Fimm í Flensborg

Fimmta græna skrefinu var vel fagnað á starfsmannafundi Flensborgarskólans í Hafnarfirði, enda markaði afhendingin lokin á innleiðingu skólans á Grænu skrefunum sem hófst árið 2021. Í skólanum hefur verið litið langt út fyrir hinn hefðbundna ramma Grænu skrefanna með það fyrir augum að auka sýnileika umhverfis- og loftslagsmála innan skólans og valdefla nemendur.

Þrátt fyrir að fimmta skrefið sé í höfn verður áfram unnið með græna hugsun og skipulag í skólastarfinu en á döfinni er herferð um flokkun á rusli og skráning nemenda í hádegismat til að koma í veg fyrir matarsóun.

Strætó hættir með pappírsmiða – munið að fá þeim breytt fyrir 31. mars

Strætó hættir að taka við pappírsmiðum í dag, 1. mars. Margir vinnustaðir á höfuðborgarsvæðinu hafa haft það sem reglu að eiga til pappírsmiða sem starfsfólk getur nýtt sér á vinnutíma, og þannig stuðlað að umhverfisvænni samgöngunotkun. Nú þarf að fara nýjar leiðir í þeim efnum,  Strætó bendir á Klapp-tíuna sem er 10 miða kort sem ekki er bundið við ákveðna notendur og því hægt að lána út til starfsfólks eftir þörfum. Athugið að ekki geta fleiri en einn farþegi nýtt sér sama kortið á sama tíma, svo það gæti verið gott að hafa nokkur kort til umráða. Við hvetjum þátttakendur í Grænu skrefunum til að halda áfram að gera starfsfólki það einfalt að nýta sér strætó fyrir fundi og erindi á vinnutíma, og kynna sér nýtt greiðslufyrirkomulag.

Það er svo um að gera að láta ekki pappírsmiðana sem liggja í skúffum og skápum missa verðgildi sitt, en fram til 31. mars er hægt að skila pappírsmiðum inn til strætó og fá í staðinn inneign í gegnum Klapp-kerfið. Hér má finna leiðbeiningar frá Strætó um hvernig má gera það, til dæmis með því að senda bréfpóst með miðunum á móttöku Strætó.

Myndir af réttunum sem eru í boði í mötuneyti starfsmanna í MA

Grænmetisfæði alla daga hjá starfsfólki Menntaskólans á Akureyri

Stór hluti aðgerða Grænu skrefanna snýr að fæði starfsfólks, og það er góð ástæða fyrir því. Við getum haft mikil áhrif á kolefnisspor okkar með vali á fæðutegundum og með því að sporna gegn matarsóun. Meðal þess sem Grænu skrefin leggja til er að auka úrval grænkerarétta, hafa umhverfisvænasta réttinn efst á matseðli (þegar fleiri en einn eru í boði) og að auka hlutfall lífrænna matvæla á matseðli.

Það reyndist einfalt fyrir Menntaskólann Akureyri að safna stigum fyrir þessi atriði, en mötuneyti starfsmanna er rekið með það að sjónarmiði að matarsóun sé sem allra minnst, og eingöngu er boðið upp á grænmetis- og grænkerafæði sem er í senn heilsusamlegt, litríkt og gómsætt. Við úttekt á þriðja skrefinu hjá MA vakti þetta sérstaka athygli. Okkur hjá Grænu skrefunum lék forvitni á að vita hvernig gengi að reka grænmetismiðað mötuneyti og hvernig starfsfólkið tæki því, en um 25-35 starfsmenn snæða þar daglega í hádeginu. An-Katrien greindi frá því að hún sé búin að elda fyrir starfsfólkið í um sjö ár, starfsfólkið hafi almennt tekið henni og grænmetisfæðinu mjög vel og jafnvel beðið hana um að halda kvöldnámskeið í matreiðslu grænmetisrétta svo þeir geti boðið upp á svipaðan mat heima við.

