Við bjóðum Sýslumanninn á Vesturlandi velkominn til leiks í Grænu skrefin.
Hjá sýslumanninum eru 18 starfsmenn á fimm starfstöðvum sem er a finna á Stykkishólmi, Borgarnesi, Akranesi, Búðardal og Hellissandi. Við í Grænu skrefunum hlökkum mikið til koma að eflingu umhverfisstarfs hjá Sýslumanni á Vesturlandi!
https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/09/Picture1-1.png9861876https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/04/graenskref_logo.svg2020-09-30 12:02:322020-09-30 12:29:43Sýslumaðurinn á Vesturlandi stígur Grænu skrefin
Lyfjastofnun er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir heilbrigðisráðuneytið og þar starfa 75 manns. Helsta hlutverk hennar er að skrá lyf (gefa út
markaðsleyfi fyrir lyf) á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjaiðnaðinum á Íslandi og tryggja faglega og hlutlausa upplýsingagjöf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda.
Við bjóðum stofnunina velkomna til leiks í skrefunum!
https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/09/Picture1.png9861876https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/04/graenskref_logo.svg2020-09-29 15:10:312020-09-29 15:14:47Lyfjastofnun skráð til leiks
Við bjóðum Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra velkominn í Grænu skrefin og hlökkum til samstarfsins! Fjölbrautarskólinn, sem staðsettur er á Sauðárkróki, var stofnsettur árið 1979 og starfa þar 64 manns. Skólinn upp á bæði bóknám, iðnnám, starfsnám og fleira.
Starfsfólk Skaftafellsstofu með viðurkenningarskjal Grænna skrefa
Í apríl síðastliðnum luku starfsstöðvar Vatnajökuls við innleiðingu á 2. Græna skrefinu. Í fjarúttektum okkar var gaman að sjá og heyra af metnaðarfullu umhverfisstarfi sem unnið er á hverjum stað og hversu jákvæðir starfsmenn eru í garð verkefnisins. Meðal þess sem hefur verið gert við innleiðingu á skrefi 2 er ítarleg innkaupagreining, áhersla á umhverfismál í verklagsreglum stofnunarinnar um fundi og upplýsingamiðlun og metnaðarfull markmiðasetning í Grænu bókhaldi.
Í Vatnajökulsþjóðgarði er lögð áhersla á fræðslu til starfsfólks og í vetur sóttu þau m.a. vistakstursnámskeið hjá Ökuskólanum í Mjódd og starfsfólk Austursvæðis tók MasterClass í sjálfbærni, umhverfismálum og heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna í Hallormsstaðaskóla. Til hamingju með glæsilegan árangur starfsfólk í Fellabæ, Gömlubúð, Gljúfrastofu, Kirkjubæjarklaustri, Mývatni, Skaftafellsstofu, Skaftárstofu og Snæfellsstofu!
Sérsmíðaðar flokkunartunnur falla vel inní rýmið á Snæfellsstofu
Góðar og skýrar flokkunarleiðbeiningar; myndmál, íslenska og enska
Starfsfólk Snæfellsstofu fer til og frá vinnu á rafbíl
https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/09/2skref-scaled-e1601382207325.jpg9001200https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/04/graenskref_logo.svg2020-09-29 12:23:382020-09-29 14:12:46Vatnajökulsþjóðgarður með 2. Græna skrefið
Verkmenntaskólinn á Akureyri (VMA) er einn af fjölmörgum framhaldsskólum sem hafa bæst við Grænu skrefin undanfarið.
Skólinn sem tók til starfa árið 1984 býður bæði upp á stað- og fjarnám en við skólann starfa um 150 mans auk þeirra um það bil 1100 nemenda sem stunda þar nám. Starfsemi Verkmenntaskólans einkennist af námsframboði fyrir alla nemendur, með áherslu á fjölbreytt nám, bæði í iðn- og tækninám ásamt hefðbundnu bóknámi.
Við hlökkum til að starfa með VMA og bjóðum nemendur og starfsfólk velkomið í Græns skref!
https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/09/VMA-logo-mynd-2.png10211876https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/04/graenskref_logo.svg2020-09-28 15:57:542020-09-29 14:23:21Verkmenntaskólinn á Akureyri þátttakandi í Grænum skrefum
Við bjóðum Fjölbrautaskóla Vesturlands kærlega velkominn í Grænu skrefin.
FVA var stofnaður 1977 og er bæði bók- og verknámsskóli. Boðið er upp á nám í málmiðngreinum, húsasmíði, rafvirkjun og á sjúkraliðabraut ásamt hefðbundnu bóknámi til stúdentsprófs. Sérstaða skólans felst í sterkum tengslum við atvinnulíf á svæðinu, persónulegri þjónustu, notalegu andrúmslofti og fjölbreyttu námsframboði.
Við hlökkum til að stíga grænu skrefin með ykkur!
https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/09/FVA-lokamynd.jpg15362304https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/04/graenskref_logo.svg2020-09-28 15:16:102020-09-29 14:01:03Velkomin til leiks Fjölbrautaskóli Vesturlands
Fjölbrautaskóli Suðurlands var stofnaður 1981 og er staðsettur á Selfossi. Í skólanum er boðið upp á fjölbreytta flóru í námsmöguleikum; stúdentsbrautir, styttri brautir, verknámsbrautir, starfsbrautir og listnámsbrautir svo eitthvað sé nefnt. Einnig hefur skólinn reglulega boðið upp á nám í meistaraskóla og öldungadeild. Þá starfrækir skólinn starfsstöðvar í fangelsunum á Litla-Hrauni og Sogni. 121 manns starfa í skólanum og hlökkum við til samstarfsins í Grænu skrefunum.
