað og einnig viðurkenningarafhendingin eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Græna teymið hjá Fiskistofu samanstendur af tengiliðum á hverri starfsstöð sem hafa tekið verkefninu með gleði og áræðni. Í spjalli okkar við afhendingarathöfnina kom fram að margt er nú þegar til staðar hjá stofnuninni svo sem ítarleg flokkun á sorpi en tengiliðirnir eru sammála um að ný þekking sé að skapast á öðrum sviðum eins og innkaupum, að þekkja umhverfisvottanir og tileinka sér vistvæna innkaupahætti. Hlökkum til að stíga næstu skref með þessum góða hópi.

Óskum Fiskistofu innilega til hamingju!