Í innkaupum horfir An-Katrien til þess að kaupa sem mest lífrænt, og mat sem framleiddur er í nærumhverfi þegar það er mögulegt. Hún segir oft erfitt að komast hjá plastumbúðum, og að matvælafyrirtæki og birgjar þyrftu að taka sig á í þeim efnum. Allt er eldað frá grunni í eldhúsinu af henni og öðrum starfsmanni, og það er fyrirfram skráning í matinn til að hægt sé að elda nákvæmt magn. Á föstudögum er boðið upp á afganga vikunnar, og kapp lagt á að farga sem minnstu.

 

Dæmi um rétti sem í boði eru í mötuneyti starfsfólks MA

 

Við báðum An-Katrien um dæmi af matseðli tveggja vikna, sem gæti orðið öðrum mötuneytum til innblásturs:

  • Búlgur-linsubaunasalat ásamt grilluðu eggaldini með saffran-jógurtsósu og granateplafræjum.
  • Chana masala/indverskt kjúklingabaunakarrý með sítrónuhrísgrjónum, naan-brauði og gúrku-jógúrtsósu.
  • Ofnbökuð egg á tómatsósu með papriku, kóríander og pistasíuhnetum (shakshuka), ásamt brauði og fersku salati.
  • Orzo-risotto með ferskum kirsuberjatómötum og basiliku.
  • Grænbaunasúpa með kókosmjólk, myntu og lime.
  • Heilhveiti-pasta með grilluðu hvítkáli, sítrónu, chilli og salati.
  • Indverskt dahl úr rauðum linsubaunum ásamt hrísgrjónum og naan-brauði.
  • Grillaðar sætar kartöflur með rjómakenndri sítrónugrassósu, grænmetisbollum, heimagerðri harissa sósu og salati.

 

 

An-Katrien og Oddrún að störfum

 

Við þökkum An-Katrien kærlega fyrir að deila með okkur matseðli og myndum.

 

 

 

 

 

 

 

Baunir og belgjurtir

Fögnum baununum!

Í gær, þann 10. febrúar, var alþjóðlegur dagur belgjurta – eða þess sem við köllum baunir í daglegu tali hér á Íslandi.

Það eru margar góðar ástæður fyrir að hampa þessari mikilvægu og góðu fæðu og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt fólk til að auka neyslu belgjurta vegna þess hve heilsusamlegar þær eru fyrir okkur og fyrir umhverfið og loftslagið.

 

 

Eins og kemur fram á skýringarmyndinni sem fylgir fréttinni þarf 1.250 lítra af vatni til að rækta 1 kg af linsubaunum á meðan það þarf 12.000 lítra af vatni til að framleiða 1 kg af nautakjöti.

Ræktun belgjurta bætir auk þess frjósemi jarðvegs og getur því dregið úr þörf á tilbúnum áburði. Kolefnisspor bauna er mun lægra en kolefnisspor kjöts, en baunir eru fyrirtaks próteingjafi og afar næringarríkar. Hér má lesa meira um næringarfræðilega kosti belgjurta og bauna fyrir áhugasöm.

Við hvetjum þátttakendur Grænna skrefa til að auka hlut bauna í mötuneytum sínum og til að njóta þess að borða falafel, hummus, chilli, dahl eða einfaldlega bakaðar baunir í tómatsósu um helgina!

Fjölbrautarskólinn í Garðabæ tekur fimmta skrefið

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ lauk fimmta Græna skrefinu á dögunum með glæsibrag.

Öll verkefni sem viðkoma umhverfismálum eiga það sameiginlegt að vera eilífðarverkefni, og Grænu skrefin eru þar engin undantekning. Þrátt fyrir að stofnun ljúki fimmta skrefinu heldur vinnan áfram og starfsfólk og nemendur FG eru meðvituð um að lengi má gott bæta – flokkunarhlutfall úrgangs fer t.a.m. áfram batnandi og nemendur verða verðlaunaðir fyrir vikið.

Tilgangur fimmta og síðasta Græna skrefsins er að tryggja að umhverfismál verði áfram í hávegum höfð í starfsemi stofnana með því að innleiða umhverfisstjórnunarkerfi. Það er ánægjulegt að sjá æ fleiri stofnanir ljúka þessu mikilvæga skrefi og við óskum FG innilega til hamingju með áfangann.