Þann 23. september síðastliðinn buðum við til kynningarfundar um gerð loftslagsstefnu fyrir ríkisaðila, þ.e. ríkisstofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkis. Samkvæmt lögum um loftslagsmálum (5.gr.c) ber ríkisaðilum að setja sér slíka stefnu fyrir árslok 2021.
Á fundinum kynntum við Grænu skrefin og hvernig gerð loftslagsstefnu á heima undir verkefninu. Þá fórum við yfir leiðbeiningar okkar um gerð loftslagsstefnu sem finna má hér á heimasíðu Grænna skrefa. Að lokum fengum við að heyra þrjú örerindi frá ÁTVR, Landsvirkjun og Seðlabanka Íslands; Sigurpáll Ingibergsson hjá ÁTVR deildi með okkur reynslu þeirra af fjárhagslegum ávinningi umhverfisstarfs, Jóna Bjarnadóttir hjá Landsvirkjun gaf okkur hagnýt ráð fyrir Græna bókhaldið og Telma Ýr Unnsteinsdóttir hjá Seðlabanka Íslands sagði okkur frá þeirra vinnu við gerð loftslagsstefnu.
Hér að neðan má sjá upptöku af fundinum og nálgast erindin á pdf formi.
Þar sem það gafst ekki tími til að svara öllum spurningum sem bárust meðan á kynningunni stóð birtum við svörin við eftirstandandi spurningum hér:
Hvað er áætlað að það fari margir mannmánuðir í verkefnið á ári? Það er mjög misjafnt eftir stofnunum. Þetta fer eftir stærð og umfangi starfseminnar og stöðunni á umhverfisstarfinu ykkar. Nú erum við hér á Umhverfisstofnun nýbúin að móta okkur nýja umhverfis- og loftslagsstefnu og tilheyrandi markmið og aðgerðaáætlun. Það voru aðallega tvær manneskjur í umhverfisráði sem sáu um þá vinnu í samráði við yfirstjórn og stóð hún yfir í ca 3 mánuði samhliða annarri vinnu, frá upphafi og þangað til allt var samþykkt af yfirstjórn og birt á vefnum. Við vorum auðvitað ekki að byrja okkar umhverfisstarf frá grunni, við höfum haldið Grænt bókhald frá árinu 2011 og verið með virka umhverfisstefnu og vottað umhverfisstjórnunarkerfi í mörg ár.
Einhver tips eða tricks til að fá stjórnendur til að fá áhuga á þessum málum? Það er mjög sniðugt að fá okkur í heimsókn með fyrirlestur eða á fund með yfirstjórn. Þar getum við farið yfir þessi mál í sameiningu. Gerð loftslagsstefnu er auðvitað skylda samkvæmt lögum og þátttaka í Grænum skrefum fer mjög vel samhliða þeirri vinnu. Ávinningurinn af öflugu umhverfisstarfi er ótvíræður líkt og komið var inná í erindinu; við drögum úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar, ímynd stofnunarinnar er bætt, ný þekking verður til, aðstaða fyrir starfsfólk verður betri og rekstarkostnaður lækkar. Oftar en ekki leiðir allt þetta til þess að starfsfólk sé ánægðara í vinnunni.
Hvað þurfa stofnanir að vera stórar til að fara í svona vinnu? Hvað með t.d. 5 manna stofnun? Allar stofnanir þurfa að setja sér loftslagsstefnu, stórar sem smáar.
Teljið þið raunhæft að allar ríkisstofnanir nái öllum 5 skrefunum fyrir 1. júní 2021? Við gerum okkur grein fyrir því að þetta er metnaðarfullt markmið og margar stofnanir ekki skráðar enn sem komið er. Hins vegar teljum við að það sé raunhæft að allar ríkisstofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkis verði skráð í verkefnið og komin vel á leið í innleiðingarferli á þessum tíma.
Er einhver samráðsvettvangur aðila á ríkisstofnunum? Já, við erum með Facebook hóp fyrir þátttakendur sem heitir Græn skref – samráðsvettvangur
https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/09/gs_loftslagsstefna-e1600936787260.png6311200https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/04/graenskref_logo.svg2020-09-24 08:34:112020-09-25 13:20:44Upptaka og glærur af kynningarfundi um loftslagsstefnur
Hjá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra starfa 24 manns á tveimur starfsstöðvum; Blönduósi og Sauðárkróki. Stofnunin er 5. undirstofnun Dómsmálaráðuneytis til að skrá sig til leiks og erum við spennt fyrir samstarfinu. Velkomin til leiks og gangi ykkur vel!
https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/09/blondos.jpg480640https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/04/graenskref_logo.svg2020-09-24 08:07:242020-09-24 08:07:53Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra skráir sig til leiks
Við bjóðum Framhaldsskólann á Húsavík hjartanlega velkominn í Grænu skrefin. Skólinn var stofnaður 1. apríl 1987 og er hann bóknámsskóli sem starfar eftir áfangakerfi. Einkunnarorð skólans eiga vel við í mótun sjálfbærs samfélags, frumkvæði – samvinna – hugrekki, en það er akkúrat það sem þarf til. Hlökkum til að taka með ykkur skrefin!
https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/09/download.jpg225225https://graenskref.is/wp-content/uploads/2020/04/graenskref_logo.svg2020-09-23 21:42:432020-09-23 21:45:05Framhaldsskólinn á Húsavík stígur Græna skrefið