Fimm skref hjá Utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðuneytið hefur lokið fimm Grænum skrefum og tók á móti viðurkenningu frá Umhverfisstofnun fyrir helgi. Við óskum ráðuneytinu og starfsfólki þess innilega til hamingju með Grænu skrefin.
Utanríkisráðuneytið hefur lokið fimm Grænum skrefum og tók á móti viðurkenningu frá Umhverfisstofnun fyrir helgi. Við óskum ráðuneytinu og starfsfólki þess innilega til hamingju með Grænu skrefin.
Stór hluti aðgerða Grænu skrefanna hafa með hringrásarhagkerfið að gera, þar sem leitast er við að koma í veg fyrir að auðlindir verði að úrgangi, með því að neyta minna, deila, gera við, endurnota, endurframleiða og endurvinna. Dæmi um aðgerðir Grænna skrefa sem tengjast hugmyndinni um hringrásarhagkerfi eru að; nota ekki einnota borðbúnað eða einstaklingsinnpökkun […]
Starfsstöð Ríkisútvarpsins við Efstaleiti kláraði annað skrefið nú á dögunum með glæsibrag! Til þess að ná skrefinu hafa þau meðal annars skilað Grænu bókhaldi og sett sér ítarlega loftlagsstefnu með mælikvörðum. Þá hafa þau einnig skuldbundið sig til þess að fjárfesta í kolefnisbindingarverkefnum sem svarar til reiknaðrar losunar hvers árs. Við óskum RÚV til hamingju […]
Stöðugt fleiri ríkisaðilar ljúka nú við fimmta og síðasta Græna skrefið og er oft spurt; hvað svo? Það er eðlilegt að sú spurning vakni, enda eru umhverfismál eilífðarverkefni sem ekki er hægt að ljúka fyrir fullt og allt, heldur þarf stöðugt að vinna að því að gera betur og vera vakandi. Það eru nokkur veigamikil […]
Þann tíunda maí stóð teymi hringrásarhagkerfis Umhverfisstofnunar fyrir málþingi um umhverfisvænni mötuneytisrekstur. Tilefni málþingsins voru nýútgefnar leiðbeiningar okkar um umbúðanotkun og minni matarsóun í mötuneytum, þær má finna undir vinnugögn á heimasíðu Grænna skrefa. Við vekjum sérstaka athygli á veggspjaldi sem var hannað við sama tilefni þar sem nokkrar vel valdar aðgerðir eru dregnar fram. […]
Sá merkilegi atburður varð á Selfossi 4. maí að Fjölbrautaskóli Suðurlands lauk fimmta og síðasta Græna skrefinu. Olga Lísa, skólameistari, og Karl Ágúst, fulltrúi umhverfisnefndar, tóku við viðurkenningunni og sögðu frá þeim árangri sem náðst hefur í Grænu skrefunum. Þar má nefna stórbætta flokkun sorps meðal nemenda, áherslu á umhverfisvænni byggingarvið í verknámsgreinum, endurvinnslu sértæks […]
Nýsköpunardagur hins opinbera verður haldinn í Grósku og í streymi á milli klukkan 9:00 og 15:30 þann 17. maí næstkomandi. Markmið viðburðarins er að hvetja til aukinnar nýsköpunar hjá hinu opinbera og er þemað í ár græn nýsköpun. Dagskráin samanstendur af fjölbreyttum erindum, bæði reynslusögum og nýjum tækifærum. Við hvetjum tengiliði Grænna skrefa að […]
Það er hægt að fara margar leiðir til þess að uppfylla aðgerð um skiptistöð í skrefi 4. Stofnanir hafa sett upp skiptimarkað fyrir föt, öskudagsbúninga, bækur eða jafnvel púsluspil. Starfsmannafélag Umhverfisstofnunar í Reykjavík hefur efnt til plöntu-potta-fræ og afleggjara skiptimarkaðs. Starfsfólk er hvatt til að mæta með afleggjara af plöntum, gamla potta sem þau hafa […]
Þann 10. maí næstkomandi stendur teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun fyrir málþingi um umhverfisvænni mötuneyti. Málþingið verður öllum opið og streymt í gegnum Teams milli 14:00 og 15:00 á Facebook-síðu Umhverfisstofnunar. Hlekkinn má finna hér. Við munum hlýða á fjögur áhugaverð erindi sérfræðinga, rekstraraðila og neytenda og munu erindin snerta á kolefnisspori matvæla, matarsóun, umbúðanotkun, Svansvottun […]
Við vekjum athygli á að opnað hefur verið fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna og hvetjum alla vinnustaði til að skrá lið sín til keppni. Flest þekkjum við Hjólað í vinnuna, enda keppnin orðin rótgróin, en hún er á vegum almenningsíþróttasviðs ÍSÍ. Keppnin stendur yfir frá 4. maí til 24. maí, og því um að […]
Alþjóðlegur dagur jarðar er í dag, 22. apríl. Fyrsti Dagur jarðar var haldinn árið 1970 í Bandaríkjunum en hefur frá 1990 verið haldinn alþjóðlega. Í ár er þema dagsins „fjárfestum í plánetunni okkar“ með það að markmiði að hvetja fyrirtæki til að stunda sjálfbærari viðskiptahætti og setja upp góðar UFS (e. ESG) upplýsingar. Sömuleiðis er […]
Sunnudaginn 24. apríl næstkomandi er Stóri plokkdagurinn sem haldinn er af hópnum Plokk á Íslandi. Við hvetjum ríkisstofnanir og fyrirtæki til að taka þátt í plokkinu með því að vekja athygli á plokkdeginum og skipuleggja tíma dagana í kringum plokkdaginn þar sem starfsmenn geta plokkað í nærumhverfi vinnustaðarins. Allir mega stofna viðburði á Stóra Plokkdaginn […]