Sjötta Vínbúðin komin með öll fimm Grænu skrefin
Vínbúðin á Dalvík fékk afhenta viðurkenningu fyrir öll fimm Grænu skrefin núna um jólin. Þar með er Vínbúðin á Dalvík sú sjötta sem nær þeim árangri. Innilega til hamingju með flotta vinnu.
Vínbúðin á Dalvík fékk afhenta viðurkenningu fyrir öll fimm Grænu skrefin núna um jólin. Þar með er Vínbúðin á Dalvík sú sjötta sem nær þeim árangri. Innilega til hamingju með flotta vinnu.
Grænu skrefin voru á faraldsfæti um jólin og heimsóttu nýuppgerða starfsstöð Landsvirkjunar á Akureyri. Starfsstöðin fékk afhenta viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið enda er unnið ötullega að umhverfismálum hjá Landsvirkjun. Til hamingju.
Nú þegar starfsstöð Umhverfisstofnunar í Vestmannaeyjum hefur lokið 4 og 5 skrefi á aðeins ein starfsstöð stofnunarinnar eftir að innleiða Grænu skrefin. Á starfsstöðinni í Vestmannaeyjum er aðeins einn starfsmaður en skrifstofa hennar er í húsi með mörgum öðrum stofnunum og fyrirtækjum sem verða einnig fyrir áhrifum af verkefninu.
Á aðventunni hefur Umhverfisstofnun miðlað nokkrum atriðum sem við öll getum tileinkað okkur til að njóta grænni jóla 1. Gefa upplifanir og umhverfisvænar gjafir fremur en að bæta við enn meira dóti inn á heimilin. 2. Ekki hræðast jólaköttin, við eigum öll nóg af fötum og þurfum því ekki alltaf að kaupa nýtt. Afar mikið […]
Það var jólalegt um að litast hjá Flugfjarskiptum Isavia, þegar úttekt á fyrstu tveimur Grænu skrefunum fór fram. Eins og aðrar starfsstöðvar Isavia stóðu þau sig með prýði og eru full áhuga að ljúka öllum skrefunum sem fyrst.
Veðurstofan er 36 stofnunin sem tekur þátt í Grænu skrefunum og þar með eru allar stofnanir umhverfis- og auðlindaráðuneytisins komnar í verkefnið. Velkomin 🙂
Í raftækjum, rafhlöðum og rafgeymum er gríðarlegt magn af verðmætum málmum og efnum eins og gulli, silfri, kopar, áli og fleiru sem eru einnig takmarkaðar auðlindir. Því er afar mikilvægt að við komum þeim öllum í endurvinnslu sama hversu lítið okkur finnst tækið vera. Í snjallsímum sem Íslendingar henda á ári hverju leynast 8,8 kg af […]
Innilega til hamingju Vínbúðin á Eiðistorgi, það voru hörkuduglegir starfsmenn sem drifu í að ljúka við síðustu skrefin fyrir jól.
Til hamingju með flottan árangur Vínbúðin á Siglufirði. Vínbúðin hefur nú náð þeim árangri að uppfylla og fá viðurkenningu fyrir að innleiða öll fimm Grænu skrefin. Á myndinni eru Sólrún Júlíusdóttir og Hólmfríður Ósk Norðfjörð.
Nýtnivikan er haldin ár hvert til að minna okkur á að draga úr óþarfa neyslu og nýta betur það sem þegar hefur verið framleitt. Þema vikunnar í ár er að draga úr umbúðanotkun. Við getum líka haft áhrif á þróun þessa málaflokks með því að velja vörur með minni umbúðir eða frekar vörur í umhverfisvænni umbúðum. […]
Í tilefni af Nýtniviku sem hefst 19. nóvember, ætla Umhverfisstofnun og Reykjavíkurborg að standa fyrir málstofu um umbúðir. Þema Nýtnivikunnar er að draga úr umbúðum og er því flestum þeim sem koma að framleiðslu, innflutningi, notkun og reglum um umbúðir stefnt saman til að ræða þessa hluti. Dagskráin er afar vegleg og áhugaverð og má […]
Velkomin í Grænu skrefin Orkustofnun, hlökkum til að vinna með ykkur 🙂