Velkomin í verkefnið Menntamálastofnun
Það er afar ánægjulegt að fá Menntamálastofnun til liðs við okkur. Menntun barna og ungmenna í umhverfismálum er eitt það mikilvægasta sem hægt er að gera til að vinna gegn ofnýtingu auðlinda og loftslagsbreytingum. Menntun og fræðsla skiptir höfuðmáli í því hvort okkur muni takast að snúa við á þessari braut.
5 skref hjá Vínbúðinni í Garðabæ
Þá er næst síðast Vínbúðin búin að fá afhenta viðurkenningu fyrir innleiðingu á öllum 5 Grænu skrefunum. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂
Skrifstofustarfsemin á Háskólatorgi náði sínu fyrsta skrefi
Undir skrifstofustarfsemina ná nemendaskráning, námsráðgjöf, Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins og svo eru Félagsstofnun stúdenta og Stúdentaráð einnig með aðsetur þar. Það eru því ýmsir aðilar sem hafa komið að innleiðingu skrefanna og jákvæðni mikil í garð þess. Á móti viðurkenningunni tóku Anna Birna Halldórsdóttir þjónustustjóri Háskólatorgs og Þorbjörg Bakke verkefnastjóri sjálfbærni- og umhverfismála í HÍ.
55 þátttakendur í verkefninu
Menntaskólinn á Egilsstöðum er kominn í verkefnið og hlökkum við mikið til að vinna með þeim 🙂
Fyrsta skrefið hjá ISOR
Íslenskar Orkurannsóknir voru að fá afhenta viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið. Í því tilefni var haldin veisla þar sem verðlaun voru veitt til bestu hugmyndarinnar um umhverfisvænni vinnustað. Lífrænar veitingar og rafbílar voru þar efst í hugum manna. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂

Skiptibókamarkaður fyrir starfsmenn
Í stað þess að starfsmenn séu að henda bókum og kaupa nýjar í sífellu, hefur Þjóðminjasafnið komið upp skiptibókamarkaði hjá sér þar sem starfsfólk getur skilið eftir bækur og tekið sér aðrar. Starfsfólk sem á krakka í menntaskóla hafa einnig komið með bækur sem þau eru hætt að nota þar og leyft þannig öðrum að njóta góðs af því. Frábær hugmynd og stuðlar svo sannarlega að sjálfbærara samfélagi.

Fyrsta skrefið hjá MTR
Menntaskólinn á Tröllaskaga hlaut viðurkenningu fyrir sitt fyrsta Græna skref. Innleiðing skrefsins gekk fljótt og vel og gaman að sjá hvað endurnýtingu hluta er gert hátt undir höfði. Í listsköpun sinni nýta nemendur til að mynda alls konar hluti sem falla til á heimilum og í skólanum og búa til hluti og list úr slíkum efnivið. Á myndunum má t.d. sjá verk úr gostöppum sem málað er á og fallegt verk úr úrklippum.


Vínbúðirnar alveg að ljúka við skrefin
Nú eiga aðeins tvær Vínbúðir eftir að innleiða Grænu skrefin eftir að Vínbúðirnar á Blönduósi og Hvammstanga fengu úttekt og afhendingu viðurkenningar fyrir innleiðingu á öllum fimm skrefunum. Báðar Vínbúðirnar eru litlar en leitast við að draga úr umhverfisáhrifum þar sem það er hægt og hafa áhrif á aðra um að gera slíkt hið sama. Vel gert og til hamingju 🙂
Vegagerðin heldur ótrauð áfram
Núna voru það starfsstöðvar Vegagerðarinnar á Sauðárkróki og Hvammstanga sem fengu fyrsta skrefið sitt afhent. Þar með er allt Norðursvæði Vegagerðarinnar búið að uppfylla fyrsta skrefið. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂
Er viðburður framundan?
Þegar við skipuleggjum viðburði eða fundi eru nokkrir hlutir sem við ættum öll að hafa í huga. Hvernig er fundurinn skipulagður? Er valinn staður sem hefur umhverfisvottun? Er þess gætt að allur borðbúnaður sem boðið er uppá sé ekki einnota? Hvað með veitingar og samgöngur? Hér er gátlisti sem hægt er að fara eftir þegar skipuleggja á fundi og viðburði.