Á myndinni má sjá Snjólaugu E. Bjarnadóttur aðstoðarskólameistara og Írisi Hvanndal Skaftadóttur kennara fagna Grænu skrefunum.

 

 

90 Græn skref í janúar 2022

Árið byrjar af krafti og í janúar tóku alls 50 starfsstöðvar samtals 90 skref. Við óskum þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju með skrefin.

Hér er listi yfir öll skref sem voru tekin í janúar:

Nafn stofnunar Starfsstöð Skref
Fiskistofa Vestmannaeyjar 4 og 5
Fiskistofa Stykkishólmur 4 og 5
Fiskistofa Ísafjörður 4 og 5
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ Garðabær 5
Hafrannsóknastofnun Ólafsvík 1, 2 og 3
Íslandspóstur Akranes 2 og 3
Íslandspóstur Akureyri 2 og 3
Íslandspóstur Akureyri – Norðurtangi 2 og 3
Íslandspóstur Blönduós 2 og 3
Íslandspóstur Borgarnes 2 og 3
Íslandspóstur Búðardalur 2 og 3
Íslandspóstur Dalvík 2 og 3
Íslandspóstur Egilsstaðir 2 og 3
Íslandspóstur Garðabær 2 og 3
Íslandspóstur Hafnarfjörður 2 og 3
Íslandspóstur Hella 2 og 3
Íslandspóstur Höfðabakki 9D 2 og 3
Íslandspóstur Höfn 2 og 3
Íslandspóstur Húsavík 2 og 3
Íslandspóstur Hvammstangi 2 og 3
Íslandspóstur Hvolsvöllur 2 og 3
Íslandspóstur Ísafjörður 2 og 3
Íslandspóstur Keflavík 2 og 3
Íslandspóstur Kópavogur 2 og 3
Íslandspóstur Mosfellsbær 2 og 3
Íslandspóstur Neskaupstaður 2 og 3
Íslandspóstur Ólafsvík 2 og 3
Íslandspóstur Patreksfjörður 2 og 3
Íslandspóstur Póstmiðstöð 2 og 3
Íslandspóstur R-10 Höfðabakka 9 2 og 3
Íslandspóstur R-7, Hagatorgi 2 og 3
Íslandspóstur R-8, Síðumúla 3-5 2 og 3
Íslandspóstur R-9 Þönglabakka 4 2 og 3
Íslandspóstur Reyðarfjörður 2 og 3
Íslandspóstur Sauðárkrókur 2 og 3
Íslandspóstur Selfoss 2 og 3
Íslandspóstur Siglufjörður 2 og 3
Íslandspóstur Stykkishólmur 2 og 3
Íslandspóstur Vestmannaeyjar 2 og 3
Kvikmyndasafn Íslands Hafnarfjörður 3
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Skrifstofa lögreglustjóra, Reykjanesbæ 3
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Lögreglustöðin í Reykjanesbæ 3
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Flugstöð Leifs Eiríkssonar 3
Náttúrufræðistofnun Íslands Akureyri 3 og 4
Óbyggðanefnd Reykjavík 1
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Húsavík 4
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Akureyri 4
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Siglufjörður 4
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Keflavík 2
Umboðsmaður skuldara Reykjavík 3

 

Fjölbrautaskóli Snæfellinga klárar 3. skrefið

Fjölbrautaskóli Snæfellinga byrjaði árið á góðum nótum og kláraði úttekt á skrefi þrjú þann 5. janúar síðastliðinn. Fyrri tvö skrefin tóku þau á nýliðnu ári og setja þau stefnuna á að taka seinni tvö í ár. Við óskum þeim innilega til hamingju með skrefið og hlökkum til að klára með þeim næstu skref!

Samstillt fimmta skref hjá Fiskistofu

Starfsmenn Fiskistofu lönduðu fimmta skrefinu fyrir helgi. Umhverfisnefnd Fiskistofu tók við skrefinu en í henni sitja fulltrúar frá öllum starfsstöðvum stofnunarinnar.

