Mikill gangur í Grænum skrefum í febrúar og mars

Starfsfólk Grænna skrefa hefur ekki látið sér leiðast síðustu tvo mánuði enda mikill metnaður í skrefunum hjá ríkisaðilum.

Eftirfarandi starfsstöðvar ríkisstofnana og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins hafa tekið Grænt skref í febrúar og/eða mars og við óskum þeim til hamingju með flottan árangur!

Nafn stofnunar Starfsstöð Skref
Alþingi Reykjavík 5
Dómstólasýslan Suðurlandsbraut 3
Embætti landlæknis Reykjavík 1
Ferðamálastofa Akureyri 2
Flensborgarskóli Hafnarfjörður 5
Isavia Ísafjörður 1
Landgræðsla Ríkisins Gunnarsholt 5
Landhelgisgæsla Íslands Reykjavík, siglingarsvið, Þór 4 og 5
Landhelgisgæsla Íslands Reykjavík, skrifstofa, sjómælingar og séraðgerðasvið 4 og 5
Landhelgisgæsla Íslands Keflavík, varnarmálasvið 5
Landhelgisgæsla Íslands Reykjavík, flugdeild 5
Landhelgisgæsla Íslands Reykjavík, siglingarsvið, Þór 4 og 5
Landhelgisgæsla Íslands Siglufjörður, siglingasvið, Freyja 5
Lögreglustjórinn á Vesturlandi Borgarnes 1
Lögreglustjórinn á Vesturlandi Akranes 1
Lögreglustjórinn á Vesturlandi Ólafsvík 1
Lögreglustjórinn á Vesturlandi Stykkishólmur 1
Lögreglustjórinn á Vesturlandi Grundarfjörður 1
Menntaskólinn á Ísafirði Ísafjörður 1
Menntaskólinn í Reykjavík Reykjavík 1
Orkustofnun Akureyri 1
Rannsóknarnefnd samgönguslysa Reykjavík 1
Ríkisútvarpið ohf. Reykjavík 1
Seðlabanki Íslands Reykjavík 2  og 3
Sýslumaðurinn á Suðurlandi Selfoss 1
Sýslumaðurinn á Suðurlandi Hvolsvöllur 1
Sýslumaðurinn á Suðurlandi Vík í Mýrdal 1
Sýslumaðurinn á Suðurlandi Höfn 1
Sýslumaðurinn á Vesturlandi Akranes 4 og 5
Sýslumaðurinn á Vesturlandi Borgarnes 4 og 5
Sýslumaðurinn á Vesturlandi Búðardalur 4 og 5
Sýslumaðurinn á Vesturlandi Stykkishólmur 4 og 5
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar 3 og 4

 

 

Spörum orku yfir páskana

Nú styttist í páskafrí og þá er um að gera að fara að huga að orkusparnaði á meðan fríi stendur. Við vitum að það þarf að slökkva ljósin, en hvað fleira? Við höfum útbúið tékklista með orkusparandi aðgerðum og við hvetjum þátttakendur til að setjast niður með umsjónaraðila eða þann sem sér um húsnæðið til að ræða þessa hluti áður en farið er í frí. Tékklistann má nálgast hér og undir vinnugögnum hér á síðunni.

Við minnum líka á eftirfarandi aðgerð í skrefi 3:

Við höfum útbúið orkusparnaðar leiðbeiningar um það sem gott er að hafa í huga þegar farið er í frí í samvinnu við umsjónarmann eða þann sem sér um húsnæðið.  Leiðbeiningarnar sendum við á starfsfólk fyrir stórhátíðir og í upphafi orlofstíma.

Landgræðslan stígur fimmta skrefið

Landgræðslan hefur nú lokið úttekt á fimmta Græna skrefinu eftir að hafa lokið skrefum tvö til fjögur rétt fyrir síðustu jól. Starfsfólk stofnunarinnar er mjög meðvitað um umhverfismál og hefur farið fjölbreyttar leiðir til þess að minnka umhverfisáhrif af sínum rekstri, meðal annars með ekki-henda-neinu-nefndinni, sem reynir að finna hlutum sem annars væri hent nýtt heimili og að auka hlutfall rafbíla stofnunarinnar.

Stofnunin hefur skuldbundið sig til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í rekstri um 40% fyrir árið 2030 miðað við 2018, ásamt því að draga úr losun vegna áburðarnotkunar og ná góðum árangri í kolefnisbindingu í gróðri og jarðvegi.

Til þess að viðhalda þeim góða árangri sem náðst hefur með Grænu skrefunum og loftslagsstefnu var sett upp umhverfisstjórnunarkerfi Landgræðslunnar með greinargóðum verklagsreglum og verkskiptingu.

Við óskum Landgræðslunni til hamingju með flottan árangur og hlökkum til að fylgjast áfram með þeim!

Höldum í góðar venjur þrátt fyrir afléttingar

Hleðslustöð

Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta

Við í Grænum skrefum vekjum athygli ríkisaðila á að Orkusjóður auglýsir nú styrki til orkuskipta árið 2022. Hægt er að sækja um í 5 flokkum; bættri orkunýtingu, minnkun olíunotkunar í iðnaði, raf- og lífeldsneyti og metani, hleðslustöðvum fyrir samgöngur og orkuskiptum í haftengdri starfsemi.

