Margnota er málið
Við þurfum flest öll á einhverjum pokum að halda en þurfum við virkilega svona mikið? Ef miðað er við evrópskar tölur þá notar fjögurra manna fjölskylda 800 poka á ári eða um 15 poka á viku. Hér gildir því að draga eins og við getum úr slíkri óþarfa einnota notkun enda fer mikið af þessum pokum annað hvort beint í ruslið eða í plastendurvinnslu. Þegar við flokkum sorpið okkar vel þá eigum við alveg að komast af með að nota aðeins 1-2 plastpoka/lífbrjótanlega poka á viku. Höfum því hugann við efnið og afþökkum poka þegar við getum. Á vefsíðu Umhverfisstofnunar (sjá hér) er hægt að lesa sér meira til um hvernig við drögum úr einnota pokanotkun og af hverju það er mikilvægt.
Ríkiseignir eru komnar í Grænu skrefin
Ríkiseignir eru 44 stofnunin til að koma í verkefnið með okkur en stofnunin hefur umsjón með fasteignum, jörðum og auðlindum í eigu ríkisins. Við hlökkum til samstarfsins.
Isavia Keflavíkurflugvöllur náði fyrsta skrefinu
Isavia á Keflavíkurflugvelli fékk viðurkenningu fyrir fyrsta Græna skrefið en undir þá starfsstöð heyra skrifstofur Keflavíkurflugvallar og flugverndin. Þar er mikill kraftur í fólki og vilji til að vinna enn frekar að umhverfismálum.
Landsvirkjun á Akureyri fær þriðja skrefið
Starfsmenn á starfsstöð Landsvirkjunar á Akureyri tóku á móti viðurkenningu fyrir þriðja Græna skrefið á stuttum tíma. Til hamingju 🙂
Isavia Akureyrarflugvöllur fékk fyrstu tvö Grænu skrefin
Flugvöllurinn á Akureyri ákvað að innleiða fyrstu tvö skrefin í einu og gerðu það með glæsibrag. Starfsmenn þar breiða einnig út boðskapinn þar sem fleiri fyrirtæki sem nýta sér þjónustu vallarins þurfa einnig að fylgja þeirra fordæmi. Vel gert 🙂
Skógræktin á Akureyri er komin með fyrsta skrefið
Skógræktin er með starfsstöðvar um allt land en sú á Akureyri hóf fyrst þeirra formlega innleiðingu Grænna skrefa og fengu viðurkenningu þess efnist nú. Innilega til hamingju með árangurinn 🙂
Fyrsta skref Vegagerðarinnar á Akureyri
Starfsstöð Vegagerðarinnar á Akureyri var að ljúka innleiðingu fyrsta Græna skrefsins og fljótlega fylgja þjónustustöðvar þeirra í kjölfarið. Til hamingju með árangurinn 🙂
Vínbúðin Kópasker komin með fimm skref
Nú var Vínbúðin á Kópaskeri að fá viðurkenningu fyrir öll fimm Grænu skrefin. Innleiðingin gekk vel enda græn hugsun í forgrunni. Á Kópaskeri er t.d. ekki flokkað plast en plastið frá Vínbúðinni er sent til Húsavíkur í flokkun. Vel gert og til hamingju með áfangann.
Hleðslustöð fyrir rafbíla hjá Skógræktinni á Akureyri
Það þarf oft ekki flókinn búnað til að búa til aðstöðu fyrir rafbíla stofnana eða fyrir starfsfólk og gesti. Hér t.d. setti Skógræktin á Akureyri upp einfalda hleðslustöð sem fólk þar getur nýtt sér þurfi það hleðslu á bílinn sinn. Svo sakar ekki hvað hún er hrikalega flott og passar vel við sitt umhverfi.
Landsvirkjun á Háaleitisbraut komin með skref 2 og 3
Aðalskrifstofa Landsvirkjunar á Háaleitisbraut tekur Grænu skrefin með trompi en í október fengu þau viðurkenningu fyrir fyrsta skrefið og hafa nú einnig lokið skrefum 2 og 3. Umhverfismál eru ekki ný af nálinni hjá Landsvirkjun og hafa þau um áraskeið fylgst vel með losunartölum, umhverfisáhrifum virkjana og tengdra mála. Grænu skrefin hafa þó hjálpað þeim við að líta sér nær og skoða skrifstofureksturinn betur en þau flokka nú meira, hafa hætt með einnota hluti, dregið úr smáumbúðum, auka hlut lífrænni matvæla í mötuneyti og fleira því tengt. Til hamingju með árangurinn 🙂









