Menntaskólinn við Hamrahlíð og Grænu skrefin

Við bjóðum Menntaskólann við Hamrahlíð velkominn í Græn skref!

Skólinn hefur sett sér markmið um að efla umhverfisvitund í starfi sínu meðal annars með því að:

  • stuðla að ábyrgri afstöðu til náttúrulegra gæða og auðlindanýtingar,
  • glæða skilning á vistkerfum og sjálfbærri þróun,
  • skapa tækifæri til útivistar í íslenskri náttúru,
  • tengja umhverfismál við sögu og menningu þjóðarinnar,
  • vera til fyrirmyndar og hvetja til góðrar umgengni um náttúru, híbýli og nánasta umhverfi.

 

Þessi markmið ættu að vinna mjög vel með markmiðum og aðgerðum Grænna skrefa og við hlökkum til samstarfsins!

Grænar gjafir  

Á morgunverðarfundi Grænna skrefa spratt upp umræða um umhverfisvænar gjafir. Í þessu samhengi var til dæmis verið að velta því fyrir sér hvað væri græn jólagjöf frá vinnustaðnum til starfsmanna, þakklætisvottur til samstarfsaðila eða umhverfisvænn varningur eins og algengt er að gefa á t.d. ráðstefnum og kynningum (í dag er algengt að sjá buff, penna o.s.frv). 

Í umræðunum spruttu upp allskonar tillögur að gjöfum svo sem fjölnota vatnsflöskur, umhverfisvottaðar vörur og út að borða á stað sem býður upp á grænkerafæði, leikhúsferð o.s.frv.  

Í þessu samhengi er gott að hafa í huga að flestar vörur og afþreying hafa einhver umhverfisáhrif og því ágætt að spyrja sig hvort gjöfin komi raunverulega að gagni. Ef margir starfsmenn eiga t.d. vatnsflösku, fjölnota poka eða slíkt þá er það ekki endilega jákvætt fyrir umhverfið að eiga allt of mikið af þessum hlutum. Þá er gjafabréf í búð sem selur umhverfisvænar vörur kannski betri leið þar sem fólk velur það sem vantar.  

Vilji stofnanir ganga lengra og gefa gjafir án nokkurra umhverfisáhrifa var nefnd ein mjög skemmtileg tillaga í umræðum á morgunverðarfundinum. Það er að gefa starfsmönnum auka frídaga í jólagjöf. Ónefndur yfirmaður á einum vinnustað nefndi að vinnutapið væri lítið þó aukafrídagur væri gefinn, enda líklegt að fólk væri með hálfum hug í vinnunni ef það er að vinna mikið um jólin. Í staðinn sé fólk líklegt að koma enn orkumeira til baka ef það fær almennilegt frí. Gjafakort hjá hjólaviðgerðaþjónustu eða í fataviðgerð er líka skemmtileg pæling! 

Að auki kom fram sú hugmynd að hægt væri að styrkja gott málefni í nafni þeirra sem þiggja gjöfina.  Jafnvel er hægt að ganga ennþá lengra og gefa gjafir með jákvæð umhverfisáhrif svo sem rótarskot til styrktar björgunarsveitanna eða kolefnisjöfnun. 

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum skráir sig til leiks

Skrifstofa sýslumanns í Vestmannaeyjum hefur skráð sig til leiks í Grænu skrefin og bjóðum við þau kærlega velkomin. Teymi Grænna skrefa hlakka mikið til að aðstoða við innleiðingu bætts umhverfisstarfs með þeim.

Á skrifstofu sýslumannsins í Vestmannaeyjum starfa níu starfsmenn.

Sýslumaðurinn á Suðurlandi fetar Græn skref

Við bjóðum skrifstofu sýslumanns á Suðurlandi hjartanlega velkomin í Grænu skrefin og hlökkum mikið til að vinna með þeim að bættu umhverfisstarfi.

 

Skrifstofa sýslumannsins á Suðurlandi er með 25 starfsmenn á fjórum starfstöðvum.

Leiðbeiningar um ábyrga kolefnisjöfnun

Hluti af gerð loftslagsstefnu er að stofnanir setji sér skilgreind markmið um kolefnisjöfnun starfseminnar. Mikilvægt er að kolefnisjafna reksturinn með trúverðugum og ábyrgum hætti og velja verkefni sem hafa raunverulegan loftslagsávinning í för með sér. Við höfum tekið saman leiðbeiningar um viðmið, vottanir og seljendur kolefniseininga sem standast alþjóðlegar gæðakröfur. Leiðbeiningarnar finnið þið undir Vinnugögnumhér.

En hvað er kolefnisjöfnun?

Með nokkurri einföldun má segja að kolefnisjöfnun felist í því að einstaklingar eða lögaðilar bæti fyrir eigin losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) með því að fjármagna verkefni sem a) koma í veg fyrir losun á samsvarandi magni GHL annars staðar eða b) fjarlægja samsvarandi magn GHL úr andrúmsloftinu.

Til þess að sporna gegn loftslagsbreytingum þurfum við fyrst og fremst að draga úr losun GHL. Þetta getum við gert með því að draga úr neyslu og þar með myndun úrgangs, endurvinna þann úrgang sem óhjákvæmilega fellur til, velja vistvænar samgöngur og loftslagsvænna mataræði, minnka matarsóun, nýta hluti betur og lengur og temja okkur orkusparnað. Þegar ekki er hægt að draga frekar úr losun er hægt að fjárfesta í kolefnisjöfnunarverkefnum sem binda eða koma í veg fyrir losun GHL. Kolefnisjöfnun er því ekki „vottorð til þess að menga meira“ heldur á hún ávallt að koma í kjölfar aðgerða til samdráttar.

