Entries by graenskref

Vistvænt hjá Landmælingum Íslands

Samgöngumál eru tekin föstum tökum hjá Landmælingum Íslands sem staðsettar eru á Akranesi.  Landmælingar tóku sitt fyrsta græna skref á dögunum og voru meðal fyrstu stofnana landsins sem aðlöguðu starfsemi sína Grænum skrefum í ríkisrekstri.    Þótt ákvörðunin hafi ekki kallað á miklar breytingar í starfseminni voru sóknarfæri hér og þar sem nýtt voru til […]

Skipulagsstofnun stígur fyrsta græna skrefið

Grænar plöntur taka hlýlega á móti gestum Skipulagsstofnunar og gleðja auga þeirra sem þar starfa um leið og þær keppast við að bæta loftgæðin á vinnustaðnum. Skipulagsstofnun var meðal fyrstu stofnana ríkisins sem á dögunum stigu grænt skref í sínum rekstri.    Hjá Skipulagsstofnun er nýtnin í fyrirrúmi. Þegar nýlega þrengdi að stofnuninni þurfti að […]

Hvar liggur áhugi starfsmanna?

Skipulagsstofnun réðst í könnun um ferðavenjur, úrgangsflokkun og orkunotkun meðal starfsmanna til að fá yfirsýn yfir þau sóknarfæri sem stofnunin hefur til að bæta sig í umhverfismálum. Slíkar kannanir þurfa ekki að vera flókar, t.a.m. er hægt að finna vefsíður sem bjóða ókeypis forrit fyrir þess háttar úttektir.

Endurnota eins og hægt er

Stefna Landmælinga í innkaupamálum er að forðast í lengstu lög að kaupa nýtt ef eldri búnað er hægt að nýta. Til dæmis eru tölvur gjarnan látnar ganga á milli starfsmanna, sem hafa ólíkar þarfir í þeim efnum. Þannig þurfa þeir sem vinna í kortagerð mun öflugri tæki en þeir sem sinna t.d. almennum skrifstofustörfum og […]

Gleymum okkur ekki

  Einfaldir miðar á vel völdum stöðum á vinnustaðnum eru góð leið til að minna fólk á að slökkva ljós og á raftækjum við heimferð eða í kompum og geymslum þar sem ekki þarf að loga ljós yfir daginn.

Betri lýsing

Þegar starfsfólk Landmælinga uppgötvaði að lýsingu var ofaukið á sumum stöðum brá það á það ráð að skrúfa aðra hvora ljósaperu úr ljósastæðum, sem sparar orkuna sem annars færi í að hafa kveikt á perunum.

Hvers vegna grænn ríkisrekstur?

Hjá ríkinu starfa um 20000 manns. Reksturinn er umfangsmikill og hefur umtalsverð umhverfisáhrif, bæði vegna athafna starfsmanna og vegna þjónustu sem ríkið veitir. Rekstrinum fylgir losun gróðurhúsalofttegunda frá bílum, meðhöndlun úrgangs og ýmsum verkframkvæmdum. Í gegnum innkaup hefur ríkið einnig mikil áhrif, t.d. á losun gróðurhúsalofttegunda. Starfssemi ríkisins fylgir losun efna sem hafa áhrif á […]

Hugmyndir að veislu án úrgangs

Nota fjölnota glös í staðin fyrir einnota. Hægt er að leigja glös hjá veisluþjónustu ef von er á mörgum gestum. Fjölnota hnífapör í stað plasthnífapara. Fáið lánað hjá nágrönnum ef veisluþjónustureikningurinn er orðinn of hár. Setið merkimiða á tunnurnar þínar þannig að gestirnir geti hjálpað þér að flokka tóm ílát, bein og bréfþurrkur. Skemmtiatriðin, búningarnir og stuðaukandi […]

Þrír plastpokar á fimm vikum

Undanfarið hefur umræða um skaðsemi plasts stóraukist, en plast getur valdið mjög neikvæðum áhrifum á heilsu og umhverfi. Lengi hefur verið vitað um þörf þess að draga úr notkun plasts en þróunin hefur verði þveröfug.    Umhverfishópur Stykkishólms fékk í ársbyrjun styrk frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu til að ráðast í tilraunaverkefni sem felur í sér […]