Fjórða skrefið hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu

Þá er fjórða skrefið komið hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu en starfsmenn þar hafa unnið markvisst að innleiðingu verkefnisins. Sem hluta af aðgerðum verkefnisins ætla þau að gróðursetja í reit sinn hjá Hekluskógum einu sinni á ári sem lið í kolefnisjöfnun og að fara árlegar hreinsunarferðir, þau þrýstu einnig á að settar yrðu upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla á bílastæði ráðuneytisins og eru að vinna í að fá hjólavottun. Sigríður Auður Arnardóttir ráðuneytisstjóri tók á móti viðurkenningunni. 

Vínbúðirnar á Höfn og Djúpavogi hafa lokið fimm skrefum

Hjá Vínbúðunum er eins og vanalega allt eins og það á að vera 🙂 Að auki er Vínbúðin á Höfn í skemmtilegri samvinnu við Nettó en verslunin tekur allan úrgang fyrir þau og kemur því á rétta staði. Þannig er komið hjá óþarfa tækjabúnaði og sorphirðu hjá Vínbúðinni með samnýtingu. 

Fimmtugasti þátttakandinn er Verkmenntaskóli Austurlands

Við viljum bjóða Verkmenntaskóla Austurlands velkominn í verkefnið og hlökkum við til að vinna með þeim öllum. 

Margnota mál og bakkar í Hámu

Félagsstofnun Stúdenta sem rekur veitingastofu Hámu í Háskóla Íslands hefur tekið í notkun fjölnota matarbox á veitingastofum sínum og verða boxin seld á kostnaðarverði til nemenda og starfsmanna. Einnig voru keypt 5.000 margnota plastglös. Á árinu 2016 voru 20.000 einnota matarbox notuð og 78 þúsund einnota drykkjarglös hjá Hámu, sem er bæði kostnaðarsamt og eykur mjög á neikvæð umhverfisáhrif en tilgangurinn er einmitt að draga úr einnota notkun, draga úr myndun úrgangs og um leið úr neikvæðum umhverfisáhrifum. 

 

Úrskurðarnefnd Velferðarmála komin í Grænu skrefin

Hjá Úrskurðarnefndinni eru umhverfismálin þegar komið nokkuð vel á veg en þau ætla að taka þátt og innleiða umhverfismálin enn markvissara. Velkomin í verkefnið og hlökkum til að vinna með ykkur.

Vinnueftirlitið í Grænu skrefin

Vinnueftirlit ríkisins er komið í verkefnið okkar og hlökkum við til að vinna með öllum rúmlega 70 starfsmönnum þeirra 🙂

Hafrannsóknastofnun er komin í Grænu skrefin

Þau eru stærsta rannsókna- og ráðgjafastofnun á sviði haf- og vatnarannsókna á Íslandi. Starfsmenn þeirra eru 180 talsins og sinna verkefnum á sviði rannsókna hafs og vatna, fiska og lífríkis þeirra. Einnig að gera tillögur um friðun og veiði. Hlökkum til samvinnunnar 🙂

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Hefur skráð sig til þátttöku, við erum mjög glöð að fá fleiri skóla til liðs við okkur, enda svo mikilvægt að unga fólkið okkar læri snemma um umhverfismál.

.

Dómsmálaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið ætla saman að vinna að innleiðingu Grænna skrefa. Við hlökkum mikið til samstarfsins 🙂

Isavia Egilsstaðaflugvöllur kominn með tvö skref

Egilsstaðaflugvöllur fengu úttekt og viðurkenningu fyrir annað Græna skrefið. Á vinnustaðnum er mikil samstaða um að gera hlutina vel sama hvort það séu umhverfismál eða annað. Starfsmenn þar ganga líka aðeins lengra og gróðursetja árlega tré á eigin landi. Til hamingu með árangurinn 🙂