Barnaverndarstofa stígur grænu skrefin

Barnaverndarstofa hefur nú skráð sig til leiks í Grænum skrefum. Starf Barnaverndarstofu felst einkum í því að vinna að samhæfingu og eflingu barnaverndarstarfs í landinu og vera ráðherra til ráðgjafar um stefnumótun í málaflokknum.

Starfsmenn Barnaverndarstofu eru 109 talsins og við hlökkum mikið til að troða með þeim græna slóð.

Fjársýslan tekur við 3. skrefinu

Frá vinstri: Linda Einarsdóttir, Sunna Þórsdóttir, Hrannar Bogi Jónsson, Vilborg Hólmjárn, Stefanía Ragnarsdóttir, Hildur Harðardóttir hjá Umhverfisstofnun, Jóhann Halldórsson og Ragnheiður K. Gunnarsdóttir.

Í dag tók græna teymi Fjársýslunnar við þriðja Græna skrefinu. Innleiðingin hefur gengið mjög vel fyrir sig en þau tóku á móti fyrsta skrefinu í september 2019 og stefna á að ljúka því fjórða fyrir áramót og fimmta á vordögum 2021. Græna teymið er mjög bjartsýnt á að ná settum markmiðum enda góður andi á vinnustaðnum og allir samtaka í því að leggja sitt lóð á vogarskálarnar í umhverfismálum.

Við starfsmenn Grænna skrefa stóðumst ekki mátið að fá að sýna þeirra frábæra árangur sem sjá má hér að neðan en þau hafa skilað Grænu bókhaldi til Umhverfisstofnunar samfleytt frá 2016 og greinilegt að aðgerðir eru að skila sér.  Til hamingju með 3. skrefið allir hjá Fjársýslu ríkisins!

Pappír

Árið 2018 voru notuð 3 bretti af pappír eða 22,5 kg. pr. mann en árið 2019 aðeins 1 bretti eða 7 kg. pr. mann. Geri aðrir betur!

Á einu bretti eru 600 kg. af pappír eða 48 kassar.

Prenthylki

Innkaup á prenthylkjum fór úr 77 stk. niður í 34 stk. á milli ára.

Rafmagn

Frá árinu 2016 hafa þau minnkað rafmagnsnotkun jafnt og þétt eða úr 135.488 kWst niður í 103.879  kWst fyrir allt húsið. Mesta lækkunin var á milli áranna 2018 og 2019 eða úr 128.150 niður í 103.879 kWst. Taflan sýnir rafmagn kWst á stöðugildi.

Einnota mál og pappadiskar

Árið 2018 voru keypt 9.100 einnota mál og 6.400 einnota diska!

Árið 2019 kláruðust birgðarnar og þurfti eingöngu að kaupa 1.000 pappamál fyrir sérstök tilefni. Bravó!

Úrgangur

Óflokkaður úrgangur dróst saman um tæp 1.000 kg. eða úr 3.816 kg. árið 2018 niður í 2.970 kg. í fyrra.

Hlutfall úrgangs til endurvinnslu jókst um 9% á milli ára eða úr 53% í 62% 2019 og í dag er endurvinnsluhlutfallið komið í 73%! Bravissimo!

Lífrænn úrgangur var 930 kg. 2019 en enginn árið áður.

Ræstingar

Fjársýslan hefur eingöngu keypt umhverfisvæna ræstiþjónustu og ræstiefni síðan 2011. Að auki byrjuðu þau að kaupa plastpoka úr endurunnu plasti og maíspoka 2019 og stefna að því að minnka plastpokanotkun allverulega.

Við bjóðum Fjölbrautaskóla Snæfellinga velkomin

Við bjóðum Fjölbrautaskóla Snæfellinga velkomin í Grænu skrefin!

