Til hamingju FSU með 2. Græna skrefið!

Við óskum Fjölbrautaskóla Suðurlands innilega til hamingu með 2 Græna skrefið!

Til að ná 2 Græna skrefinu hefur FSU meðal annars keypt umhverfisvænar hreinsivörur og pappír, farið sparlega með rafmagn með því að skipta út venjulegum ljósaperum fyrir LED perur, og keypt inn umhverfisvænt kaffi (sem við vitum að var ekki lítil aðgerð, enda kennarar oft sólgnir í kaffi ;).

En kannski mikilvægast af öllum aðgerðum var algjör viðsnúningur í flokkunarmálum. Í raun væri hægt að kalla þetta byltingu. Þetta er framgangssaga sem sýnir hvernig maður getur á mjög stuttum tíma farið úr  23% endurvinnsluhlutfall yfir í 86% endurvinnsluhlutfall. Áður en FSU byrjaði í Grænu skrefunum hafði verið lítil áhersla á flokkun og þau í raun ekki mikið pælt í því. En svo var bara farið í að breyta þessu, og það sem skipti kannski mestu máli var að ruslið frá iðnnáminu, málmur og tré, fer núna allt beint í flokkun. Þetta hefur ekki bara verið gott fyrir umhverfið, heldur líka dregið verulega úr rekstrarkostnaði. Allir græða!

Áskoranir fyrir stofnunina eru að viðhalda þessum árangri í flokkuninni og halda dampi í verkefninu til að ná 5 skrefum fyrir árslok. Áður en þau byrjuðu í verkefninu voru engir með samgöngusamning, en núna verður boðið upp á samning og áhugavert að sjá hvort að fleiri ákveða að fara með vistvænum hætti í vinnuna.

Enn og aftur til hamingju, og vel gert!

Félagsvísindasvið við HÍ hlýtur 3. Græna skrefið

Hvað gerir maður þegar stórfellt flóð flæðir yfir starfsstöð sem er í miðju kafi að klára Grænu skrefin? Þessari spurningu þurftum við að svara á dögunum. Það muna vafalaust flestir eftir dramatísku myndunum af vatnsleka sem átti sér stað á miðsvæði Háskóla Íslands þann 21. janúar í upphafi árs. Félagsvísindasvið var eitt af þeim sviðum háskólans sem missti aðstöðu sína vegna flóðanna. Þegar þetta átti sér stað var Félagsvísindasvið í miðjum klíðum að klára 2. og 3. Græna skrefið. Við hjá Grænu skrefunum ákváðum að þar sem þetta væri fordæmalaust, en ekki fordæmisgefandi, þá myndum við veita Félagsvísindasviði 2. og 3. Græna skrefið þrátt fyrir að vera ekki með neina starfsstöð eins og stendur. Enda hefur Háskóli Íslands um árabil unnið að því að innleiða Grænu skrefin í starfssemi skólans og Félagsvísindasvið skuldbindur sig að sjá til þess að aðgerðunum í Grænu skrefunum sé fylgt eftir í nýju húsnæði.  Þó að það hafi vissulega verið skrítið að gera úttekt á stað án starfsstaðar þá er hægt að líta á skrefin sem hvatningu til þess að hafa umhverfismálin í huga strax frá byrjun. Með því erum við viss um að það náist bæði umhverfislegur ávinningur og að það spari tíma, peninga og fyrirhöfn.

Enn og aftur til hamingju Félagsvísindasvið við Háskóla Íslands fyrir að ljúka 2. og 3. Græna skrefinu.

 

 

 

Fjölbrautaskóli Suðurnesja hlaut á dögunum 1. Græna skrefið

Fjölbrautaskóli Suðurnesja hlaut á dögunum 1. Græna skrefið og við óskum honum innilega til hamingju með það!

