Allar stofnanir stígi Græn skref 2021

Það eru spennandi tímar í Grænu skrefunum og stefnir í að allar stofnanir verði komnar á fullt í umhverfisstarfi sínu á árinu. Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að allar stofnanir ríkisins innleiði Græn skref í ríkisrekstri fyrir árslok 2021, eins og fram kemur bæði í loftslagsstefnu Stjórnarráðsins og í fjárveitingabréfi til stofnananna.

Í fjárveitingabréfi er þetta orðað þannig að ríkisaðilar skuli vinna stöðugt að því að efla vistvænan rekstur ríkisins og vinni meðal annars „að því að uppfylla öll fimm Grænu skrefin í ríkisrekstri á árinu í samræmi við skilyrði loftslagsstefnu Stjórnarráðsins. Stofnanir sem ekki hafi þegar skráð sig til þátttöku ljúki a.m.k. innleiðingu á skrefi tvö fyrir 1. júní 2021 og klári öll skrefin fimm fyrir árslok í samræmi við skilyrði stefnunnar.“

Þetta eru frábærar fréttir fyrir umhverfið og framtíðar kynslóðir auk þess sem það hefur jákvæð áhrif á vinnustaðaumhverfi að stíga skrefin.

Við bjóðum allar stofnanir velkomnar og bendum á að þær sem eiga eftir að skrá sig geti gert það á vef Grænna skrefa.

Landsvirkjun Mývatnssvæði klífa fimm skref í einu

Við viljum óska Landsvirkjun Mývatnssvæði með að hafa tekið fimm Græn skref. Landsvirkjun Mývatnssvæði á sérstakt hrós skilið fyrir að taka öll skrefin í einu.

Oft er sagt að það sé eins og að borða fíl að sinna umhverfisstarfi. Og hvernig borðar maður fíl? Jú einn bita í einu. Grænu skrefin eru hönnuð til þess að umhverfisstarf sé ekki yfirþyrmandi með því að skipta starfinu upp í skref. En Landsvirkjun Mývatnssvæði ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, og tekur þetta allt í einni beit. Það sýnir hversu mikinn metnað starfssemin hefur fyrir umhverfisstarfi. Það sýnir líka hversu mikla og góða forvinnu Landsvirkjun hefur gert. Það er langt síðan Landsvirkjun byrjaði að leggja grunninn að umhverfisstarfi dagsins í dag. Það hefur eflaust fyrst um sinn verið erfitt, en núna er það starf farið að bera ávöxt.

En það fylgja því líka áskoranir að vera umhverfisvænn og vera með starfssemi á hálendinu. Grænu skrefin eru hönnuð fyrir týpíska skrifstofustarfssemi, en á hálendinu er kannski ekki mikil þörf á strætómiðum og góðum hjólabogum. Tæknin hefur heldur ekki náð það langt að rafræn tæki dugi í svo erfiðum aðstæðum. Því eiga sum atriði Grænu skrefanna ekki við, en við erum engu að síður sannfærð um að Landsvirkjun muni hafa augun opin fyrir þróun vistvænna tækja fyrir erfiðar aðstæður. Á meðan fylgist Landsvirkjun vel með notkun á jarðefnaeldsneyti og dregur úr öllum óþarfa.

Við óskum Landsvirkjun Mývatnssvæði enn og aftur, innilega til hamingju með þennan áfanga. Við viljum þakka Laufey Lilju Ágústsdóttur, tengilið Grænna skrefa, sem heldur svo samviskusamlega og vel utan um þetta verkefni. Við þökkum Hörpu Gunni Aðalbjörnsdóttur sem hefur haft umsjón með að koma Grænu skrefunum í verk á Mývatnssvæðinu. Einnig ber að hrósa Ragnheiði Ólafsdóttur sem á stóran þátt í því að leggja grunninn að umhverfisstarfi Landsvirkjunnar. Stjórnendur Landsvirkjunnar almennt, og á Mývatnssvæði, eiga þakkir skyldar því það er alltaf mikilvægt að hafa þeirra stuðning í Grænni vegferð. Að lokum þökkum við öllum starfsmönnum, því umhverfismál eru þannig að þau skila ekki árangri nema allir leggi hönd á plóg og geri sitt. Takk fyrir!

 

Um hvað snýst 5. skref Grænna skrefa?

5. skref Grænna skrefa er mjög ólíkt hinum fjórum. Megintilgangur 5. skrefsins er að tryggja að stofnunin viðhaldi öflugu umhverfisstarfi eftir að öll skrefin hafa verið uppfyllt. Með því að fylgja aðgerðum 5. skrefsins geta stofnanir byggt upp umhverfisstjórnunarkerfi sem er aðlagað daglegum rekstri. Aðgerðirnar eru einfölduð útgáfa af ISO 14001 umhverfisstjórnunarkerfinu og því er auðvelt að bæta við og fá vottun samkvæmt staðlinum. Stofnanir sem hafa fengið ISO14001 vottun þurfa ekki að sýna fram á að skrefi 5 sé náð.