Fjölbrautaskóli Snæfellinga var stofnaður árið 2004 og hófst kennsla sama haust. Þau bjóða upp á metnaðarfull námsumhverfi þar sem komið er til móts við þarfir hvers og eins með sveigjanlegu skipulagi. Hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga starfa 33 starfsmenn og eru þau til húsa á Grundargötu 44 á Grundarfirði. Við óskum þeim góðs gengis g hlökkum til samstarfsins.

 

Bjóðum Hugverkastofuna velkomna um borð!

Við bjóðum Hugverkastofuna velkomna í Grænu skrefin! Hlutverk stofnunarinnar er að fara með málefni varðandi einkaleyfi, vörumerki, hönnunarvernd, byggðarmerki og önnur hliðstæð réttindi sem kveðið er á um í lögum, reglugerðum og alþjóðasamningum um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar (www.hugverk.is). Hjá Hugverkastofunni starfa 38 starfsmenn og eru þau til húsa að Engjateigi 3 í Reykjavík. Við hlökkum til samstarfsins og óskum þeim góðs gengis.

Fataskiptimarkaður á vinnustaðnum

Í úttektum okkar og heimsóknum til stofnana Grænna skrefa höfum við oftar en einu sinni séð fataslá sem gegnir hlutverki skiptimarkaðar. Þessar slár eru annaðhvort settar upp tímabundið eða til lengri tíma en þar getur starfsfólk skipst á gullmolum úr fataskápnum.
Þetta er frábært framtak sem við hvetjum fleiri til að taka upp enda eru umhverfisáhrif af textílframleiðslu mikil. En samkvæmt skilgreiningum Umhverfisstofnunar Evrópu (2014) og Norrænu ráðherranefndarinnar (2015) er textíll fjórði stærsti umhverfisþáttur einstaklinga á eftir húsnæði, samgöngum og matvælum.
Til að minnka umhverfisáhrifin er mikilvægt að draga úr framleiðslunni og lengja líftíma textíls. Ein leið er að gefa föt beint til einhvers sem nýtir þau og eignast notuð í stað þess að kaupa nýtt.

Menntasjóður námsmanna skráir sig til leiks

Við bjóðum Menntasjóð námsmanna velkominn í Grænu skrefin! Hlutverk Menntasjóðs námsmanna, áður LÍN, er að tryggja þeim sem falla undir lögin um sjóðinn tækifæri til náms án tillits til efnahags. Hjá sjóðnum starfa 43 starfsmenn og er hann til húsa í Borgartúni 21 í Reykjavík. Í sama húsi má finna fleiri stofnanir sem taka þátt í Grænu skrefunum og ljóst að það er hagur þeirra allra að vera samstíga í verkefninu. Við hlökkum mikið til samstarfsins og óskum ykkur góðs gengis.

 

 

Plastlaus september handan við hornið

Árverkniátakið Plastlaus september hefur fest sig rækilega í sessi hér á landi frá því það var sett á laggirnar árið 2017. Tilgangur verkefnisins er að vekja fólk til umhugsunar um plastnotkun og þann plastúrgang sem fellur til dagsdaglega og leita leiða til að minnka notkunina.

 

 

Átakið snýst ekki um að vera fullkomlega plastlaus í september heldur að finna sér markmið í mánuðinum til að minnka neyslu á einnota plastumbúðum. Við í Grænu skrefunum hvetjum okkar þátttakendur til að setja sér markmið í mánuðinum og nota til þess eftirfarandi veggspjald. Veggspjaldið er svo hægt að birta á heimasíðu stofnunarinnar og innri vef, senda út til starfsmanna og/eða hengja upp þar sem allir sjá.

Hér að neðan eru nokkur dæmi um markmið sem fyrirtæki og stofnanir geta sett sér í Plastlausum september.

