Nýtnivikan hefst á morgun

Á morgun, 21. nóvember, hefst Nýtnvikan og stendur hún yfir til 29. nóvember. Átakið er samevrópskt og hefur það að markmiði að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs.

Í ár er þema vikunnar „það sem ekki sést“ og er þar vísað til alls úrgangs og sóunar sem myndast í framleiðsluferli vöru áður en hún kemst í okkar hendur en einnig mengunar sem verður vegna virkni vöru án þess að við verðum þess sérstaklega vör. Dæmi um úrgang og sóun sem við gerum okkur svo sannarlega ekki alltaf grein fyrir er orkunotkun og kolefnisspor netnotkunar.

Umhverfisstofnun og Reykjavíkurborg bjóða til þriggja stuttra hádegiserinda í vikunni sem við hvetjum ykkur til að auglýsa innan ykkar stofnunar. Það er t.d. mjög sniðugt að útbúa fundarboð þar sem upplýsingar um erindin og hlekkir eru sendir á allt starfsfólk, þá eru allir með þetta í calendar og geta auðveldlega fræðst yfir hádegismatnum. Allar nánari upplýsingar hér.

Í fyrra tókum við saman lista yfir hugmyndir að viðburðum hjá stofnunum í Nýtniviku, margar eru erfiðar í framkvæmd í dag en eitthvað gæti þó nýst sem innblástur! Við hvetjum ykkur til að nýta þessa viku til að vekja athygli á neyslu, nægjusemi og úrgangsmálunum – hvernig sem þið ákveðið að gera það. Svartur föstudagur er einmitt í næstu viku svo það er ekki úr vegi að koma með smá mótvægi inn í neyslubrjálæðið sem oft grípur fólk á þessum tíma árs. Við minnum líka á frétt okkar um grænar gjafir sem á sérstaklega vel við þessa dagana.

 

Íslenska óperan skráir sig til leiks

Íslenska óperan setur reglulega upp vandaðar og fjölbreyttar óperusýningar og hefur öðlast mikilvægan sess í menningarlífi okkar Íslendinga. Stofnunin er staðsett í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í Reykjavík. Fastir starfsmenn eru 5 talsins en fjöldi verkefnaráðinna starfsmanna eykst verulega þegar æfingar og undirbúningur sýninga hefst og getur orðið hátt á annað hundrað. Við bjóðum Íslensku óperuna hjartanlega velkomna til leiks í Grænu skrefin og hlökkum til að skerpa á umhverfismálunum með ykkur!

Skattrannsóknarstjóri ríkisins skráður til leiks

Við bjóðum Skattarannsóknarstjóra ríkisins velkominn í Grænu skrefin og hlökkum til að ganga með honum í umhverfisvænni átt!

PowerPoint og pdf kynningar um Grænu skrefin

Við höfum útbúið Powerpoint og pdf skjöl sem þið getið nýtt í eigin kynningar á Grænu skrefunum eða sent á starfsfólk. Skjölin finnið þið undir Vinnugögn – ítarefni hér á síðunni en þar er einnig að finna margskonar hjálplegt efni sem getur nýst ykkur í innleiðingu skrefanna; umhverfissjónarmið sem gott er að hafa í huga þegar flutt er í nýtt húsnæði, góð ráð fyrir fjarfundi, flokkunarmerkingar og leiðbeiningar um umhverfisvæna viðburði svo eitthvað sé nefnt.

Hér eru skjölin tvö sem um ræðir:

Annars er mikið að gera hjá okkur í yfirferðum á gátlistum, úttektum og afhendingum þessa dagana svo það er ljóst að það er hugur í fólki og margir sem ætla sér að ljúka einu til tveimur skrefum fyrir árslok. Gangi ykkur öllum vel!

Háskólinn á Akureyri stígur tvö Græn skref

Háskólinn á Akureyri lauk í dag við fyrsta og annað Græna skrefið og var því fagnað í viðurkenningarathöfn sem fór fram í gegnum vefinn.

Það er komin hefð fyrir því að hafa umhverfismálin á bak við eyrað í starfi skólans en Grænu skrefin eru ágætis viðbót við það sem þegar hefur unnist.

Fram kom í orðum rektors og annars starfsfólks sem tók til máls á athöfninni að það er mikill metnaður til að gera enn betur svo við hlökkum til að fylgjast með framhaldinu.

Við óskum Háskólanum á Akureyri til hamingju með skrefin tvö!

Skrifstofur Landspítala fá viðurkenningu fyrir skref 3 og 4

Hulda Steingrímsdóttir, umhverfisstjóri Landspítala, tekur hér við viðurkenningu fyrir skref 3 og 4 frá Birgittu Steingrímsdóttur, Umhverfisstofnun.