Við höfum tekið saman leiðbeiningar um 5. skrefið þar sem við reynum að svara algengum spurningum sem við höfum fengið í gegnum tíðina. Þar förum við t.d. yfir hvað umhverfisstjórnun og umhverfisstjórnunarkerfi eru ásamt muninum á umhverfisþáttum og umhverfisáhrifum. Mikið af stórum umhverfisorðum sem gott er að hafa á hreinu ásamt fleiru!

Leiðbeiningarnar finnið þið undir Vinnugögn -> ítarefni hér.

Grænt skref Skattsins

Fyrsta Græna skrefið hefur nú verið stigið hjá Skattinum. Það voru aðalstöðvarnar á Laugavegi sem reið á vaðið og kláraði fyrsta Græna skrefið af fimm í gær.

Í kjölfarið munu aðrar starfsstöðvar stíga skrefið en Skatturinn starfar á 14 stöðum á landinu.

Mikil áhersla hefur verið lögð á að vanda til verka og starfsmanni Grænna skrefa þótti gaman að sjá allt það umhverfisstarf sem unnið hefur verið undanfarið í starfseminni.

Við óskum Skattinum til hamingju með áfangann og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Meðfylgjandi má sjá myndir sem Græn skref fengu send frá Skattinum, en þær sýna hluta af því sem hefur verið gert til þess að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfseminni undanfarið.

Skýrar leiðbeiningar um flokkun

Nýjar flokkunarmerkingar

Plokkstangir fyrir þá sem vilja tína rusl

Einstaklingsruslafötur fá að víkja fyrir flokkunarbörum

Hlaupahjól fyrir starfsfólk

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum bætist í hópinn

Við bjóðum starfsfólk á skrifstofu Sýslumannsins á Suðurnesjum velkomin í Græn skref.

Hjá Sýslumanninum starfa 21 einstaklingar sem staðsettir eru í Reykjanesbæ og Grindavík.

Við hlökkum til að feta með þeim grænan veg!

 

3 skref í höfn hjá Vatnajökulsþjóðgarði

Grænu maurarnir ásamt Birgittu Steingrímsdóttur frá Umhverfisstofnun

Í dag fékk Vatnajökulsþjóðgarður formlega afhenta viðurkenningu fyrir 3. Græna skrefið. 8 starfsstöðvar þjóðgarðsins taka þátt í innleiðingu verkefnisins og eru Grænu maurarnir eins og þeir kalla sig duglegir að hittast og fara yfir málin, en hópurinn samanstendur af tengiliðum hverrar starfsstöðvar. Umhverfismálin eru alls ekki ný af nálinni í Vatnajökulsþjóðgarði en eins og kom fram í afhendingunni þá hafa Grænu skrefin gefið starfsmönnum tækifæri til að skerpa á ýmsum málum enda umhverfismálin þess eðlis að við getum alltaf bætt okkur!

Starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs standa sig afar vel í flokkun úrgangs og er flokkunaraðstaða í vinnurýmum og á gestastofum til fyrirmyndar. Helsti flöskuhálsinn varðandi úrgangsmálin eru tjaldsvæðin sem þjóðgarðurinn rekur en samkvæmt starfsmönnum eru lausnir varðandi flokkun á tjaldsvæðum í sjónmáli. Meðal þess sem lögð var áhersla á í 3. skrefinu var greining á raforku- og hitanotkun á öllum starfsstöðvum, umhverfisfræðsla til starfsmanna, innkaup á lífrænu kaffi og te og umhverfisvottuðum ræsti- og hreinsiefnum. Þó að ekkert mötuneyti sé rekið á vegum þjóðgarðsins leggja starfsmenn áherslu á að sporna gegn matarsóun m.a. með upplýsingagjöf og hafa auk þess innleitt eldað úr ísskápnum/frystinum á ákveðnum dögum sem er heldur betur skemmtilegt framtak!

Næst á dagskrá er 4. skrefið og eru Grænu maurarnir nú þegar farnir að skipuleggja innleiðingu þess.

Til hamingju með árangurinn starfsfólk í Fellabæ, Gömlubúð, Gljúfrastofu, Kirkjubæjarklaustri, Mývatni, Skaftafellsstofu, Skaftárstofu og Snæfellsstofu og gangi ykkur vel með framhaldið!

 

 

 

Hugverkastofan fær afhent 1. Græna skrefið

Við óskum Hugverkastofu til hamingju með að hafa stigið 1. Græna skrefið.

Til að taka fyrsta skrefið hefur Hugverkastofan meðal annars farið sparlega með rafmagn og pappír, flokkað vel og vandlega og notað vistvænar hreinsivörur. Hjá Hugverkastofu er góð aðstaða fyrir hjólafólk þar sem þau eru bæði með hjólaboga fyrir aftan húsið fyrir starfsmenn og líka fyrir gesti. Stofnunin er með innri vef fyrir Grænu skrefin svo upplýsingagjöf til starfsmanna er til fyrirmyndar.  Í vinnslu er líka handbók um hvernig eigi að halda umhverfisvæna viðburði og fundi og verður spennandi að fylgjast með hvernig það gengur.