FSS, eins og skólinn er gjarnan kallaður, var einn af fyrstu ríkisaðilunum til að klára 1. skrefið í nýju útgáfunni af Gátlistanum. Það er alltaf krefjandi að fara ótroðnar slóðir en FSS tókst með glæsibrag á við nýjar aðgerðir eins og að hafa umhverfismálin í huga við framsetningu á matseðli. Auk þess hafa þau hafið vinnu við að skila Grænu bókhaldi, fræðst um umhverfisvæn merki, passað upp á merkingar á flokkun, valið sparneytin raftæki, pantað fleiri hjólaboga fyrir skólann og margt fleira. Það er einnig gleðilegt að þau eru strax langt komin með að klára 2. skrefið og því mikill gangur í verkefninu.

Enn og aftur, innilega til hamingju!

Upplýsingafundur: Spurt og svarað um Grænt Bókhald

Í lok mánaðarins ber öllum stofnunum hafa skilað inn Grænu BókhaldiAf því tilefni sláum við til upplýsingafundar þar sem við munum fara stuttlega yfir bókhaldið en verja síðan góðumma í  fara yfir spurningarVið mælum með  fólk taki frá 35 mínútur í dagbókinni sinni fyrir fundinn til  horfa á kynningarmyndbandið um Grænt bókhald og Gagnagátt Umhverfisstofnunar á vef Grænna skrefa því þar er flestum algengum spurningum svarað.  

Grænt bókhald er forsenda þess að stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins geti sett sér mælanleg markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda í loftslagsstefnu og þess vegna er mikilvægt að allar stofnanir skili.  

Upplýsingafundurinn fer fram á:

Mánudaginn 22. mars: 11:00-12:00

Á fundinum munum við einnig sýna hvar þið getið skoðað myndræna framsetningu á skilum síðustu ára, en þá er hægt að bera saman árangur fyrri ára eða bera saman stofnun sína og aðrar stofnanir. 

Föstudaginn 26. mars: 13:30-15:00 munum við hafa opið þjónustuborð fyrir stofnanir sem vantar aðstoð á lokametrunum fyrir skil. 

Nánari upplýsingar og fundarboð voru send á tengiliði stofnanna. Vinsamlegast hafið samband á graenskref@graenskref.is ef þið hafið ekki fengið boð.

 

Lyfjastofnun komin með 1. Græna skrefið

Við óskum Lyfjastofnun til hamingju með að vera komin með 1. Græna skrefið.

Lyfjastofnun ætlar ekki að láta þar við sitja heldur hófu árið á því að endurskoða umhverfis- og loftlagsstefnu sína og  hafa fylgt þeirri vinnu eftir með markvissri aðgerðaáætlun. Við væntum þess því að Lyfjastofnun haldi ótrauð áfram að taka skrefin.

Helena W Óladóttir, sem er tengiliður Grænna skrefa segir í tilefni dagsins að: „Við erum svo heppin að starfsfólk Lyfjastofnunar hefur tekið vel í þær breytingar sem við höfum gert, sinnir flokkun af miklum móð og er áhugasamt um að leggja sitt af mörkum til að markmið ársins náist.“

Enn og aftur til hamingju! Þetta eru góðar fréttir að taka með sér inn í helgina

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra kominn með 4 skref

Það er ekki amalegt þegar það er mikill gangur í Grænu skrefunum. Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra (FNV) skráði sig í verkefnið í lok september á 2020 og hefur á undraverðum tíma hlaupið í gegnum skrefin. Síðastliðinn desember voru þau orðin þrjú, og nú örfáum mánuðum seinna eru þau komin með 4. skref. Við höfum þessvegna fulla trú á því að þeim muni takast að klára 5. skrefið fyrir lok árs 2021, í samræmi við kröfurnar sem eru gerðar á ríkisaðila í loftlagsstefnu Stjórnarráðsins.