Við tökum þátt í Plastlausum september með því að:

  • Fræða starfsfólk okkar um plast og afleiðingar ofnotkunar þess
  • Setja upp verklagsreglur fyrir innkaup til að lágmarka einnota plastumbúðir sem til okkar berast
  • Losa okkur við einnota borðbúnað úr plasti
  • Hvetja starfsfólk okkar til að minnka plastnotkun í mánuðinum
  • Minnka magn plastumbúða sem til fellur hjá okkur (hægt að fá tölur frá sorphirðu um magn fyrri mánaða og setja sér markmið um samdrátt)
  • Fara í flokkunarátak svo allt umbúðaplast komist í réttan farveg
  • Fara út að plokka rusl í hádeginu 1x í viku allan mánuðinn

Við hlökkum til að sjá ykkur útfærslur á plastlausum markmiðum!

1. skref Jafnréttisstofu

Jafnréttisstofa tók í dag við viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið í höfuðstöðvum sínum á Borgum á Akureyri. Innleiðingin hefur gengið vel fyrir sig og greinilegt að hópurinn er vel samstilltur. Sjö starfsmenn starfa á skrifstofunni að Borgum en einn starfsmaður er með aðsetur á skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu í höfuðborginni. Við óskum Jafnréttisstofu innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs í haust!

Með á mynd, frá vinstri: Kristín Ólafsdóttir og Bergljót Þrastardóttir sérfræðingar Jafnréttisstofu, Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri, Steinunn Hauksdóttir starfsmaður Umhverfisstofnunar og Úlfhildur Jóna Þórarinsdóttir rekstrarstjóri. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fallegt útsýni frá hjólastæðinu yfir Eyjafjörðinn og Vaðlaheiðina.

5 skref á hálfu ári!

Starfsfólk Blöndu- og Laxárstöðvar, sem eru tvær af starfsstöðvum Landsvirkjunar, eru búin að stíga öll 5 Grænu skrefin á hálfu ári! Það er búið að vera gaman að sjá hvað starfsstöðvar í óvanalegri kantinum geta innleitt margar aðgerðir í umhverfismálum og finna lausnir sem henta þeim. Umhverfisteymið með þau Elvar Magnússon og Ragnheiði Ólafsdóttur í fararbroddi (sjá mynd) hafa leitt verkefnið áfram í góðri samvinnu við starfsfólk stöðvanna og augljóst að ekki vantar metnaðinn hjá fyrirtækinu. Til marks um það má nefna nokkur dæmi:

  • Í Hjólað í vinnuna var hreinlega hjólað í kringum stöðina!
  • Flokkun er í toppmálum, 80% + flokkun á úrgangi
  • Pappírsrif er nýtt sem undirburður fyrir hesta í sveitinni
  • Vel er staðið að innanhússfræðslu um umhverfismál og Grænu skrefin í gegnum kennsluvefinn Eloomi
  • Búið er að mæla matarsóun í þó nokkurn tíma og í ljós kemur að hún er lítil sem engin, starfsmenn mega taka með sér afganga heima og helgarvaktirnar nýta líka afganga
  • Innkaupagreining vakti menn til vitundar um hvar hægt er að draga úr og hvað annað megi frekar kaupa inn
  • Með kaupum á vatns/sódavatnsvél hefur vatnsdrykkja aukist
  • Tedrykkja hefur einnig aukist með flottu lífrænu te-safni
  • Nú er boðið uppá niðurskorið grænmeti á fundum og vekur það lukku

Takk fyrir gott samstarf og innilega til hamingju með áfangann!

„Ég fer í fríið, ég fer í fríið…“

Það er alltaf gott að hafa nokkur atriði í huga í sumarfrágangi áður en starfsmenn fara í frí. Gætum þess að vera ekki að nýta auðlindirnar okkar, hita og rafmagn, á meðan enginn er að „njóta“ þeirra 🙂 Einnig viljum við taka fram að þjónusta við Grænu skrefin verður skert í júlí en þó er hægt að senda inn fyrirspurnir á graenskref@graenskref.is. Við þökkum fyrir ykkar góða starf á liðnum vetri og óskum ykkur gleðilegs sumars!