Þekkjum merkin
Oft er talað um frumskóg umhverfismerkja og að framleiðendur séu að gefa misvísandi upplýsingar um hversu umhverfisvæn varan er. Vissulega getur verið rétt að við framleiðslu hafi verið tekið tillit til umhverfisþátta en ef áreiðanlega vottun skortir er erfitt að segja til um hvort framleiðandi sé í raun að segja satt og rétt frá. Til að vera viss um að varan sé vottuð er gott að leggja þessi örfáu merki á minnið. Ef við kaupum vörur með þessum merkjum getum við verið viss um að varan og framleiðsla hennar standist kröfur um lágmörkun umhverfisáhrifa. Frekari upplýsingar um umhverfismerkin má sjá hér á vefsiðu Umhverfisstofnunar.
Prestastefnan með umhverfisáherslu
Prestastefna Þjóðkirkjunnar var haldin dagana 24- 26. apríl. Umhverfismálin voru í brennidepli og var Grænu skrefunum boðið að halda erindi. Framkvæmdaáætlun umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar var kynnt en í henni koma fram metnaðarfullar aðgerðir kikjunnar til að draga úr umhverfisáhrifum innan stéttarinnar. Það var virkilega ánægulegt að fá að taka þátt í þessu og verður gaman að fylgjast með umhverfismálum hjá þjóðkirkjunni í framtíðinni.
Þriðja skref Skipulagsstofnunar
Áfram heldur Skipulagsstofnun að innleiða skrefin með smá pásu þó, en þau fluttu í nýtt húsnæði fyrir síðustu áramót. Skipulagsstofnun var ein þriggja ríkisstofnana sem á sínum tíma hlutu fyrstar viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið. Innilega til hamingju með flottan árangur.
Vel sóttur fræðslufundur
Aðsókn á fræðslufund um grænt bókhald ríkisstofnana fór fram úr björtustu vonum og við erum mjög glöð yfir að þessi hluti umhverfismálanna fær aukinn áhuga. Tæp 50 manns sóttu fundinn þar sem farið var yfir breytingar á bókhaldinu og áherslur á loftslagsmál. Formlegur frestur til að skila grænu bókhaldi er 1. apríl en við tökum þó við því allt árið og hvetjum stofnanir til að gera það. Endilega hafið samband við starfsmann verkefnisins Hólmfríði Þorsteinsdóttur, ef spurningar koma upp. Fundurinn var tekinn upp og má sjá hér.
Fræðslufundur – Grænt bókhald
Ákveðið hefur verið að halda stutta fræðslufundi um ýmis málefni 2-4 á ári. Við byrjum á grænu bókhaldi sem hentar vel þar sem skil á því er nú þessa dagana. Þetta verður léttur fundur, opið fyrir spjall og fyrirspurnir. Skráning fer fram hér https://goo.gl/forms/nBnJLWAn9BOApiVF2
Að hjóla er raunverulegur valkostur
Háskóli Íslands gaf út kort fyrir starfsmenn og nemendur þar sem hvatt er til þessa að fólk hjóli til og frá skólanum. Á kortinu má sjá hversu langan tíma það tekur fólk að hjóla einn km. Bendum líka á vefsíðu Hjólafærni en þar er hægt að skoða tímavegalengdir í nokkrum sveitarfélögum.
Nokkrar hjólastaðreyndir:
1. Hjólreiðar eru frábær heilsurækt
2. Reiðhjólið er umhverfisvænt
3. Á hjólinu sleppurðu við umferðaröngþveiti
4. Tími gefst til að skoða sig um og njóta útiveru
5. Góð hjólastæði eru upp við byggingar Háksólans og enginn tími fer í að leita að bílastæði
6. Reiðhjólið er ódýrt í rekstri í samanburði við einkabílinn
Forsætisráðuneytið með skref 2 og 3
Nú var forsætisráðuneytið að ljúka innleiðingu 2. og 3ja skrefsins. Verkefnið hefur gengið mjög vel hjá þeim, bæði er umhverfisráðið mjög virkt í að upplýsa starfsmenn og að innleiða aðgerðir. Einnig eru starfsmenn mjög jákvæðir fyrir verkefninu og taka öllum breytingum af jafnaðargeði, vilja jafnvel að hlutir gangi enn hraðar fyrir sig :). Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra tók á móti viðurkenningunni. Innilega til hamingju með árangurinn.
Lengjum líf hlutanna okkar
Við kynnum nýjan facebook hóp sem heitir Græn skref – Nytjamarkaður 🙂 Borið hefur á því að margar stofnanir sitja uppi með allskonar dót, húsgögn og tæki sem þær vita ekki hvað þær eiga að gera við. Úrgangsmyndun hefur aukist svo mjög að t.d. Góði hirðirinn þarf að henda miklu magni af nothæfum hlutum í hverri viku. Við viljum spyrna á móti þessari þróun og hjálpa hvort öðru að búa til umhverfi þar sem við getum skipt, lánað, selt og gefið nothæfa hluti okkar á milli. Vonandi taka ríkisstofnanir vel í þetta verkefni hjá okkur og athugið að þær þurfa ekki að vera í Grænu skrefunum til að nota hópinn. Við viljum líka að hver sem er geti fengið eða keypt hlutina (almenningur og fyrirtæki líka) en til að hafa smá stjórn á umfanginu þá mega aðeins ríkisstofnanir auglýsa hluti. Endilega deilið síðunni áfram til starfsmanna ríkisstofnana, sérstaklega þeirra sem fara með innkaup, umsjón fasteigna, umhverfismál eða annarra sem gætu haft gagn af henni.
Er einhver að lesa tímaritin, blöðin og auglýsingapóstinn?
Mörg lítil atriði geta hafi mikil neikvæð áhrif eða mikil jákvæð áhrif. Af því að það er svo sjálfsagt að fá inn um póstlúguna allskonar blöð, frípóst, auglýsingapóst og annað að við gleymum oft að hugsa út í þau neikvæðu umhverfisáhrif sem felast í framleiðslu á pappír, tímaritum, blöðum og auglýsingaefni, dreifingu og förgun á þessu öllu. Við ættum því öll að velta fyrir okkur hvort við þurfum á þessu að halda? Landsvirkjun ákvað að draga úr þessari sóun með því að segja upp áskrift af öllum tímaritunum sínum, þó áfram sé hægt að fá þau rafrænt. Með þessu spöruðu þau kolefnislosun á ári sem jafngildir akstri tvisvar sinnum um Íslands eða fjórar ferðir frá Reykjavík til Fljótsdals. Munum margt smátt gerir eitt stórt 🙂
Tvö Græn skref í höfn hjá ÚUA
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála var að fá afhenta viðurkenningu fyrir að uppfylla fyrstu tvö Grænu skrefin. Nanna Magnadóttir forstöðumaður tók á móti viðurkenningunni. Þó að nefndin sé lítil og starfsmenn fáir þá skiptir allt máli. Nú er ekki boðið uppá neitt einnota fyrir fundi og menn eru meðvitaðri um flokkun og sóun á rafmagni, pappír og öðru. Þau eru staðráðin í að vinna hratt og vel að næstu skrefum.