Styrkir geta hæst numið 33% af áætluðum stofnkostnaði og umsóknarfrestur er til 7. maí næstkomandi.

Hluti Grænna skrefa í ríkisrekstri er að hvetja til umhverfisvænni samgangna starfsfólks, t.a.m. með að bæta aðgengi að rafmagnshleðslustöðvum. Við hvetjum þátttakendur Grænna skrefa í ríkisrekstri sem eru á leið í slík verkefni, eða önnur sem falla undir ofangreinda flokka, til að senda inn umsókn um styrk til Orkusjóðs.

Allar nánari upplýsingar má finna á www.orkusjodur.is

RÚV tekur fyrsta skrefið

Starfsstöð Ríkisútvarpsins ohf. í Útvarpshúsinu við Efstaleiti lauk úttekt á sínu fyrsta skrefi í gær, 15. mars 2022. Umhverfisnefnd RÚV hefur verið dugleg að minna starfsfólk á umhverfismálin og í desember settu þau til dæmis upp innpökkunarborð þar sem starfsfólk var hvatt til að pakka gjöfum inn í efni sem féll til innanhúss. Sjá frétt um það hér.

Við óskum þeim innilega til hamingju með skrefið og hlökkum til frekara samstarfs með þeim!  

Nýir og endurbættir límmiðar

Við vekjum athygli á því að nú er hægt að panta nýja og endurbætta límmiða undir Vinnugögn hér á síðunni. Límmiðarnir sem hafa bæst við eða fengið nýtt útlit eru eftirfarandi:  

Það þarf engan plastpoka í þessa tunnu 

Hér má nálgast og skilja eftir krassblöð  

Leyfum þeim sem þurfa lyftuna að nota hana 

Mundu eftir taupokanum / Remember the reusable bag 

Slökkvum ljósin / Turn off the lights  

Minnum á skil á Grænu bókhaldi

Nú styttist í að fari að vora og við vitum öll hvað það þýðir – árleg skil á Grænu bókhaldi, en frestur til að skila inn upplýsingum fyrir árið 2021 rennur út 1. apríl 2022.

Græna bókhaldið er mikilvægt tæki fyrir stofnanir til að fylgjast með losun gróðurhúsalofttegunda sem stafar frá starfsemi þeirra. Græna bókhaldið tekur til þátta sem hafa hve mest umhverfisáhrif í daglegum rekstri, þó listinn sé ekki tæmandi. Um er að ræða:

  • Samgöngur
  • Úrgangur
  • Orkunotkun
  • Matarsóun
  • Pappírsnotkun
  • Efnanotkun

Hér fyrir neðan má sjá leiðbeiningamyndband um hvernig fylla skal út Græna bókhaldið, kaflaskiptingu myndbandsins má finna fyrir neðan það. Gangi ykkur vel!

Kaflaskipti

Kynning á Grænu bókhaldi 00:00

Kynning á Gagnagátt Umhverfisstofnunar, þangað sem bókhaldinu er skilað 1:23

Síða 1 – Stærð húsnæðis og fjöldi stöðugild 2:47

Síða 2 – Skrifstofupappír og prentþjónusta 4:42

Síða 3 – Ræsti- og hreinsiefni og ræstiþjónusta 6:45

Síða 4 – Rafmagn og heitt vatn 9:30

Síða 5 – Akstur 12:04

Síða 5 – Flug 15:41

Síða 6 – Önnur losun 19:07

Síða 7 – Samgöngusamningar 20:40

Síða 8 – Úrgangur 21:40

Síða 9 – Aðrar rekstrarvörur 24:20

Síða 10 – Matarsóun 25:14

Síða 11 – Niðurstöður og markmið 27:00

Síða 12 – Samantekt á losun gróðurhúsalofttegunda, matarsóun og kolefnisjöfnun 29:22

Síða 13 – Staðfesting á skilum 30:55

Síða 14 – Skilafrestur og aðstoð 31:24

Alþingi klárar fimmta skrefið

Alþingi lauk nýverið úttekt á skrefi fimm og hefur þar með stigið öll Grænu skrefin. Skrefið var formlega afhent forseta Alþingis og yfirstjórn skrifstofu Alþingis þann 25. febrúar.

Þingið hefur meðal annars unnið gott starf í því að draga úr losun vegna samgangna og tveir af þremur bílum í eigu Alþingis eru tengiltvinnbílar. Á dögunum fengu þau afhenta níu rafbíla frá Hertz í langtímaleigu fyrir þingmenn, en reiknað er með því að rafbílarnir verði 19 talsins.

Alþingi hefur sett sér markmið um 40% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda til ársins 2030 miðað við árið 2018 og fylgist vel með stöðu mála með Grænu bókhaldi. Hér má nálgast umhverfis- og loftslagsstefnu Alþingis í heild sinni: https://www.althingi.is/um-althingi/skrifstofa-althingis/starfsmannamal/umhverfisstefna/

Fimmta skrefið inniheldur aðgerðir til þess að innleiða umhverfisstjórnunarkerfi í stofnunum og er loftslagsstefnan liður í því.

Við óskum Alþingi innilega til hamingju með þennan stóra áfanga.