Til að taka skrefin hefur FNV meðal annars verið að taka sorpmálin í gegn, þau bjóða núna upp á vottað kaffi og te á kaffistofum, þeir sem sjá um innkaup passa upp á að kaupa umhverfismerktar vörur og bæði starfsmenn og nemendur fá reglulega fræðslu um umhverfismál og margt fleira.

Við óskum FNV innilega til hamingju með þennan fyrirmyndar árangur!

Rannsóknastofa við HÍ fagnar 1. og 2 Græna skrefinu

Við óskum Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands til hamingju með 1. og 2. Græna skrefið.

 

RLE, eins og þau eru jafnan kölluð, hafa staðið sig einstaklega vel í sínu umhverfisstarfi. Þann góðan árangur má bæði þakka brennandi áhuga starfsmanna á umhverfismálum og reynslu af því að vinna í öryggismálum. Öryggismál og umhverfismál eiga nefnilega meira sameiginlegt en margir gera sér grein fyrir. Í báðum tilvikum er mikilvægt að vera með gott verklag, góða stefnu og gott utanumhald til að ná árangri. Starfsmenn í RLE eru vanir því að búa til gæðaskjöl og fylgja gæðastöðlum hvað varðar öryggismál, sem er alls ekki ólýkt því að fylgja gátlista Grænu skrefanna.  Gott umhverfisstarf stefnir líka að því að minnka þá áhættu sem felst í hverskonar mengun, alveg eins og öryggisstarf snýr að því að draga úr áhættum. Að lokum verða allir að leggja hönd á plóg til þess að ná raunverulegum árangri í bæði öryggis- og umhverfismálum. Það er því kannski ekki að undra að þessi metnaðarfulla starfsstöð stefnir á ISO umhverfisvottun innan skamms, en fimmta Græna skrefið er í raun léttari útgáfa af því gæðakerfi.

 

Innilega til hamingju og vel gert!

Menntaskólinn við Hamrahlíð fagnar fyrsta skrefinu

Menntaskólinn við Hamrahlíð fagnaði fyrsta Græna skrefinu sínu í vikunni og gæddu starfsmenn af því tilefni sér á köku.

Það er mikill kraftur í innleiðingarteyminu og við hlökkum til að fagna næstu skrefum með þeim!

1. Græna skrefið hjá Hörpu komið og strax stefnt á næstu

Mynd. Gró Einarsdóttir, sérfræðingur Grænna skrefa og Rakel Lárusdóttir, tengiliður Grænna skrefa fyrir hönd Hörpu

Í gær afhentum við Hörpu 1. Græna skrefið. Það var afar gleðilegt vegna þess að við teljum að það sé mjög mikilvægt að Harpa standi sig vel í umhverfismálum. Það mætti jafnvel segja að hún sé andlit ríkisins bæði innávið og útávið. Fjöldinn allur af almenningi á Íslandi og alþjóðlegum gestum sækja Hörpu heim á hverju ári. Það umhverfisstarf sem gestir Hörpu mæta segja sögu um metnað og áherslur íslenska ríkisins í umhverfismálum. Það er því okkar von og ásetningur Hörpu að hún verði leiðandi í umhverfismálum. Það er mikill gangur í Grænu skrefunum hjá Hörpu og þrátt fyrir að það sé ekki langt síðan þau skráðu sig til leiks þá eru þau strax komin með 1. skrefið og langt komin með næsta. Markið er svo sett á að klára öll 5. skrefin fyrir lok árs.

Við óskum Hörpu innilega til hamingju og gleðjumst yfir kraftinum og metnaðinum í verkefninu.

Stofnun Vilhjálms Stefánssonar með fjögur skref

Stofnun Vilhjálms Stefánssonar er komin með fjögur Græn skref.

Stofnunin hefur tekið þátt í verkefninu frá því það var innleitt fyrst á meðal ríkisstofnanna og vinna aðgerðirnar af natni og vandvirkni.

Við óskum þeim til hamingju með áfangann og hlökkum til að klára fimmta og síðasta skrefið með þeim!