Landsvirkjun á Akureyri fær þriðja skrefið
Starfsmenn á starfsstöð Landsvirkjunar á Akureyri tóku á móti viðurkenningu fyrir þriðja Græna skrefið á stuttum tíma. Til hamingju 🙂
Starfsmenn á starfsstöð Landsvirkjunar á Akureyri tóku á móti viðurkenningu fyrir þriðja Græna skrefið á stuttum tíma. Til hamingju 🙂
Flugvöllurinn á Akureyri ákvað að innleiða fyrstu tvö skrefin í einu og gerðu það með glæsibrag. Starfsmenn þar breiða einnig út boðskapinn þar sem fleiri fyrirtæki sem nýta sér þjónustu vallarins þurfa einnig að fylgja þeirra fordæmi. Vel gert 🙂
Skógræktin er með starfsstöðvar um allt land en sú á Akureyri hóf fyrst þeirra formlega innleiðingu Grænna skrefa og fengu viðurkenningu þess efnist nú. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂
Starfsstöð Vegagerðarinnar á Akureyri var að ljúka innleiðingu fyrsta Græna skrefsins og fljótlega fylgja þjónustustöðvar þeirra í kjölfarið. Til hamingju með árangurinn 🙂
Nú var Vínbúðin á Kópaskeri að fá viðurkenningu fyrir öll fimm Grænu skrefin. Innleiðingin gekk vel enda græn hugsun í forgrunni. Á Kópaskeri er t.d. ekki flokkað plast en plastið frá Vínbúðinni er sent til Húsavíkur í flokkun. Vel gert og til hamingju með áfangann.
Það þarf oft ekki flókinn búnað til að búa til aðstöðu fyrir rafbíla stofnana eða fyrir starfsfólk og gesti. Hér t.d. setti Skógræktin á Akureyri upp einfalda hleðslustöð sem fólk þar getur nýtt sér þurfi það hleðslu á bílinn sinn. Svo sakar ekki hvað hún er hrikalega flott og passar vel við sitt umhverfi.
Aðalskrifstofa Landsvirkjunar á Háaleitisbraut tekur Grænu skrefin með trompi en í október fengu þau viðurkenningu fyrir fyrsta skrefið og hafa nú einnig lokið skrefum 2 og 3. Umhverfismál eru ekki ný af nálinni hjá Landsvirkjun og hafa þau um áraskeið fylgst vel með losunartölum, umhverfisáhrifum virkjana og tengdra mála. Grænu skrefin hafa þó hjálpað þeim […]
Aðalbygging Háskóla Íslands fékk afhent sitt fyrsta Græna skref. Jón Atli Benediktsson rektor háskólans tók á móti viðurkenningunni og sagði við það tilefni að „umhverfismál væru ein allra helsta áskorun sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag og vill Háskóli Íslands leggja sitt af mörkum m.a. með þátttöku í verkefni eins og Grænum skrefum og sýna […]
Tryggingastofnun fékk afhenda viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið. Stofnunin tók innleiðingu skrefsins með trompi, eru t.d. hástökkvarar í flokkun á úrgangi en flokkun jókst úr 17% árið 2015 í 52% árið 2016, til að fá þetta fram tóku þau almenna sorpið úr augnsýn starfsmanna því jú það á að vera auðveldast að flokka, með góðri […]
Starfsstöð Landsvirkjunar á Akureyri var að ljúka við og fá viðurkenningu fyrir sitt annað Græna skref. Akureyringar eru ansi vanir flokkun og umhverfisvænni hugsun og því gekk innleiðing skrefsins mjög vel. Til hamingju 🙂
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið er búið að skrá sig í Grænu skrefin. Ráðuneytið var eitt af sex sem undirrituðu aðgerðaráætlun í loftslagsmálum fyrir nokkrum dögum síðan. Nú á að láta verkin tala og taka umhverfismálin fastari tökum innan ráðuneytisins. Hlökkum til samstarfsins 🙂
Flugfjarskipti voru fyrsta starfsstöð Isavia til að ná þeim áfanga að ljúka við fjórða Græna skrefið. Auk viðurkenningar Grænna skrefa fengu þau viðurkenningu frá Isavia fyrir að innleiða verkefnið svona hratt og vel.