 

Menntaskólinn á Akureyri bætist í hópinn

Við bjóðum Menntaskólann á Akureyri velkominn til leiks.

Í núgildandi umhverfisstefnu skólans stendur meðal annars „[k]eppa skal markvisst að því að starfsemi og rekstur skólans sé svo umhverfisvænn sem kostur er“ sem rímar vel við Grænu skrefin og verður góður grunnur að byggja á í starfinu sem framundan er.

Við hlökkum til samstarfsins!

Myndir af vinnustofum um umbætur aðgerða

Þessa dagana stendur yfir yfirhalning á aðgerðum Grænna skrefa. Nauðsynlegt er að endurskoða aðgerðirnar reglulega með tilliti til fyrri reynslu og nýrrar þekkingar í umhverfismálum, og höfum við gert þetta á ca 2. ára fresti. Á morgunverðarfundi Grænna skrefa í síðustu viku skiptu þátttakendur sér niður í fjórar vinnustofur þar sem umbætur aðgerða voru ræddar. Umsjónarmenn verkefnisins höfðu þegar farið í nokkra grunnvinnu sem var borin undir þátttakendur og þeim gefið færi á að koma með athugasemdir og hugmyndir að nýjum aðgerðum. Í þessari yfirhalningu leggjum við áherslu á aðgerðir sem koma til enn frekari samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda. Einnig var tekin ákvörðun um að bæta við nýjum flokki – eldhús og kaffistofur – í viðleitni til að tækla betur innkaup mötuneyta, matarsóun og auka framboð á grænmetisfæði.

Hér má nálgast pdf með skjáskotum af öllum umræðuborðum.

Nú erum við að taka saman niðurstöður vinnustofanna og munum láta ykkur vita þegar uppfærður gátlisti verður birtur. Við þökkum ykkur kærlega fyrir ykkar framlag í þessari vinnu og hvetjum ykkur til að heyra í okkur ef þið hafið frekari athugasemdir á þessu stigi.

Upptaka og glærur af morgunverðarfundi

Við þökkum kærlega fyrir góða þátttöku á morgunverðarfundi Grænna skrefa þann 21. október síðastliðinn. Hér að neðan finnið þið upptökur og glærur frá fundinum ásamt spurningum sem við leituðum svara við í kjölfar fundar. Vinnustofur voru ekki teknar upp en myndir af umræðuborðum má finna hér.

Staða Grænu skrefanna og umbætur á aðgerðum – Þorbjörg Sandra Bakke
Græn skref – Þjóðskjalasafn – Anna Elínborg Gunnarsdóttir
Græn skref – Vatnajökulsþjóðgarður – Agnes Brá Birgisdóttir
Aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum – Anna Sigurveig Ragnarsdóttir

Nokkrar spurningar sem við ætluðum að svara hér:

Hver er staðan á samræmingu sorpflokkunar á landsvísu?

Fyrst er vert að undirstrika að samræming sorpflokkunar þýðir fyrst og fremst samræmdar merkingar/litakóðar fyrir hvern úrgangsstraum. Tillaga um samræmingu kemur fram í drögum að stefnu um meðhöndlun úrgangs sem Umhverfisstofnun skilaði til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í október 2019. Áætlað er að sett verði fram frumvarpsdrög um breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs á vorþingi 2021 og er von stofnunarinnar að samræmingarkrafan verði hluti af því frumvarpi.

Á hvaða vettvangi er verið að skoða kaup á kolefnisreikni matvæla og hvar er sú vinna stödd?

Í aðgerð 2.2.A í Innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila, sem samþykkt var árið 2019, segir: Stjórnvöld leggi til reiknilíkan sem mælir kolefnisspor matvæla frá framleiðanda til kaupanda. Umhverfis- og auðlindaráðuneyti og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti eru þessa dagana að skoða hvort fjármögnun fáist fyrir aðgang allra ríkisstofnana að slíkum reikni. Sú vinna er því í gangi en erfitt að segja hvenær niðurstaða fæst í málið.

Sjá upplýsingar um Matarspor Eflu hér.

Hvar finnum við upplýsingar um kolefnisspor vefsíða?

Á síðunni Website Carbon.

Hvar finnum við upplýsingar um það sem hafa skal í huga þegar flutt er í nýtt húsnæði?

Við höfum tekið saman nokkra punkta, sjá undir Vinnugögn hér.

 

 

 

Flensborg tekur skrefin

Flensborgarskólinn í Hafnafirði hefur skráð sig til leiks í Grænum skrefum og bætist þar með í stóran hóp framhaldsskóla sem bæst hafa í hópinn undanfarið.

Við hlökkum til samstarfsins og óskum skólanum velfarnaðar á grænni og vænni braut.

Kvikmyndasafn Íslands gengur til liðs við Grænu skrefin

 

Við bjóðum Kvikmyndasafn Íslands velkominn í Græn skref!

Hjá Kvikmyndasafni Íslands starfa 9 manns. Meginhlutverk safnsins er að safna, skrásetja og varðveita íslenskar kvikmyndir; hafa eftirlit með skilum kvikmyndaefnis og standa fyrir sýningum á innlendri og erlendri kvikmyndalist. Kvikmyndasafn Íslands er fyrst og síðast varðveislusafn og er ekki opið fyrir almenning í sama skilningi og önnur söfn en á heimasíðu þeirra má sjá margar skemmtilegar klippur sem við mælum með að skoða.

Við hlökkum mikið til að vinna að Grænu skrefunum með starfsmönnum Kvikmyndasafns Íslands!