Vegagerðin á Húsavík
Þjónustustöð Vegagerðarinnar á Húsavík hlaut viðurkenningu fyrir 1. græna skrefi í lok nóvember. Mikill metnaður er í þeim köppum að fylgja ákvæðum skrefanna og örugglega stutt að bíða þess að þeir stígi skref nr. 2. Hópurinn á myndinni stendur hér fyrir aftan sérsmíðaða glæsilega hjólagrind, prýðis aðstaða fyrir hjólandi starfsfólk sem og gestikomandi. Óskum þeim til hamingju með skrefið!
Á myndinni eru (frá vinstri): Brynjar Örn Ástþórsson, Kristján M Önundarson, Þórólfur Jón Ingólfsson, Sigurður Skúlason, Þórir Stefánsson og Hildur Harðardóttir frá Umhverfisstofnun.