Fiskistofa hefur farið þá leið að allar starfsstöðvar eru samferða í gegnum hvert skref en hver starfsstöð fer í eigin úttekt á skrefunum. Þannig hefur skapast jákvætt andrúmsloft í kringum verkefnið sem einkennist af liðsheild og samheldni. Það varð snemma ljóst að slík nálgun á umhverfismálum er starfsmönnum Fiskistofu í blóði borin enda er það hlutverk stofnunarinnar að standa vörð um eina helstu auðlind þjóðarinnar – þá sömu og Grænu skrefunum er ætlað að vernda.

Við hjá Grænum skrefum kunnum starfsmönnum Fiskistofu bestu þakkir fyrir samstarfið og óskum þeim um leið til hamingju með fimmta skrefið.

Nýárskveðja Grænna skrefa

Starfsfólk Grænna skrefa óskar ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakkar kærlega fyrir samstarfið á liðnu ári. Árið var heldur betur viðburðaríkt og mikill uppgangur var í verkefninu. Alls voru 441 skref tekin á árinu af starfsstöðvum ríkisstofnana út um allt land og 40 nýjar stofnanir skráðu sig í Grænu skrefin. Við óskum þeim til hamingju og hlökkum til að taka fleiri skref með öllum stofnunum Grænna skrefa á nýju ári.

 

Eftirfarandi stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins stigu skref á árinu, í stafrófsröð:

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Barnaverndarstofa

Byggðastofnun

Dómstólasýslan

Félagsmálaráðuneytið

Fiskistofa

Fjarskiptastofa

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjársýsla ríkisins

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra

Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Fjölbrautaskóli Suðurlands

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Fjölbrautaskóli Vesturlands

Fjölbrautaskólinn Ármúla

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ

Flensborgarskóli

Framhaldsskólinn á Húsavík

Framhaldsskólinn á Laugum

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum

Gljúfrasteinn: hús skáldsins

Hafrannsóknastofnun

Hagstofa Íslands

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Háskóli Íslands

Háskólinn á Akureyri

Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Héraðsdómur Vestfjarða

Hugverkastofan

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Íslandspóstur

Jafnréttisstofa

Kvikmyndasafn Íslands

Landgræðsla Ríkisins

Landhelgisgæsla Íslands

Landsvirkjun

Lyfjastofnun

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum

Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Menntasjóður námsmanna

Menntaskólinn að Laugarvatni

Menntaskólinn á Akureyri

Menntaskólinn á Egilsstöðum

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Menntaskólinn í Kópavogi

Menntaskólinn við Hamrahlíð

Menntaskólinn við Sund

Náttúrufræðistofnun Íslands

Náttúruhamfaratrygging Íslands

Náttúruminjasafn Íslands

Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn

Ríkiseignir

Ríkissaksóknari

Samgöngustofa

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sjúkrahúsið Akureyri

Sjúkratryggingar Íslands

Skatturinn

Skipulagsstofnun

Skógræktin

Stofnun Árna Magnússonar

Stofnun Vilhjálms Stefánssonar

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum

Sýslumaðurinn á Vesturlandi

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum

Tryggingastofnun Ríkisins

Umboðsmaður barna

Umboðsmaður skuldara

Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins

Utanríkisráðuneytið

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála

Úrvinnslusjóður

Vatnajökulsþjóðgarður

Verkmenntaskóli Austurlands

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Vinnumálastofnun

Yfirskattanefnd

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum

Þjóðskjalasafn Íslands

Þjóðskrá Íslands

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf.

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur lokið fimmta skrefinu

Á útskriftardaginn sjálfan 22. desember útskrifuðust ekki aðeins nemendur frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti heldur útskrifaðist skólinn sjálfur úr Grænum skrefum með ágætiseinkunn í fimmta skrefinu. Útskriftagjöfin í ár var með hefðbundnu sniði, fimm græn lauf á hvítum bakgrunni.

Fjölbrautaskólinn hefur sýnt metnað og frumleika í því að finna hverri aðgerð farveg. Við hjá Grænum skrefum þökkum starfsmönnum FB fyrir að hafa verið úrræðagóðir og jákvæðir gagnvart verkefninu sem var leyst vel af hendi. Gleðileg skref og gleðilegt ár upp í efri byggðir. Til hamingju með árangurinn.