Vínbúðin á Hólmavík er komin með tvö Græn skref
Vínbúðin í Hólmavík hefur lokið við innleiðingu tveggja Grænna skrefa. Gaman að segja frá því að Vínbúðin og verslun KSH deila sama húsnæðinu og því ná skrefin til enn fleiri aðila. Það er einmitt það sem við viljum að gerist að starfsmenn og stofnanir breiði út boðskapinn. 
Hreinsum strandlengjuna með Bláa hernum
Samtökin Blái herinn hefur um langt skeið staðið að hreinsunum á strandlengjum við Ísland. Eins og við vitum er hreint haf og strendur mikið hagsmunamál fyrir Ísland og skiptir miklu máli að við tökum höndum saman, sýnum gott fordæmi og hreinsum upp eftir okkur. Næsta hreinsun er á miðvikudaginn 31. ágúst 2016. Boðið er uppá rútuferðir kl. 11.00 og komið verður tilbaka um 18.00.

Vínbúðin í Smáralind hefur náð öllum 5 skrefunum
Glæsileg frammistaða hjá Vínbúðinni í Smáralind en þau voru að ljúka við þriðja, fjórða og fimmta Græna skrefið. Þau eru fyrsta Vínbúðin til að gera slíkt. Starfsmenn Vínbúðarinnar eru afar áhugasamir um umhverfismál og leggja sig virkilega fram um að gera alltaf betur. Innilega til hamingju með áfangann 🙂

Velkomin í Grænu skrefin Alþingi

Alþingi er nýjasti þátttakandinn í verkefninu okkar. Við erum afar glöð með að löggjafarvaldið okkar er með okkur í þessu verkefni og hlökkum til að vinna með þeim.
Plast eða ekki plast? það er stóra spurningin
Við fáum oft spurningar um flokkun og þá sérstaklega hvort plast sé plast, málmur eða eitthvað annað. Góð og auðveld aðferð til að greina þetta í sundur er að krumpa umbúðirnar og ef þær halda því lagi þá eru þær úr málmi eða meirihluti innihaldsins er málmur. Ef umbúðin sprettur aftur í sundur í nánast upprunalegt form þá er það plast. Þar af leiðandi erum við að flokka t.d. snakkpoka og suma kaffipoka í plast. Hér er hægt að sjá stutt myndband sem sýnir aðferðina.
Handbók um vistvæn opinber innkaup
Áætlað er að opinberar stofnanir íslenska ríkisins noti um 150 milljarða í innkaup á hverju ári og 300 milljarða ef sveitarfélög eru meðtalin. Því gefur að skilja að skynsöm vistvænni innkaup geta haft mikil áhrif við að draga úr umhverfisáhrifum. Sem dæmi má nefna að framfylgd stefnu um vistvæn opinber innkaup í Austurríki hefur minnkað losun CO2 um 20% eða 124 tonn og dregið úr orkunotkun um 20%. Út er komið 3ja útgáfa af handbók um opinber vistvæn innkaup frá Evrópusambandinu sem stofnanir og aðrir geta nýtt sér við innkaup sín (sjá hér).

Minnkum plastpokanotkun
Starfshópur á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytis hefur skilað inn til ráðherra, tillögum um aðgerðir til að draga úr plastpokanotkun. Hér má sjá skýrsluna í heild sinni en í mjög stuttu máli þá eru markmiðin í samræmi við ESB tilskipun þar sem fram kemur að fyrir 2019 verði búið að fækka burðarplastpokum í 90 stk á hvern íbúa og 40 stk árið 2025. Verslunin tók vel í þessar hugmyndir og ætlar að gera breytingar á núverandi Pokasjóð og sinna í gegnum hann fræðslu og kynningu á verkefninu, ásamt því að styrkja aðila sem sinna umhverfismálum. Umhverfisstofnun mun hafa fulltrúa inni í nýjum Pokasjóði. Umhverfisstofnun er þegar orðin plastpokalaus stofnun og reyndist það auðveld aðgerð. Lykilatriðið er að flokka úrganginn vel og mikið og nota ekki poka undir flokkaðan úrgang. Almennt sorp og lífrænt fer síðan í lífræna poka. Sorptunnur inni á salernum eru einnig með lífrænum pokum en pokar þar eru aðeins teknir eftir þörfum. Starfsmenn UST eru síðan hvattir til að nota margnota poka fyrir verslun og lífræna hafi þeir ekki margnota meðferðis. 
Utanríkisráðuneytið er komið í Grænu skrefin
Utanríkisráðuneytið er nýr þátttakandi í Grænu skrefunum og er fjórða ráðuneytið í hópnum. Við erum afar ánægð yfir að fá þau til liðs við okkur enda skiptir miklu máli að við öll í stjórnsýslunni sýnum gott fordæmi. Ráðuneytið er þegar búið að uppfylla nokkrar aðgerðir í Grænu skrefunum en mun nú taka markvissari hætti á umhverfismálunum með þátttöku í verkefninu.

Ferðamálastofa er nýr þátttakandi í Grænu skrefunum
Báðar starfsstöðvar Ferðamálastofu (Reykjavík og Akureyri) hafa nú skráð sig til þátttöku í Grænum skrefum. Umhverfismál eru ekki ný af nálinni hjá þeim en þau hafa til dæmis veitt umhverfisverðlaun til ferðamannastaða eða fyrirtækja í ferðaþjónustu síðan 1995. Stofnunin rekur einnig gæða- og umhverfiskerfið Vakann fyrir íslenska ferðaþjónustu. Velkomin í verkefnið með okkur 🙂

Sumarfrágangur

Það er alltaf gott að hafa nokkur atriði í huga þegar við förum í frí. Gætum þess að vera ekki að nýta auðlindirnar okkar (hiti, rafmagn) á meðan enginn er að „njóta“ þeirra 🙂