Hugverkastofa stefnir að því að halda ótrauð áfram og eru með markviss plön um næstu skref.

Vinnumálastofnun í Reykjavík stígur 2. skrefið

Nú fyrir helgi fékk Vinnumálastofnun í Kringlunni Reykjavík afhenta viðurkenningu fyrir að hafa innleitt skref 2. Afhendingin fór fram á Teams og þar kom fram hversu frábært það er að starfsmenn hafi náð að keyra verkefnið áfram á afar krefjandi tímum. Þið megið sannarlega vera stolt af ykkur! Í þessum fasa verkefnisins hefur verið lögð áhersla á skil á Grænu bókhaldi sem mun koma sér vel þegar stofnunin fer í þá vinnu að setja sér umhverfis- og loftslagsstefnu. Passað er upp á að ræsti- og hreinsivörur séu umhverfisvottaðar og góð flokkunaraðstaða er til staðar í öllum rýmum. Samkvæmt Grænu bókhaldi er endurvinnsluhlutfall Vinnumálastofnunar í Reykjavík tæp 70% sem er glæsilegur árangur!

Næst á dagskrá hjá stofnuninni er innleiðing á skrefi 3 samkvæmt nýja gátlistanum en einnig ætla starfsstöðvar Vinnumálastofnunar á landsbyggðinni að keyra verkefnið áfram. Fyrirhugaðir eru flutningar úr Kringlunni í nýtt húsnæði og þá gefst kjörið tækifæri fyrir stofnunina að útbúa aðstöðuna með helstu umhverfisáherslur sínar í huga. Við höfum einmitt tekið saman ítarefni sem nýtist öllum þeim sem eru að flytja í nýtt skrifstofuhúsnæði, sjá hér. Þar kemur fram að gott er að huga að orkusparnaði, flokkunaraðstöðu, rafhleðslu fyrir gesti og starfsfólk, aðstöðu fyrir hjólandi og gangandi og endurnýtingu svo eitthvað sé nefnt, þegar flutt er í nýtt húsnæði.

Innilega til hamingju með áfangann og gangi ykkur sem allra best með framhaldið!

Harpa nýr þátttakandi í Grænu skrefunum

Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhúsið okkar allra er búið að skrá sig til leiks í Grænu skrefunum.

Við fögnum því og hlökkum mikið til að fylgjast með því hvernig Harpa stefnir að því að gera viðburðina sína Grænni og vænni.

Velkomin í hópin!

Upptaka og glærur af kynningarfundi um nýjan gátlista

Í gær, 13. janúar, héldum við kynningarfund á Teams um nýjan gátlista en hann finnið þið efst undir Vinnugögn. Fundarglærur eru hér.

Á fundinum kom eftirfarandi fram varðandi það hvernig við skiptum yfir í nýja gátlistann:

  • Ekki þarf að vinna þau skref sem nú þegar eru í höfn samkvæmt nýjum gátlista
  • Best er að byrja strax að vinna í núverandi skrefi eftir nýjum gátlista
  • Gefum þó svigrúm til 1.mars til að klára núverandi skref samkvæmt gamla gátlista
  • Endurmat 2 árum eftir að öllum skrefum er náð –> nýr gátlisti

Við sögðum einnig frá því að Hildur væri tímabundið komin í önnur verkefni innan Umhverfisstofnunar svo hún er ekki í Grænu skrefunum sem stendur. Þorbjörg Sandra, Ásdís Nína og Birgitta standa því vaktina ásamt nýjasta starfsmanni verkefnisins, Gró Einarsdóttur. Birgitta fer svo í fæðingarorlof í febrúar og þá taka hinar við samskiptunum við hennar stofnanir.

Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur fyrirmyndargátlistann sem Gró sýndi frá í gær. Hann finnið þið undir Vinnugögn – ítarefni. Eins og Gró sagði er ákaflega mikilvægt fyrir ykkur og okkur að gátlistinn sé vel fylltur út og gott að hugsa þetta sem svo að nýjir starfsmenn á ykkar stofnun sem taka við verkefninu síðar meir átti sig á því hvernig hver aðgerð var framkvæmd og hver ber ábyrgð á henni.

Við höfum svo bætt allskonar nytsamlegu ítarefni undir Vinnugögn eins og t.d. dæmi um ferðavenjukönnun, ferðaákvörðunartré, leiðbeiningum um 5. skref, umfjöllun um muninn á umhverfisstefnu og loftslagsstefnu og leiðbeiningum um ábyrga kolefnisjöfnun. Endilega skoðið það!

Annars þökkum við kærlega fyrir góða mætingu og frábærar spurningar – alltaf gaman að eiga við ykkur samtal um Grænu skrefin og umhverfismál, metnaðurinn hjá ykkur er áþreifanlegur 🙂