Í ágúst síðastliðnum lauk Landspítali Skaftahlíð við innleiðingu á skrefi 3 og 4. Vegna Covid fór fjarúttekt ekki fram fyrr en í október og afhending núna í nóvember. Á Landspítala hefur verið unnið markvisst að umhverfismálum frá árinu 2012 og hefur innleiðing Grænu skrefanna gengið hratt og örugglega fyrir sig, en spítalinn skráði sig til leiks í verkefnið í byrjun árs. Þrátt fyrir að flestar aðgerðir væru nú þegar uppfylltar gafst tækifæri til að skerpa á ýmsum hlutum, en t.a.m var komið upp flokkun fyrir lífrænan úrgang á kaffistofum sem ekki hafði verið til staðar áður. Fróðlegt verður að sjá hvort það komi ekki til með að hækka endurvinnsluhlutfall vinnustaðarins. Einnig var farið vel yfir ræsti- og hreinsiefni og passað upp á að einungis séu keypt inn umhverfisvottuð efni.

Í Skaftahlíð er frábær aðstaða fyrir gangandi og hjólandi starfsfólk og gesti, hjólabogar eru fyrir framan afgreiðslu og læst, yfirbyggð hjólaskýli og hjólageymsla standa starfsfólki til boða þar sem hægt er að hlaða rafhjól og hlaupahjól. Búningsherbergi og sturtuaðstaða eru til fyrirmyndar. Starfsfólk hefur aðgang að rafhlaupahjóli og Zipcar til að fara á milli starfsstöðva spítalans eða nota í einkaerindum. Árið 2019 hóf Landspítali tilraunaverkefni þar sem starfsfólki sem skrifar undir samgöngusamning býðst niðurgreitt árskort í strætó. Verkefninu hefur verið vel tekið og fór fjöldi virkra árskorta úr 130 í 540 á árinu. Verkefnið hefur því verið framlengt. Mötuneytið í Skaftahlíð er Svansvottað eins og öll eldhús og mötuneyti spítalans. Starfsfólk skammtar sér sjálft og borgar fyrir matinn eftir vigt í viðleitni til að draga úr matarsóun. Eins og Svansvottun krefur á um er gott framboð af lífrænum matvælum í eldhúsi.

Á vef spítalans má kynna sér umhverfisstarfið þeirra nánar – við mælum með!

Næsta mál á dagskrá er að útfæra 5. skrefið og óskum við Landspítala góðs gengis í þeirri vinnu. Til hamingju með glæsilegan árangur!


Hér má sjá myndir úr Skaftahlíð úr mötuneyti, þar sem áhersla er lögð á lífræn matvæli og minni matarsóun, og frá aðstöðu fyrir starfsmenn sem vilja ferðast til, frá og í vinnu með vistvænum hætti.

Tryggingastofnun komin með þrjú skref

Tryggingastofnun hlaut nýlega viðurkenningu fyrir 2. og 3. Græna skrefið sitt.

Stofnunin skipti nýlega um húsnæði og voru Grænu skrefin höfð til hliðsjónar í því ferli, sem kemur vel út fyrir umhverfisstarfið. Það er mikill kraftur í þeim starfsmönnum sem sjá um innleiðingu svo það verður gaman að fylgjast með næstu skrefum hjá þeim.

Við óskum Tryggingastofnun til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fagna með þeim í raunheimum þegar ástandið í samfélaginu leyfir.

Gljúfrasteinn er nýr þátttakandi í Grænum skrefum

Gljúfrasteinn í Mosfellssveit var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið. Íslenska ríkið keypti húsið árið 2002, þegar öld var liðin frá fæðingu skáldsins, og tveimur árum síðar var það opnað almenningi. Húsið er safn Halldórs Laxness þar sem heimili og vinnustaður hans eru látin haldast óbreytt. Á safninu starfa 4 starfsmenn. Við erum spennt fyrir samstarfinu og bjóðum ykkur velkomin til leiks!

Þrjú græn skref í höfn hjá Héraðssaksóknara

Í september lauk embætti Héraðssaksóknara við innleiðingu á 3. græna skrefinu. Frá því að stofnunin skráði sig til leiks í verkefnið í maí 2019 hefur verið unnið skipulega að innleiðingu þess og er stefnan að ljúka við öll 5 skrefin fyrir júní 2021. Eins og svo margir hefur stofnunin þurft að laga sig að breyttum aðstæðum í samfélaginu og fara yfirheyrslur og skýrslutökur í auknum mæli fram í gegnum fjarfundarbúnað. Vonandi getur embættið nýtt sér þá lausn áfram þegar aðstæður leyfa eftir Covid og dregið þannig enn frekar úr kolefnisspori sínu. Sökum Covid gafst ekki tækifæri til að fagna áfanganum en það verður vonandi gert þegar starfsmenn mæta aftur til vinnu. Til hamingju!

 

Velkomin Náttúruminjasafn Íslands!

Við bjóðum Náttúruminjasafn Íslands kærlega velkomin í Græn skref. Hjá Náttúruminjasafni starfa 12 starfsmenn á 3 starfsstöðvum.

Náttúruminjasafnið er fræðslu- og vísindastofnun sem er ætlað að gegna miðlægu hlutverki við miðlun þekkingar og upplýsinga um náttúrufræðileg efni og vera ráðgefandi gagnvart öðrum söfnum landsins sem sýsla með náttúruna.

Hlökkum til að stíga Græn skref með ykkur!