Græn skref hjá Vegagerðinni
Nú er Vegagerðin komin í hóp okkar í Grænu skrefunum. Alls 300 starfsmenn sem hefja með okkur græna vegferð 🙂
This author has yet to write their bio.Meanwhile lets just say that we are proud graenskref contributed a whooping 362 entries.
Nú er Vegagerðin komin í hóp okkar í Grænu skrefunum. Alls 300 starfsmenn sem hefja með okkur græna vegferð 🙂
Það er alltaf gott að rifja upp kosti þess að nota umhverfisvænni samgöngumáta. Á þessari vefsíðu er stutt samantekt frá Umhverfisstofnun um kosti þessa og ýmis ráð sem hægt er að hafa í huga í þessum efnum. Umhverfisvænar samgöngur
Nú eru í gangi skil á Grænu bókhaldi ríkisstofnana, en þeim fer sífellt fjölgandi stofnunum sem skila inn gögnum. Gögn og leiðbeiningar eru inni á síðu vistvænni innkaupa.
Umhverfisstofnun, starfsstöð á Suðurlandsbraut 24 tók á móti viðurkenningu Grænna skrefa frá Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrúnu Magnúsdóttur á ársfundi stofnunarinnar. Umhverfisstofnun varð með því fyrst allra stofnana til að klára öll fimm Grænu skrefin. Auk þess fékk starfsstöðin á Patreksfirði viðurkenningu fyrir fjögur Græn skref og starfsstöðvarnar á Mývatni og Akureyri hvor um sig fyrir […]
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er stofnun nr. 21 í verkefninu okkar. Skólinn leggur áherslu á að kenna umhverfisfræði, efla umhverfisvitund nemenda og kennara ásamt því að lágmarka umhverfisáhrif rekstursins. Þess má geta að hús skólans er hannað með áherslu á vistvæna hönnun s.s. með því að nota náttúrulega loftræstingu, nýta dagsbirtu, spara orku og aðstöðu fyrir […]
Kolviður er verkefni í umsjón Skógræktarfélags Íslands og Landverndar en verkefni þetta gefur fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum tækifæri til að kolefnisjafna útblástur á koltvísýringi (CO2) með skógrækt. ÁTVR gengur skrefinu lengra en margir í að minnka umhverfisáhrif sín en árið 2014 gerðu þau samning við Kolvið um að kolefnisjafna útblástur vegna aksturs og flugferða. Heildarlosun koltvísýrings sem ÁTVR hefur bein […]
Nú er Þjóðskrá Íslands komin í hóp grænna stofnana. Velkomin í hópinn og hlökkum til að vinna með ykkur!
Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur skráð sig til leiks í Grænum skrefum. Stofnunin er á 14 starfsstöðvum um allt Austurland með 320 starfsmenn og hlökkum við til að vinna með þeim 🙂
Þá getur verið að þið getið gert grænan húsaleigusamning við leigusalann. Til að mynda þá býður Fasteignafélagið Reitir leigutökum sínum að skrifa undir samning þess efnis að báðir aðilar skuldbinda sig til að starfrækja húsnæðið með vistvænum hætti. Slíkur samningur getur hjálpað stofnunum að innleiða hluta af Grænu skrefunum og því um að […]
Til hamingju Stofnun Vilhjálms Stefánssonar en fyrsta Græna skrefið er komið í höfn hjá þeim og ekki langt í skref nr. 2. Lára Ólafsdóttir skrifstofustjóri tók á móti viðurkenningunni frá Hólmfríði Þorsteinsdóttur frá Umhverfisstofnun.